Alvarleg áhrif á íbúa sveitarfélaganna bregðist stjórnvöld ekki við

For­vars­menn Vest­ur­byggðar og Tálkn­ar­fjarðar fund­uðu með for­ystu­mönnum stjórn­ar­flokk­ana um helg­ina vegna neyð­ar­á­stands. Ljóst þykir að ákvörðun úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála muni hafa nei­kvæð áhrif á upp­bygg­ingu lax­eldis á Vest­förð­urm.

Það mun hafa í för með sér afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir sunn­an­verða Vest­firði ef stjórn­völd bregð­ast ekki við sam­stundis við úrskurði úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála, segja for­svars­manna sveit­ar­fé­laga á svæð­inu. Formaður stjórnar Arnarlax, Kjartan Ólafsson, segir: „Við höfum miklar áhyggjur af stöð­unni og erum ugg­andi yfir stöðu fyr­ir­tæk­is­ins og grein­ar­innar í heild sinni. Ljóst er að inn­grip með þessum hætti hefur veru­leg áhrif á upp­bygg­ingu félags­ins og þær fram­tíð­ar­vænt­ingar sem við berum í brjósti,“ Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

For­svars­menn Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarðar fund­uðu með for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­ana síð­ast­lið­inn laug­ar­dag og gerðu þeim grein fyrir alvar­leika máls­ins. Sveit­ar­fé­lögin tvö eru með tæp­lega 1300 íbúa og talið er að um 165 íbúar vinni fyrir fyr­ir­tækin á svæð­inu beint auk fjölda verk­taka og þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem tengj­ast fisk­eldi. Talið er að ef ekki er brugð­ist við strax við að leysa úr þessum vanda þá er ljóst að þetta mun hafa afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir sam­fé­lagið í heild sinni. 

[adspot]

Ríkistjórnarflokkarnir vinna að lausnum

Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag kemur fram að á fund­inum var sveit­ar­fé­lög­unum tjáð að unnið væri að lausnum til að bregð­ast við því óvissu­á­standi sem ríkir fyrir vestan. Formenn stjórn­ar­flokk­anna tjáðu sig einnig allir um málið á Facebook um helg­ina. 

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri Grænna, skrif­aði m.a. í gær á Facebook síðu sína: „Við upp­lýstum þau um að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og umhverf­is­ráð­herra hafa verið með til skoð­unar hvaða leiðir eru færar til þess að gæta með­al­hófs í þessu máli og öðrum, þannig að fyr­ir­tæki geti almennt fengið sann­gjarnan frest til að bæta úr þeim ann­mörkum sem koma fram í kæru­ferli og fag­lega sé staðið að öllum málum. Það er von mín að far­sæl lausn finn­ist á þessu máli sem allra fyrst.“

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skrif­aði m.a. á laug­ar­dag að óvissan sem skap­að­ist á Vest­fjörðum í kjöl­far úrskurðar úrskurð­ar­nefndar um umhverfis- og auð­linda­mál væri með öllu óvið­un­andi. „Hér verður að bregð­ast hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagn­vart stjórn­völdum.“ Bjarni sagði að tryggja yrði að sann­gjarnar reglur giltu um rétt til að bæta úr ágöllum í leyf­is­um­sókn­ar­ferli, ef slíku væri til að dreifa, í þessu máli og til fram­búðar. 

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, kall­aði eftir lausnum og rifj­aði upp á Facebook síðu sinni í gær hvernig við­var­andi fólks­fækkun á sunn­an­verðum Vest­fjörðum til 2012 sner­ist við vegna upp­bygg­ingar fisk­eldis. Sömu­leiðis sner­ist íbúa­þróun við á norð­an­verðum Vest­fjörðum í fyrra vegna fisk­eldis. Hann sagði að yfir 300 störf tengd­ust fisk­eld­inu fyrir vestan. Auk þess störf­uðu tugir í Ölfusi/Þor­láks­höfn. Þá hefði fisk­eldi haft jákvæð áhrif á byggða­þróun á sunn­an­verðum Aust­fjörðum. „Mik­il­vægi fisk­eldis í upp­bygg­ingu byggð­anna fyrir vestan og austan er stað­reynd og ætti ekki að vera ágrein­ings­mál. Það má því vera öllum ljóst að finna þarf skyn­sam­legar lausnir á núver­andi stöðu,“ skrif­aði Sigurður Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fiskeldi

FréttirFiskeldi

Mat­væla­ráð­herra segir fisk­eldi vera „vara­sama atvinnu­starf­semi“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði sjó­kvía­eldi vera „mjög vara­sama atvinnu­starf­semi,“ sem þurfi að koma böndum á með lögum. Óvissa ríkir um sekt­ar­á­kvæði frum­varps­ins sem kveður áum háar fjár­sektir á fyr­ir­tæki sem ger­ist upp­vís um vinnu­brögð sem hafa í för með sér slæmar afleið­ingar fyrir umhverfið og líf­ríkið hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár