Nauðsynlegt að sektarheimildir séu í samhengi við efnahagslegan styrkleika

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að 30 þús­und króna dag­sekt­ar­heim­ild Fiski­stofu, sem lögð er til í nýju frum­varpi ráð­herra, muni ekki hafa til­hlýði­leg varn­að­ar­á­hrif á stór­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi sem velti tug­millj­örðum króna á ári.

Fiskistofa mun samkvæmt frumvarpi ráðherra fá heimild til að sekta sjávarútvegsfyrirtæki um 30 þúsund krónur á dag fyrir að skila ekki inn upplýsingum sem þeim ber að veita, eins og vigtar- og ráðstöfunarskýrslum.
Fiski­stofa mun sam­kvæmt frum­varpi ráð­herra fá heim­ild til að sekta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki um 30 þús­und krónur á dag fyrir að skila ekki inn upp­lýs­ingum sem þeim ber að veita, eins og vigtar- og ráð­stöf­un­ar­skýrslum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lýsir yfir efa­semdum um það að 30 þús­und króna dag­sekt­ar­heim­ild, sem Fiski­stofa mun fá ef frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra um eft­ir­lit stofn­un­ar­innar verður óbreytt að lögum, muni hafa til­hlýði­leg fæl­ingar- og varn­að­ar­á­hrif.

Í umsögn sinni um þing­málið ítrekar Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyrri til­mæli sín um að sekt­ar­fjár­hæðir, „þar sem þær séu ekki í neinu sam­hengi við mis­mun­andi efna­hag og fjár­hags­legan styrk­leika“ þeirra aðila sem Fiski­stofa hefur eft­ir­lit með. Bent er á að velta stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins hafi hlaupið á tug­millj­örðum króna árið 2021.[links]

Samkvæmt frum­varpi mat­væla­ráð­herra, sem dreift var á Alþingi í febr­úar, verður hægt að sekta fyr­ir­tæki sem ekki skila þeim upp­lýs­ingum til Fiski­stofu sem þeim ber að veita um 30 þús­und krónur á dag. Sam­an­lagðar sektir í hverju máli verða þó ekki hærri en 1,5 millj­ónir króna, sem jafn­gildir 50 dag­sekt­ar­dögum.

Fiskistofa gegni mikilvægu eftirlitshlutverki

Sam­keppn­is­eft­ir­litið minnir á það í umsögn sinni að Fiski­stofa gegni mik­il­vægu hlut­verki við fram­kvæmd reglna um hámarks­afla­hlut­deildir, og að liður í eft­ir­liti með þessu er sé að rann­saka og taka afstöðu til þess hverjir telj­ist til tengdra aðila og fari með yfir­ráð í því sam­bandi. Starf Fiski­stofu hafi því mikla þýð­ingu í eft­ir­liti með stjórn­unar- og eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi.

„Við eft­ir­lit af þessu tagi er mik­il­vægt að eft­ir­lits­að­il­inn búi yfir full­nægj­andi úrræðum til þess að knýja á um t.d. afhend­ingu gagna og upp­lýs­inga. Ef úrræði af þessu tagi eru ekki afger­andi og skýr er hætt við því að eft­ir­litið skili ekki árangri og mark­mið hlut­að­eig­anda laga nái ekki fram að ganga,“ segir í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Nauðsynlegt að hægt sé að sekta í hlutfalli við stærð

Sam­keppn­is­eft­ir­litið bendir á það að í frum­varpi fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra frá því í fyrra, þar sem sams konar breyt­ingar voru lagðar til og nú eru settir fram í frum­varpi mat­væla­ráð­herra, hafi sér­stak­lega verið vísað til sekt­ar­úr­ræðis Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi.

[adspot]

Það sekt­ar­úr­ræði er þó af öðrum toga en það sem lagt er til að Fiski­stofa fái. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur heim­ild til þess að leggja á dag­sektir sem geta verið á bil­inu 10 þús­und til 1 milljón króna á dag, auk þess sem sér­stak­lega er tekið fram að við ákvörðun fjár­hæð­ar­innar sé heim­ilt að taka til­lit til fjár­hags­legs styrks þess aðila sem sekt­ina á að fá.

„Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er nauð­syn­legt að líta til þessa ef tryggja á að dag­sekt­ar­úr­ræði Fiski­stofu tryggi til­hlýði­legar efndir á fyr­ir­mælum stofn­un­ar­innar,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar.

Óalgengt að dagsektarheimildir séu svo lágar

Því er einnig bætt við að eftir því sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom­ist næst sé „óal­gengt að eft­ir­lits­stofnun hafi til umráða svo lága dag­sekt­ar­fjár­hæð“ sem þær 30 þús­und krónur sem lagðar eru til í frum­varpi ráð­herra.

„Svo virð­ist sem algengt sé að heim­ild til álagn­ingar dag­sekta sé ann­ars vegar bundin ákveð­inni lág­marks­fjár­hæð og hins vegar hámarks­fjár­hæð og virð­ist vera algengt að slík hámarks­fjár­hæð sé 500 þús. kr. til 1 milljón kr. Þá eru jafn­framt dæmi um að ekki sé kveðið á um til­tekið lág­mark eða hámark heldur við­kom­andi eft­ir­lits­stofnun falið að ákvarða við­eig­andi sekt­ar­fjár­hæð í hvert og eitt sinn, sbr. t.d. 38. gr. sam­keppn­islaga,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár