Stjórnenda og eigenda Hvals hf. að meta hvort fyrirtækið nýti sér leyfi til hvalveiða

Mat­væla­ráð­herra segir að fátt virð­ist rök­styðja það að heim­ila hval­veiðar eftir 2024. Eigendur Hvals hf. hafi til­skilin leyfi til hval­veiða í sumar og verði því sjálfir að ákveða hvort þeir nýti það leyfi. Sjón gagn­rýnir veið­arnar og hvetur til mót­mæla.

Sjón og Svandís Svavarsdóttir
Sjón og Svandís Svav­ars­dóttir Mynd: Samsett mynd/europasf.eu og Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir telur að áður en ákvörðun sé tekin um fram­tíð hval­veiða þurfi að gera úttekt á hvort slíkar veiðar skili þjóð­ar­bú­inu efna­hags­legum ávinn­ingi.

Þetta kemur fram skrif­legu svari ráð­herr­ans til Kjarnans þar sem hún var spurð út í afstöðu gagn­vart því að fyr­ir­tækið Hvalur hf. hygg­ist fara á hval­veiðar í sumar.

Kristján Lofts­son, fram­kvæmda­stjóri Hvals hf., greindi frá því í sam­tali við Morg­un­blaðið í vik­unni að fyr­ir­tækið hygð­ist fara á veiðar í sumar. Hann reikn­ar með að veiðarn­ar hefj­ist í júní og standi fram í sept­em­ber eft­ir því sem veður leyf­ir.

Reiknað er með að um 150 manns starfi á hval­veiði­skip­un­um, í hval­stöð­inni í Hval­f­irði og í vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins í Hafnar­f­irði, sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins. Þar sé hluti afurð­anna unn­inn. Kristján met­ur mark­aðs­horf­ur betri nú en und­an­far­in ár.

Þá greinir Kristján frá því að Hval­ur hf. „hafi lent í langri tog­streitu við Mat­væla­stofn­un (MAST) vegna hval­stöðvar­inn­ar í Hval­f­irði“. Það sé aðal­á­stæða þess að ekki hafi verið haldið til hval­veiða eft­ir árið 2018 fyrr en nú. Hval­ur hf. fékk ótíma­bundið leyfi til vinnslu hvala­af­urða árið 2021.

Unnið verður mat á mögulegum þjóðhagslegum og samfélagslegum áhrifum hvalveiða

Svandís bendir á í svari sínu til Kjarnans að Hvalur hf. hafi til­skilin leyfi til hval­veiða í sumar sam­kvæmt núver­andi reglu­gerðum, og því stjórn­enda og eig­enda Hvals hf. að meta hvort fyr­ir­tækið nýti sér það leyfi.

Þá telur hún að í núver­andi stöðu virð­ist vera fátt sem rök­styður það að heim­ila hval­veiðar eftir árið 2024.

„Á þessu ári verður unnið mat á mögu­legum þjóð­hags­legum og sam­fé­lags­legum áhrifum slíkrar ákvörð­unar og ákvörðun tekin í fram­hald­inu. Síðustu þrjú ár hafa engin stór­hveli verið veidd en ein hrefna var veidd árið 2021. Fátt bendir til þess að það sé efna­hags­legur ávinn­ingur að því að stunda þessar veiðar, þar sem þau fyr­ir­tæki sem hafa leyfi til hval­veiða hafa ekki nýtt þau. Ástæður þessa geta verið nokkrar en má vera að við­var­andi tap af þessum veiðum sé lík­leg­asta ástæðan,“ segir ráð­herr­ann.

Hæpið að halda því fram að veiðarnar séu sjálfbærar í félagslegum skilningi

[links]Svan­dís hefur áður tjáð sig um hval­veiðar síðan hún varð mat­væla­ráð­herra en hún sagði í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í byrjun febr­úar að óum­deilt væri að hval­veiðar hefðu ekki haft mikla efna­hags­lega þýð­ingu fyrir þjóð­ar­búið á síð­ustu árum og að óbreyttu væri það fátt sem rök­styddi heim­ildir til áfram­hald­andi veiða eftir að slíkar heim­ildir falla úr gildi á næsta ári.

„Þó að hval­veiðar við Íslands­strendur séu sjálf­bærar í þeim skiln­ingi að ekki sé verið að ganga um of á stofn­stærð þá er hæpið að halda því fram að veið­arnar séu sjálf­bærar í félags­legum eða efna­hags­legum skiln­ingi. Japanir hafa verið stærstu kaup­endur á hval­kjöti en neysla á því fer minnk­andi ár frá ári. Því ætti Ísland að taka þá áhættu að við­halda veiðum sem hafa ekki skilað efna­hags­legum ábata til þess að selja vöru sem lítil eft­ir­spurn er eftir?“ spyr hún í grein­inni.

Fóðrar egó eins milljónamærings

Ekki eru allir ánægðir með ákvörðun Hvals hf. að veiða í sumar. Rit­höf­und­ur­inn Sigurjón Birgir Sig­urðs­son, sem iðu­lega er kall­aður Sjón, ein einn þeirra en hann hvatti fólk til að mót­mæla fyr­ir­hug­uðum hval­veiðum á Twitter í gær.

Hann skrifar færsl­una á ensku og bendir á að Svandís Svav­ars­dóttir sé sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hér á landi. „Verið svo væn að senda tölvu­póst á ráðu­neyti hennar til þess að mót­mæla þess­ari áfram­hald­andi villi­mennsku sem ein­ungis fóðrar egó eins millj­óna­mær­ings í land­inu okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár