Hvals-menn skiluðu dróna svissneska ríkisfjölmiðilsins til lögreglu

Lög­reglan á Akranesi fékk kvik­mynda­töku­dróna sem starfs­menn Hvals hf. hirtu af starfs­mönnum sviss­nesks rík­is­fjöl­mið­ils afhentan og kom honum til eig­enda sinna. Bæði dróna­flugið og dróna­stuld­ur­inn eru á borði lög­regl­unnar.

Starfsmenn Hvals hf. komu dróna svissneska ríkisfjölmiðilsins til lögreglunnar á Akranesi án þess að til húsleitaraðgerðar þyrfti að koma.
Starfs­menn Hvals hf. komu dróna sviss­neska rík­is­fjöl­mið­ils­ins til lög­regl­unnar á Akranesi án þess að til hús­leitar­að­gerðar þyrfti að koma. Mynd: Hard to Port

Dróna, sem starfs­menn Hvals hf. hirtu af dag­skrár­gerð­ar­mönnum sviss­neska rík­is­fjöl­mið­ils­ins SRG SSR við hval­stöð­ina í Hval­firði í síð­ustu viku, var skilað til lög­reglu um helg­ina og lög­regla kom honum í hendur Sviss­lend­ing­anna, sem héldu af landi brott á sunnu­dag.

Þetta stað­festir Ásmundur Kristinn Ásmunds­son hjá lög­regl­unni á Akranesi í sam­tali við Kjarnann, en hann segir skýrslu­tökur hafa farið fram í mál­inu, sem sé áfram til skoð­unar hjá lög­reglu enda gengu kærur á báða bóga – Hvalur hf. kærði lág­flug á drón­anum yfir hval­stöð­inni en dag­skrár­gerð­arteymið frá Sviss kærði stuld á dróna.

[adspot]

Ásmundur segir að lög­regla hafi verið reiðu­búin til þess að ráð­ast í hús­leitar­að­gerð í hval­stöð­inni til þess að hafa uppi á dróna Sviss­lend­ing­anna, en til þess hafi ekki þurft að koma.

Hann segir dróna­flug vera „við­var­andi vanda­mál“ uppi í Hval­firði og að lög­regla hafi oftar en einu sinni fengið kvart­anir vegna lág­flugs dróna þar.[links]

Regl­ur um dróna­flug yfir athafna­svæðum eins og því sem Hvalur hf. hefur til umráða í Hval­firð­inum eru þær að það er almennt bannað að fara nær bygg­ingum en 150 metra, nema með leyfi umráð­anda, sem Sviss­lend­ing­arnir hafa án efa ekki fengið hjá for­svars­manni Hvals hf.

Raunar segir Ásmundur að dróna­flug hafi verið vanda­mál víðar. Hann segir að lög­reglu ber­ist stundum til­kynn­ingar um óvið­eig­andi dróna­flug, jafn­vel í sum­ar­bú­staða­hverfum í Borg­ar­firð­inum, þar sem fólk sem reynir að njóta sín í heitum pottum hefur þurft að láta lög­reglu af flygildum sem sveima yfir þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalveiði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár