Inga Sæland, Oddný Harðardóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir senda frá sér yfirlýsingu

Þær segja að ummæli þau sem þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins létu falla lýsi skammar­legum við­horfum til kvenna og líti þær þau veru­lega alvar­legum augum.

Inga Sæland, Oddný Harðardóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Inga Sæland, Oddný Harð­ar­dóttir og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir. Mynd: Samsett mynd.

Ingu Sæland, Oddný Harð­ar­dóttir og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna hljóð­upp­töku þar sem þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins heyr­ast tala um þær.

[links]Í henni kemur fram að ummæli þau sem þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins létu falla 20. nóv­em­ber á Klaustri lýsi skammar­legum við­horfum til kvenna og líti þær þau veru­lega alvar­legum augum.

„Það er algjör­lega ólíð­andi að karlar í valda­stöðum sýni slíka kven­fyr­ir­litn­ingu og tjái sig á jafn niðr­andi hátt um konur og sam­kyn­hneigða. Þá skiptir einu hvort um er að ræða póli­tíska and­stæð­inga eða sam­herja,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Setur samstarf og trúnað í uppnám

Þær segja að ummæli þessi opin­beri við­kom­andi þing­menn og dæmi sig sjálf. Hegðun þeirra sé ekki til þess fallin að auka virð­ingu almenn­ings á Alþingi eða á stjórn­mála­mönnum og setji sam­starf og trúnað í upp­nám.

„Við for­dæmum ummælin og munum óska eftir því að málið verði tekið upp í for­sætis­nefnd,“ segja þær.

Að lokum minna þær á eft­ir­far­andi siða­reglur sem þing­menn hafa allir und­ir­geng­ist.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár