Forseti og varaforsetar Alþingis segja sig frá umfjöllun um Klaustursmálið

Vara­for­setar Alþingis eru sex. Eftir að hafa metið athuga­semdir, var ákveðið að segja sig frá umfjöllun um Klaust­urs­málið.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, og allir vara­for­setar úr hópi þing­manna, hafa sagt sig frá umfjöllun um Klaust­urs­málið svo­nefnda, vegna van­hæfis. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Alþingi.

Vara­for­setar eru Guðjón Brjáns­son, Brynjar Níelsson, Þor­steinn Sæmunds­son, Þórunn Egils­dóttir, Jón Þór Ólafsson og Bryndís Har­alds­dóttir.

For­sætis­nefnd hefur haft til umfjöll­unar erindi átta þing­manna þar sem þess er að óskað, að það verði kannað hvort sex þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins, sem áttu fund á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, hafi brotið gegn siða­reglum með ummælum sínum um ýmsa, þar á meðal sam­starfs­fólk í stjórn­málum.

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur lýst tali þing­manna Mið­flokks­ins um hana sem hreinu ofbeldi.

Til­kynn­ingin frá Alþingi fer hér að neðan:

„For­sætis­nefnd hefur haft til umfjöll­unar erindi átta þing­manna er lýtur að ummælum þing­manna á bar 20. nóv­em­ber sl. og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum síð­ustu vikur. Hefur málið verið til athug­unar sem mögu­legt brot á siða­reglum fyrir alþing­is­menn.

Samkvæmt 17. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn skal for­sætis­nefnd gæta þess að máls­með­ferð siða­reglu­mála sé í sam­ræmi við meg­in­reglur um óhlut­drægni og vand­aða og rétt­láta máls­með­ferð. Þessi krafa um óhlut­drægni getur vart leitt til ann­ars en þess að gera verði sam­bæri­legar kröfur til hæfis þeirra sem koma að ákvörðun máls í for­sætis­nefnd skv. 17. gr. siða­reglna og gerðar eru til úrskurð­ar­nefnda í stjórn­sýslu sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum. Hæfi nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar ber því að meta á grund­velli hæf­is­reglna stjórn­sýslu­laga. Við slíkt mat skiptir máli hvernig ein­stakir nefnd­ar­menn hafa tjáð sig í opin­berri umræðu um hátt­erni þeirra þing­manna sem er til athug­unar. Ljóst er af umfjöllun fjöl­miðla að fjöldi þing­manna, þ.m.t. for­sætis­nefnd­ar­menn, hafa tjáð sig um málið með ýmsum hætti og lýst við­horfum sínum til fram­göngu nefndra þing­manna.

Nefnd­ar­menn í for­sætis­nefnd hafa, að fengnum athuga­semdum þeirra þing­manna sem um ræðir, metið hæfi sitt með hlið­sjón af þeim ríku kröfum sem gerðar eru til þeirra sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum. Nú liggur fyrir sú nið­ur­staða að for­seti og allir vara­for­setar, hver um sig, hafa sagt sig frá mál­inu, m.a. vegna ýmissa ummæla sinna um málið. Er þetta gert til þess að taka af allan vafa um mögu­legt hæfi og til að tryggja fram­gang máls­ins, áfram­hald­andi vand­aða máls­með­ferð og að það geti gengið með réttum hætti til siða­nefndar.

Forseti Alþingis leggur áherslu á að það siða­reglu­mál sem nú er til með­ferðar, sem og öll siða­reglu­mál sem kunna að ber­ast Alþingi, fái vand­aða og óvil­halla máls­með­ferð. Mun for­sætis­nefnd því koma saman í byrjun jan­úar til að fjalla um nauð­syn­legar laga­breyt­ingar svo að ekki verði töf á með­ferð máls­ins. Markmið þeirra laga­breyt­inga er að tryggja að málið geti gengið með réttum hætti til siða­nefndar.

Í sam­ræmi við fyr­ir­mæli 4. gr. stjórn­sýslu­laga mun skrif­stofa Alþingis halda því erindi, sem for­sætis­nefnd hefur mót­tekið, í réttu horfi þar til við­eig­andi breyt­ingar hafa verið gerðar á þing­sköpum Alþingis og með­ferð mála sam­kvæmt siða­reglum fyrir alþing­is­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár