Spyr utanríkisráðherra um tengsl „ólígarkans okkar“ og Lukashenko

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi þar sem hann krefur utan­rík­is­ráð­herra um svör hvenær ráðu­neytið kann­aði tengsl kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­land­i og for­seta lands­ins.

Jóhann Páll Jóhansson, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr utanríkisáðherra á hverju mat hennar byggi að það sé „orðum aukið“ að Alexander Mosjenskí, kjörræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, sé mjög náinn bandamaður forsetans Alexanders Lúkasjenkós?.
Jóhann Páll Jóhans­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spyr utan­rík­isáð­herra á hverju mat hennar byggi að það sé „orðum aukið“ að Alex­ander Mosjen­skí, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, sé mjög náinn banda­maður for­set­ans Alex­and­ers Lúk­asjenkós?. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvenær kann­aði ráðu­neytið tengsl Alex­and­ers Mosjen­skís og Alex­and­ers Lúk­asjenkós, hvernig fór sú athugun fram og hvaða gagna var aflað?“ Að þessu spyr Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í skrif­legri fyr­ir­spurn til Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­isáð­herra.

Í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar sem birt­ist í síð­ustu viku undir yfir­skrift­inni „Ólíg­ar­k­inn okkar“ eru íslensk stjórn­völd sögð hafa beitt sér gegn því að Evr­ópu­sam­bandið (ESB) beitti Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands í Hvíta-Rúss­land­i, við­skipta­þving­un­um.

Mos­hen­sky er einn umsvifa­mesti við­skipta­jöfur Hvíta- Rúss­lands og hefur auk þess verið kjör­ræð­is­maður Íslands þar í landi frá árinu 2007. Hann er tal­inn mjög hand­gengur Aleksander Lukashen­ko, for­seta lands­ins, og hefur hagn­ast gríð­ar­lega í einu mið­stýrð­asta efna­hags­kerfi Evr­ópu, sem byggir mjög á nánu sam­bandi við ráða­menn. Veldi hans veltir um 220 millj­örðum króna á ári. Fyrir vikið er Mos­hen­sky oft kall­að­ur­„veski Lukashen­kos“.

Á meðal þeirra sem Mos­hen­sky stundar við­skipti við eru íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Hann kaupir mikið magn sjáv­ar­af­urða héð­an, sér­stak­lega loðnu, síld og mak­ríl, og hags­munir íslenskra útgerða í við­skiptum við hann hlaupa á millj­örðum króna. Þau við­skipti eru meðal ann­ars við Vinnslu­stöð­ina í Vest­manna­eyjum en í Stund­inni segir að náin vin­átta hafi skap­ast milli Mos­hen­sky og for­stjóra Vinnslu­stöðv­ar­inn­ar, Sig­ur­geirs Brynjars Krist­geirs­son­ar.

Nafn Moshensky fjarlægt af refsiaðgerðalistum að minnsta kosti þrisvar sinnum

Samkvæmt umfjöllun Stund­ar­innar var nafn Mos­hen­sky ítrekað á lista yfir þá sem Evr­ópu­sam­bandið hafi ætlað að setja á lista yfir fólk sem refsi­að­gerðir nái til, en að það hafi ætið verið fjar­lægt skömmu áður en list­arnir voru form­lega sam­þykkt­ir. Það hafi gerst árið 2012, þegar sam­bandið ætl­aði að koma í veg fyrir að auð­menn sem höfðu hagn­ast í skjóli Lukashenko fengu að stunda við­skipti innan þess. Sjö nöfn voru á upp­haf­lega list­anum en tvö sluppu af honum fyrir form­lega sam­þykkt. Annað þeirra er Alex­ander Mos­hen­sky.

[links]Eftir for­seta­kosn­ing­arnar í Hvíta-Rúss­landi árið 2020, sem fjöldi þjóða, meðal ann­ars Ísland, neita að við­ur­kenna að hafi verið lög­mæt­ar, var aftur tek­inn saman listi innan Evr­ópu­sam­bands­ins. og aftur var Mos­hen­sky á honum í upp­hafi, en ekki þegar end­an­legur listi var sam­þykkt­ur.

Í maí 2021 kastað­ist enn í kekki í sam­skiptum Lukashenko við umheim­inn þegar far­þega­flug­vél Ryanair var skipað að lenda í land­inu af her­þotum vegna þess að blaða­maður sem hafði gagn­rýnt for­set­ann var um borð. Aftur átti að herða þving­anir gagn­vart ein­stak­lingum sem veittu Lukashenko fjár­hags­legan styrk, aftur átti Mos­hen­sky að vera á honum en aftur slapp hann við það á end­an­um. Í Stund­inni er haft eftir heim­ild­ar­mönnum að þar hafi hags­muna­gæsla íslenskra stjórn­valda fyrir hönd Mos­hen­sky „vegið þung­t“.

Á hverju byggir mat ráðherra?

Í skrif­legu svari utan­rík­is­ráð­herra í umfjöllun Stun­far­innar segir að „það hefur verið mat ráðu­neyt­is­ins að það sé orðum aukið að kjör­ræð­is­maður Íslands sé mjög náinn banda­maður Lúk­asjenkós“.

Jóhann Páll spyr sér­stak­lega út í þessi orð ráð­herra í fyr­ir­spurn sinni og á hverju það mat bygg­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár