Segja frum­varps­drög sjávarútvegsráð­herra stríðs­yfir­lýsingu

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Icelandic Wild­li­fe Fund segja að frum­varp Krist­jáns Þórs Júlíus­sonar sjávar­út­vegs­ráð­herra um breyt­ingu á ýmsum laga­á­kvæðum er tengj­ast fisk­eldi vera stríðs­yfir­lýs­ingu á hendur þeim sem vilji vernda líf­ríki.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Icelandic Wildlife Fund gagn­rýna frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um breyt­ingu á ýmsum laga­á­kvæðum sem tengj­ast fisk­eldi. Samtökin segja í yfir­lýs­ingu sem birt var á Facebook í gær­kvöldi að frum­varpið sé „stríðs­yf­ir­lýs­ing á hendur þeim sem vernda vilji líf­ríkið og starfa á vís­inda­legum grund­velli."

Ráðherra tekið stöðu með hagsmunagæslumönnum

[links]Samtökin gagn­rýna breyt­ing­ar­til­lög­una við 7. grein í frum­varps­drög­unum, í henni er lagt til að ráð­herra stað­festi til­lögur Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um áhættu­mat erfða­blönd­unar eld­is­lax við villta laxa. Drögin að frum­varp­inu má lesa á sam­ráðs­gátt rík­is­stjórn­ar­innar.

Í fyrra frum­varp­inu var það Haf­rann­sókna­stofn­unin sem gaf áhættu­matið út án aðkomu ráð­herra. Í yfir­lýs­ingu IWF segir að það sé algjör­lega óásætt­an­legt að áhættu­matið verði gert póli­tískt með þessum hætti. „Með því að leggja þessi drög fram hefur ráð­herra sýnt svo ekki verður um villst að hann hefur tekið sér stöðu með hags­muna­gæslu­mönnum sjó­kvía­eldis­fyrir­tækj­anna gegn vís­inda­mönnum Haf­rann­sóknar­stofn­unar og nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum.“ [adspot]

Gengið sé fram hjá vísindalegum vinnubrögðum

Sam­kvæmt nú­ver­andi á­hættu­mati Haf­rann­sóknar­stofn­unar er gert ráð fyrir að allt að 4 pró­sent fiska í ám lands­ins séu fiskar sem hafa sloppið úr eldi. Í yfir­lýs­ing­unni er þetta harð­lega gagn­rýnt. „Með öðrum orðum að 1 af hverjum 25 fiskum í ís­lenskum ám geta verið norskir eldis­laxar. Það er ó­hugnan­leg tala. Sjó­kvía­eldis­fyrir­tækj­unum finnst þetta á­hættu­mat hins vegar ganga of langt og vilja fá þrösk­uld­inn hækk­aðan veru­lega,“ segir í yfir­lýs­ingu IWF á Facebook.

Enn fremur segir í yfir­lýs­ing­unni að sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin vilji fá svig­rúm frá lög­gjaf­anum til enn rýmri mis­taka. Þau segja að Haf­rann­sóknar­stofnun hafi mátt sæta þungum þrýst­ingi frá fyr­ir­tækjnum og að Lands­sam­band fisk­eldis­stöðva hafi meðal ann­ars óskað eftir því í fyrra að stofn­unin myndi endur­skoða matið. Haf­rann­sókn­ar­stofnun hafn­aði því og segir í yfir­lýs­ing­unni að „nú ætli ráð­herra að taka valdið til sín svo hægt verði að ganga fram hjá vís­inda­legum vinnu­brögðum.“

Samtökin munu berjast gegn því að frumvarpið verði óbreytt að lögum með öllum tiltækum ráðum

Þá gagn­rýnir IWF einnig ákvæði ráð­herr­ans um sam­ráðs­vett­vang, sem ætl­aður er stjórn­völdum til ráð­gjafar vegna mál­efna fisk­eldis. Hlutverk vett­vangs­ins er að leggja mat á for­sendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættu­mat erfða­blönd­unar byggir á. Segir í yfir­lýs­ingu IWF að ákvæðið sé afar sér­stakt. „Ekki er gert ráð fyrir að í þessum sjö manna sam­ráðs­vett­vangi taki sæti vís­inda­fólk til að rýna fræði­legar niður­stöður og gögn Haf­rann­sóknar­stofn­unar, heldur mun vett­vang­ur­inn vera skip­aður þremur full­trúum ráð­herra, einum full­trúa eldis­fyrir­tækj­anna, einum frá sam­bandi ís­lenskra sveitar­fé­laga og svo loks einum frá Haf­rann­sóknar­stofnun og einum frá Lands­sam­bandi veiði­fé­laga.“

IWF segir þetta frá­leitt fyr­ir­komu­lag. „Engin ástæða er til að efast um að þetta á fyrst og fremst að vera vett­vangur full­trúa ráð­herra til að færa honum í hendur þá nið­ur­stöðu sem hann vill og gefa honum þannig skjól til að fara gegn mati Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar," segir í yfir­lýs­ing­unni.

Að lokum segir í yfir­lýs­ing­unni að „IWF mun berj­ast gegn því að þetta frum­varp verði óbreytt að lögum með öllum til­tækum ráðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár