Þingmenn Miðflokksins töluðu með niðrandi hætti um kvenkyns stjórnmálamenn

Stundin og DV hafa í kvöld fjallað um upp­tökur af sam­tölum þing­manna Mið­flokks­ins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Mið­flokks­ins töl­uðu með niðr­andi hætti um kven­kyns stjórn­mála­menn í sam­tölum sín á milli sem náð­ust á upp­töku, en Stundin og DV hafa í kvöld greint frá upp­tök­unum og birt end­ur­sagnir úr þeim.

Í frétt Stund­ar­innar segir að upp­taka hafi náðst af því þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir ræddu málin á Klaustri Bar hinn 20. nóv­em­ber, en þing­menn­irnir Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son voru einnig í hópnum.

Í sam­töl­unum milli þeirra sögðu þeir meðal ann­ars að stjórn­mála­kona hlyti að „hrynja niður“ á próf­kjörs­lista ef hún væri ekki jafn „hot“ og áður.

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir meðal ann­ars orð­rétt:

„Á einum tíma­punkti töl­uðu þing­menn­irnir um hvernig næsta próf­kjör hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í til­teknu kjör­dæmi geti farið.

Gunnar Bragi: „Ég held reyndar að [...] geti verið hel­víti öflug. Hún er hel­víti sæt stelpa.“

Sigmunur Davíð: „Þetta er svona móment, ung kona, ungt fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum, lyftum henni.“

Bergþór: „Nú ætla ég að segja eitt sem er nátt­úru­lega mjög dóna­legt, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan. Það er ótrú­legur munur.“

Sig­mundur Davíð: „Og á þeim for­sendum segi ég að hún hrynji niður list­ann.“

Bergþór: „Eðlilega.“

Á þessu augna­bliki skaut Anna Kolbrún inn: „Viljiði velta fyrir ykkur, ef þetta væri karl?“ og við tóku háreysti og hlátra­sköll karl­anna.“

Stundin segir enn fremur frá því að Bergþór Ólason hafi kallað Ingu Sæland, for­mann og stofn­anda Flokks fólks­ins, „húrr­andi klikk­aða kuntu“.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur tjáð sig um frétt­irnar á Facebook síðu sinni, og segir það alvar­legt mál ef sam­töl þing­manna eru hleruð. Í færsl­unni segir Sig­mundur Davíð:

„Í kvöld birt­ust ótrú­legar fréttir sem sagðar eru unnar upp úr leyni­legri hljóð­upp­töku af sam­tölum þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. Þær ægir öllu saman. Í sumu af því sem hefur birst er vilj­andi eða óvilj­andi rang­hermt um hvað er verið að ræða og hver segir hvað. Samtöl þing­manna sem sitja saman á góðri stund og grín­ast hver við annan eru auk þess látin hljóma eins og póli­tískt plott. Samtal sem ég var sagður hafa átt við Ólaf Ísleifs­son um að hann yrði þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins var unnið upp úr sam­ræðum milli ann­arra manna um aðra hluti í léttum dúr og fór fram eftir að Ólafur var far­inn.

Alvar­leg­ast er þó ef raunin er sú að á Íslandi sé farið að stunda hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna. Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál. Hópurinn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­aði. Ég man ekki eftir dæmi um slíkt í íslenskri stjórn­mála­sögu og aðeins einu dæmi frá Bret­landi. Það var þegar útsend­arar blaðs­ins News of the World hler­uðu sím­töl stjórn­mála­manna og ann­ars þekkts fólks. Það athæfi var litið alvar­legum augum og gripið til aðgerða í sam­ræmi við það. Ég vona að sú verði raunin á Íslandi líka. Annars eru Íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag gjör­breytt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár