Lögregla væntir þess að Hvalur hf. skili dróna svissneska ríkisútvarpsins í dag

Teymi frá sviss­neska rík­is­fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu SRG SSR flaug dróna yfir hval­stöð Hvals hf. fyrr í vik­unni. Starfs­menn Hvals hf. hirtu af þeim drón­ann og lög­reglan á Akranesi hefur krafið fyr­ir­tækið um að skila dróna Sviss­lend­ing­anna.

Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. virðir hér fyrir sér dauðan hval í Hvalfirði í júlímánuði.
Kristján Loftsson for­stjóri Hvals hf. virðir hér fyrir sér dauðan hval í Hval­firði í júlí­mán­uði. Mynd: Hard to Port

Lög­reglan á Akranesi býst við því að fá í dag afhentan dróna, sem starfs­menn Hvals hf. tóku af kvik­mynda­teymi á vegum sviss­neska rík­is­út­varps­ins í vik­unni.

„Það var klár­lega tek­inn dróni þarna sem við höfum fram á að verði komið hér til okkar á Akranes,“ segir Ásmundur Kristinn Ásmunds­son hjá lög­regl­unni á Akranesi í sam­tali við Kjarnann.

Í Morg­un­blað­inu í dag var fjallað um þetta mál, frá sjón­ar­horni Krist­jáns Lofts­sonar eig­anda Hvals hf., sem hefur lagt fram kæru á hendur sviss­neska teym­inu fyrir að hafa flogið drón­anum of nálægt athafna­svæði fyr­ir­tæk­is­ins í Hval­firði, eða í um 20 metra hæð yfir svæð­inu sam­kvæmt því sem haft er eftir Krist­jáni í Morg­un­blað­inu. Vísar hann til mynd­banda sem hann hafi séð af flugi drón­ans, máli sínu til stuðn­ings.

Ásmundur hjá lög­regl­unni stað­festi við Kjarnann í morgun að flug drón­ans hafi verið kært til lög­reglu, en sagð­ist ekki viss um að form­leg kæra vegna þjófn­aðar á dróna hafi borist frá sviss­neska teym­inu, þó að þaðan hafi borist til­kynn­ing til lög­reglu um að drón­inn hafi verið hirtur, sem lög­regla hefur gengið á eftir. Málið er til skoð­unar hjá emb­ætt­inu.

Sannarlega á vegum svissneska ríkisfjölmiðlafyrirtækisins

Kjarninn ræddi við einn úr sviss­neska teym­inu í gær af öðru til­efni og fékk þar hina hlið dróna­máls­ins, í óspurðum fréttum. Samkvæmt lýs­ingum sviss­neska dag­skrár­gerð­ar­manns­ins gekk hópur starfs­manna Hvals hf. nokkuð hart fram gegn kvik­mynda­tökuteym­inu, svo að nán­ast lá við handa­lög­málum, en starfs­menn­irnir voru ósáttir við mynda­töku­að­ferðir teym­is­ins, komu út úr hval­stöð­inni og hirtu drón­ann.

[adspot]

Mögulegt er að þessi röð atvika verði sýnd í sviss­nesku sjón­varpi ein­hvern­tím­ann á næst­unni, en sviss­neska teymið er statt hér á landi til þess að vinna umfjöllun um hval­veiðar Íslend­inga, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá þeim í gær.

Í Morg­un­blað­inu í dag segir að sviss­neska teymið sé ekki á vegum sviss­neska rík­is­út­varps­ins, heldur frá einka­rek­inni vef­síðu þar í landi. Þetta er hins vegar rangt.

Sviss­neska teymið seg­ist vera á vegum SRG SSR, sem er sann­ar­lega sviss­neska rík­is­fjöl­miðla­fyr­ir­tækið. Þýskt heiti þess er Schweizerische Radio- und Fernsehgesellschaft og hið franska er Société suisse de radi­odiffusion et télé­vision.

Líklega að brjóta reglur um drónaflug

Ásmundur hjá lög­regl­unni á Akranesi segir aðspurður að ef lýs­ingar starfs­manna Hvals hf. á dróna­flugi Sviss­lend­ing­anna séu réttar hafi teymið, sem Kristján Loftsson segir í Morg­un­blað­inu í dag að hafi minnt á „eitt­hvert Hollywood-gengi“, klár­lega verið að brjóta reglur.

Regl­urnar um dróna­flug yfir athafna­svæðum eru þær að það sé almennt bannað að fara nær bygg­ingum í og athafna­svæðum í strjál­býli en 150 metra, nema með leyfi umráð­anda, sem Sviss­lend­ing­arnir hafa án efa ekki fengið hjá Krist­jáni Lofts­syni for­svars­manni Hvals hf.

Vilja skila Svisslendingunum drónanum

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans verður sviss­neska teymið á land­inu fram á sunnu­dag og var á dag­skrár­gerð­ar­manni þess að skilja að þeir hefðu vænt­ingar um að geta tekið drón­ann með sér heim.

Ásmundur hjá lög­regl­unni segir að málið sé til rann­sóknar, og meðal ann­ars þurfi að skoða hvernig drón­inn lá er hann var tek­inn, hvort hann var tek­inn út úr bíl eða hvort hann lá á víða­vangi. Á honum er að helst heyra að lög­reglan stefni að því að koma drón­anum til rétt­mæts eig­anda, sviss­neska rík­is­út­varps­ins, þegar starfs­menn Hvals skila honum af sér.

„Þetta eru dýr tæki,“ segir Ásmundur, sem hefur sem áður segir vænt­ingar um að drón­anum verði skilað í dag.

Kristján Loftsson sagði hins vegar við Morg­un­blaðið að drón­inn yrði ekki afhentur fyrr en fyr­ir­tækið gæti treyst því að lög­regla rann­sak­aði málið ofan í kjöl­inn.

Ef Hvalur hf. skilar ekki drón­anum þyrfti lög­regla að fá dóms­úr­skurð til þess að fá að fara inn á athafna­svæði fyr­ir­tæk­is­ins og sækja drón­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalveiði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár