Bráðabirgðaleyfi fyrir fiskeldi verði möguleiki

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra leggur fram frum­varp sem á að höggva á hnúta fyrir fisk­eldi í sjó.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mun leggja fram á Alþingi frum­varp til laga um breyt­ingar á lögum um fisk­eldi, en sam­kvæmt því mun verða mögu­legt að veita rekstr­ar­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eldi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu, en frum­varpið var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. „Frum­varp­inu er ætlað að lag­færa með almennum hætti ann­marka á lögum um fisk­eldi til fram­tíðar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lögum er eina úrræði Mat­væla­stofn­unar í þeim til­vikum sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi að stöðva starf­semi hennar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála felldi úr gildi rekstr­ar­leyfi og starfs­leyfi Fjarð­ar­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­ar­á­hrifa. Samtals voru leyfin upp á um 17.500 tonn, en sveit­ar­fé­lögin á starfs­svæði fyr­ir­tækj­anna hafa mót­mælt stöð­unni sem komin er upp og kraf­ist aðgerða.

Samkvæmt gild­andi lögum er rekstr­ar­leyfi Mat­væla­stofn­unar skil­yrði fyrir starf­rækslu fisk­eld­is­stöðva, sbr. 1. mgr. 4. gr. a. laga um fisk­eldi. Samkvæmt 21. gr. c. sömu laga skal Mat­væla­stofnun stöðva starf­semi fisk­eld­is­stöðvar sem rekin er án þess að rekstr­ar­leyfi sé í gildi.

Í til­kynn­ing­unni segir að með frum­varp­inu sé verið að gæta með­al­hófs.

„Rétt­ar­á­hrif þess að rekstr­ar­leyfi er fellt úr gildi, m.a. með nýlegum úrskurðum úrskurða­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála, eru því þau að Mat­væla­stofnun ber að stöðva þá starf­semi sem byggj­ast á leyfum sem úrskurð­irnir lutu að. Ákvæðið í 21. gr. c. er for­taks­laust. Til­gangur þess virð­ist, m.a. með hlið­sjón af orða­lagi þess, fyrst og fremst sá að tryggja Mat­væla­stofnun örugg stjórn­tæki til við­bragða ef fisk­eld­is­stöð yrði sett á fót án þess að leyfa fyrir starf­semi hennar hefði verið aflað. Hin for­taks­lausa regla í 21. gr. c. á hins vegar ekki vel við ef rekstr­ar­leyfi fellur úr gildi m.a. vegna ann­marka á stjórn­sýslu leyf­is­út­gáf­unnar. Í slíkum til­vikum standa þvert á móti sterk rök til þess, m.a. sjón­ar­mið um með­al­hóf og um að kom­ist sé hjá óaft­ur­kræfri og hugs­an­lega óþarfri sóun verð­mæta, að stjórn­völdum sé með lögum veitt svig­rúm til að meta þá hags­muni sem um ræðir og m.a. hvaða úrræði eru best til þess fallin að ná fram réttri nið­ur­stöðu máls að lögum. Frum­varpið gerir ráð fyrir að í þeim til­vikum er rekstr­ar­leyfi er fellt úr gildi geti ráð­herra að feng­inni umsögn Mat­væla­stofn­unar, enda mæli ríkar ástæður með, gefið út rekstr­ar­leyfi til bráða­birgða til allt að tíu mán­aða. Þá kemur fram í frum­varp­inu að ráð­herra geti sett rekstr­ar­leyfi til bráða­birgða þau skil­yrði sem þörf er á svo til­gangur leyf­is­ins náist, m.a. um sam­drátt þeirrar starf­semi sem þegar er fyrir hendi, um tíma­fresti vegna úrbóta eða ef um með­ferð máls fyrir dóm­stólum er að ræða,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár