Laxeldisfyrirtækin fá 10 mánaða frest

Frumvarp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um fisk­eldi verður lagt fram í dag. Frum­varpið gerir ráð­herra kleift að veita fyr­ir­tækjum bráða­birgða­leyfi.

Í dag mun Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, leggja fram frum­varp til breyt­ingar á lögum um fisk­eldi til að tryggja að fyr­ir­tækin, Fjarða­lax og Artic Fish, geti haldið áfram starf­semi þrátt fyrir úrskurði og aft­ur­köllun starfs­leyfa fyr­ir­tækj­anna. Í frum­varp­inu er ráð­herra gert kleift , að und­an­geng­inni umsögn Mat­væla­stofn­unar, að veita fyr­ir­tækjum í lax­eldi bráða­birgða­leyfi til að allt að 10 mán­aða. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

[links] „Frum­varp­inu er ætlað að lag­færa með almennum hætti ann­marka á lögum um fisk­eldi til fram­tíðar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lögum er eina úrræði Mat­væla­stofn­unar í þeim til­vikum sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi að stöðva starf­semi hennar. Þannig hafa stjórn­völd engin úrræði til að koma í veg fyrir mögu­lega óaft­ur­kræfa og óþarfa sóun verð­mæta né heldur gæta með­al­hófs,“ segir í til­kynn­ingu frá Krist­jáni, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra.

Drög að frum­varp­inu voru sam­þykkt á auka­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í hádeg­inu í gær og kynnt hinum stjórn­mála­flokk­unum síð­degis í gær. Fyr­ir­tækj­unum Arctic Fish og Fjarða­laxi er því gef­inn frestur til að fara yfir umhverf­is­mat fyr­ir­tækj­anna til að tryggja að umsókn þeirra um aukið lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum verði sam­kvæmt lögum og reglum. Aðspurður segir Kristján Þór frum­varpið ekki fara á svig við úrskurð nefnd­ar­innar um að fella starfs­leyfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna tveggja úr gildi. Hann segir þá ákvörðun vera sjálf­stæða og frum­varpið ekki snerta hennar úrskurð. Frum­varpið flýti ein­fald­lega fyrir ferli máls­ins en bið eftir úrskurði dóm­stóla væri bæði kostn­að­ar­söm og tíma­frek.

Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins voru full­trúar Arctic Fish kall­aðir á fund við­skipta­banka síns þegar rekstr­ar­leyfi þeirra hafði verið aft­ur­kallað og gerð grein fyrir því að aft­ur­köllun á rekstr­ar­leyfi gæti þýtt riftun á láns­samn­ingum við félagið. Því má segja að stjórn­völd björg­uðu lána­línu Artic Fish á síð­ustu stundu.

[adspot]

Ekki gildir sátt um frumvarpið

Fundur var hald­inn í gær með mat­væla­stofnun, Umhverf­is­stofnun, Skipu­lags­stofnun og lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum tveimur. Þar kom fram að fyr­ir­tækin tvö hafa ekki sótt um und­an­þágu frá starfs­leyf­inu til umhverf­is­ráð­herra. Sigrún Ágústs­dóttir, sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, segir að á fund­inum hafi verið rædd til­laga um hvernig væri hægt að bæta úr þeim ann­marka sem fjallað er um í úrskurðum úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. „Ný leyfi fyr­ir­tækj­anna tveggja eru fallin úr gildi en eldri leyfi þeirra fyrir minna umfangi eru enn í gildi sam­kvæmt okkar skiln­ingi. Það sé því enn hægt að nýta þau leyfi að okkar mati,“ segir Sigrún. Frá þessu er greint í umfjöllun Frétta­blaðs­ins.

Ótttar Ynga­va­son, lög­maður nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og veiði­rétt­ar­hafa, segir stjórn­völd ekki hafa heim­ild í lögum fyrir fyr­ir­hug­uðu frum­varpi í við­tali við Vísi. Jafn­framt segir hann engan grund­völl vera fyrir því að þessi fyr­ir­tæki fá að fara fram hjá eðli­legu ferli sem væri að leggja mál fyrir dóm­stóla. „Með öðrum aðgerðum er verið að reyna að fara í kringum venju­leg lög og reglur í land­inu. Það er í raun­inni bara óheim­ilt og ólög­legt,“ segir Óttar og segir engan vafa vera á því að stjórn­völd séu að brjóta lög með frum­varp­inu. Þá segir Óttar með­al­hófs­regl­una ekki eiga við í þessu til­viki og segir slíkar full­yrð­ingar vera til þess fallnar að afvega­leiða umræð­una.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG, hefur óskað eftir því að fundað sé með umhverf­is­vernd­ar­sinnum og lax­veiði­rétt­ar­höfum til að heyra þeirra sjón­ar­mið í umhverfis- og sam­göngu­nefnd­inni. En aðspurð segir hún enn engar und­ir­tektir við þeirri beiðni, hvorki frá stjórn­ar­liðum né stjórn­ar­að­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár