Ráðherra segir fátt rök­styðja heimild til hval­veiða

Sýna þarf fram á að það sé „efna­hags­lega rétt­læt­an­legt“ að end­ur­nýja veiði­heim­ildir til hval­veiða að mati Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra. Nú­ver­andi veiði­heim­ild­ir gilda út árið 2023.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra segir óum­deilt að hval­veiðar hafi ekki haft mikla efna­hags­lega þýð­ingu fyrir þjóð­ar­búið á síð­ustu árum og að óbreyttu sé það fátt sem rök­styður heim­ildir til áfram­hald­andi veiða eftir að slíkar falla úr gildi á næsta ári. Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag bendir hún á að síð­ustu þrjú ár hafi engin stór­hveli verið veidd og aðeins ein hrefna á síð­asta ári. „Fátt bend­ir til þess að það sé efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur að því að stunda þess­ar veiðar, þar sem þau fyr­ir­tæki sem hafa til þess leyfi hafa getað veitt hval síð­ustu ár en hafa ekki gert það. Ástæður þessa geta verið nokkr­ar en kannski ein­falda skýr­ing­in sú að við­var­andi tap af þess­um veiðum sé lík­leg­ust.“

[adspot]

Svandís skrifar að frá því að hval­veiðar í at­vinnu­skyni hóf­ust á nýj­an leik árið 2006 hafi verið veidd­ar nokk­ur hund­ruð lang­reyðar og tals­verður fjöldi af hrefn­u. „Þess­ar veiðar hafa verið um­deild­ar þar sem að ann­ars veg­ar sjón­ar­mið eru uppi um að þess­ar veiðar þjóni ekki þjóð­hags­leg­um hags­mun­um Íslands og hins veg­ar sjón­ar­mið um að það komi ekki öðrum við en Íslend­ing­um hvort við kjós­um að leyfa veiðar á stofn­um sem eru ekki í út­rým­ing­ar­hættu.“

Nú­ver­andi veiði­heim­ild­ir gilda út árið 2023 og að óbreyttu verður því eng­in veiði heim­il á hvöl­um frá ár­inu 2024. „Sýna þarf fram á að það sé efna­hags­lega rétt­læt­an­legt að end­ur­nýja veiði­heim­ild­ir,“ skrifar Svandís og minnir á að í sögu­legu sam­hengi hafi hval­veiðar haft nei­kvæð áhrif á út­flutn­ings­hags­muni lands­ins. Orð­spors­á­hætt­an sem fylg­i því að við­halda þess­um veiðum áfram sé tals­verð þó að hún sé ill­mæl­an­leg.

Ráð­herr­ann skrifar að þrátt fyrir að hval­veiðar við Íslands­strend­ur séu sjálf­bær­ar í þeim skiln­ingi að ekki sé verið að ganga um of á stofn­stærð þá sé „hæpið að halda því fram að veiðarn­ar séu sjálf­bær­ar í fé­lags­leg­um eða efna­hags­leg­um skiln­ingi“. Jap­an­ir hafa verið stærstu kaup­end­ur á hval­kjöti en neysla á því fer minnk­andi ár frá ári. „Því ætti Ísland að taka þá áhættu að við­halda veiðum sem hafa ekki skilað efna­hags­leg­um ábata til þess að selja vöru sem lít­il eft­ir­spurn er eft­ir?“

Jap­an­ir gengu úr Alþjóða­hval­veiði­ráð­inu í byrj­un árs 2019 og veiða nú sjálf­ir hvali í sinni lög­sögu. „Að óbreyttu er því fátt sem rök­styður það að heim­ila hval­veiðar eft­ir árið 2024,“ skrifar Svandís. Á þessu ári verður unnið mat á mögu­leg­um þjóð­hags­leg­um og sam­fé­lags­leg­um áhrif­um slíkr­ar ákvörð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalveiði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár