Dagsektir Fiskistofu geti orðið allt að ein milljón á dag, en ekki 30 þúsund krónur

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar leggur til að dag­sekt­ar­heim­ildir Fiski­stofu verði hækk­aðar veru­lega frá því sem lagt var til í frum­varpi mat­væla­ráð­herra. Einnig vill meiri­hlut­inn að Fiski­stofa til­kynni opin­ber­lega þegar stofn­unin notar dróna við eft­ir­lit.

Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar er formaður atvinnuveganefndar þingsins.
Stefán Vagn Stef­áns­son þing­maður Fram­sóknar er for­maður atvinnu­vega­nefndar þings­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar Alþingis leggur til að Fiski­stofa fái heim­ild til þess að sekta þá útgerð­ar­að­ila sem trassa það að skila stofn­un­inni vigtar- og ráð­stöf­un­ar­skýrslum um allt að eina milljón króna á dag og að fallið verði frá því að sam­an­lagðri heild­ar­upp­hæð slíkra sekta nokk­urt hámark.

Þetta kemur fram í breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hlut­ans við frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra, sem varðar eft­ir­lit Fiski­stofu. Í frum­varpi ráð­herra var gert ráð fyrir því að dag­sekt­irnar yrðu 30 þús­und krónur á dag og að hámarki 1,5 milljón króna – sem sam­svar­aði 50 dag­sekt­ar­dögum.

Mögu­legar sektir voru ekki í neinu sam­hengi við efna­hags­legan styrk­leika og stærð útgerð­ar­að­ila og gerði Sam­keppn­is­eft­ir­litið veru­legar athuga­semdir við það í umsögn sinni um þing­málið, enda ljóst að 30.000 króna dag­sektir væru ekki að fara að hafa nokkur fæl­ing­ar­á­hrif á fyr­ir­tæki sem velta tug­millj­örðum á ári.[links]

Til þessa lítur atvinnu­vega­nefnd, en í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að nauð­syn­legt sé að „Fiski­stofa búi yfir full­nægj­andi úrræðum til þess að knýja á um t.d. afhend­ingu gagna og upp­lýs­inga“. Vill nefndin því að stofn­unin fái heim­ild til þess að leggja á dag­sektir sem geti verið á bil­inu 10 þús­und krónur til ein milljón króna á dag og heim­ild til þess að líta til fjár­hags­legs styrk­leika útgerð­ar­að­ila við álagn­ingu sekt­anna.

Hámark dag­sekta er svo fellt á brott, sem áður segir, og segir meiri­hluti nefnd­ar­innar að hámark­aði eins og það hafi verið í frum­varp­inu hafi vart haft varn­að­ar­á­hrif.

Heimilt verði að falla frá álögðum dagsektum

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar lítur þó einnig til athuga­semda frá Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi þess efnis að með því að fella niður óinn­heimtar dag­sektir þegar útgerð­ar­að­il­inn veitir Fiski­stofu umbeðnar upp­lýs­ingar „skap­ist hvati til breyttar hegð­unar.“ Meiri­hlut­inn leggur þannig til að Fiski­stofu verði heim­ilt að fella niður dag­sektir eftir á, ef aðilar veiti síðar þær upp­lýs­ingar sem Fiski­stofa vill fá.

[adspot]

„Meiri hlut­inn áréttar að hér er um að ræða heim­ild­ar­á­kvæði en ekki skyldu sem þarf ávallt að beita á grund­velli rétt­ar­reglna stjórn­sýslu­réttar um jafn­ræði og mál­efna­leg sjón­ar­mið,“ segir um þetta atriði í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans.

Þurfa að setja tilkynningu á vefinn þegar drónar fara á loft

Í frum­varpi Svan­dísar var fjallað um notkun Fiski­stofu á fjar­stýrðum loft­förum við eft­ir­lit, en eins og Kjarninn hefur fjallað um hefur notkun stofn­un­ar­innar á drónum við eft­ir­lit með brott­kasti leitt til þess að slíkum málum hefur stór­fjölgað. Síðan að eft­ir­lit með drónum hófst í upp­hafi árs 2021 hefur brott­kast sést hjá um 40 pró­sentum þeirra báta sem flogið hefur verið yfir.

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar lætur þess getið að í umsögnum um málið hafi komið fram gagn­rýni á þetta ákvæði frum­varps­ins, þess efnis að gengið væri of nærri frið­helgi einka­lífs ein­stak­linga með „leyni­legri vöktun á bátum og skipum“.

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að rætt hafi verið í nefnd­inni hvort mögu­legt væri að „kveða á um til­kynn­ing­ar­skyldu Fiski­stofu um eft­ir­lit með fjar­stýrðum loft­förum“ og að bent hafi verið á að „slík skylda getur dregið úr fæl­ing­ar­mætti eft­ir­lits­ins og mark­miðum þess“.

„Meiri hlut­inn bendir hins vegar á að verið sé að veita Fiski­stofu heim­ild með lögum til að sinna eft­ir­lits­skyldum sínum með nýrri tækni og um sé að ræða veiga­mikla þróun á fram­kvæmd eft­ir­lits Fiski­stofu. Meiri hlut­inn telur því eðli­legt að stíga var­lega til jarðar þegar um er að ræða nýt­ingu nýrrar tækni við eft­ir­lit með fisk­veiðum og telur sann­gjarnt að Fiski­stofa gefi út almenna til­kynn­ingu áður en hún hefur eft­ir­lit, t.d. á vef Fiski­stofu, en ekki er gert ráð fyrir að til­kynn­ing­arnar verði svæð­is­bundnar eða afmark­aðar með til­teknum hætti, svo sem tíma­mörkum“.

Fiski­stofa mun því þurfa að gefa út til­kynn­ingu um að dróna­eft­ir­lit með fisk­veiðum sé að fara að hefj­ast, en stofn­unin þarf ekki að segja frá því hvar eft­ir­litið mun eiga sér stað né hversu lengi það mun vara.

Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar myndi standa í laga­text­anum: „Fiski­stofa skal til­kynna með opin­berum hætti um fyr­ir­hugað eft­ir­lit með fjar­stýrðum loft­förum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár