Vill að dýravelferðarfulltrúi verði í áhöfn hvalskipa sem taki veiðar upp á myndband

Mat­væla­ráðu­neytið hefur lagt til breyt­ingu á reglu­gerð um hval­veiðar sem fela í sér að skip­stjórum hval­veiði­skipa verði gert að til­nefna dýra­vel­ferð­ar­full­trúa sem beri ábyrgð á því að rétt verði staðið að vel­ferð hvaða við veiðar.

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra vill að reglu­gerð um hval­veiðar verði breytt þannig að skip­stjórum hval­veiði­skipa verði gert að til­nefna dýra­vel­ferð­ar­full­trúa úr áhöfn sem beri ábyrgð á því að rétt verði staðið að vel­ferð hvala við veiðar. Dýra­vel­ferð­ar­full­trúi má ekki vera sá sami og beitir skutli við veiðar á hval.

Umræddir full­trúar eiga að sækja nám­skeið sem skal vera sam­þykkt af Mat­væla­stofnun. Þeir eiga enn fremur að safna gögnum um veið­arnar og mynda þær á mynd­band. Öllum gögnum og myndefni sem tekið er upp á að afhenda eft­ir­lits­dýra­lækni.

Þetta kemur fram í drögum að reglu­gerð um breyt­ingar á gild­andi reglu­gerð um hval­veiðar sem birt hefur verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Umsagn­ar­frestur um reglu­gerð­ina er tvær vikur og stendur til 21. júlí.

Umfangsmikið fjárfestingafélag sem stundar líka hvalveiðar

Mikill styr hefur staðið að und­an­förnu um hval­veiðar, enda hófust þær að nýju hér­lendis eftir fjög­urra ára hlé. Eitt fyr­ir­tæki veiðir hval hér­lendis, Hvalur hf. sem stýrt er af Krist­jáni Lofts­syni, stærsta eig­anda þess. Hvalur hf. er ekki bara hval­veiði­fyr­ir­tæki heldur líka umsvifa­mikið fjár­fest­inga­fé­lag. Hvalur hagn­að­ist um 3,5 millj­arða króna á síð­asta rekstr­ar­ári sínu og eigið fé þess var 25,9 millj­arðar króna í lok sept­em­ber 2021, við lok þess rekstr­ar­árs. Hvalur greiddi eig­endum sínum 1,5 millj­arð króna í arð í fyrra. Á meðal félaga sem Hvalur á í eru hlut­deild­ar­fé­lögin Hamp­iðjan og Íslenska gáma­fé­lagið. Þá átti félagið til að mynda 2,22 pró­sent hlut í Arion banka sem met­inn var á 6,5 millj­arða króna í sept­em­ber í fyrra og hlut í Alvotech sem var þá met­inn á hálfan millj­arð króna.

[adspot]Því má segja að hval­veið­arnar sjálfar séu auka­bú­grein hjá Hval. Þær fela í sér rekstur og eign­ar­hald á nokkrum hval­veiði­skipum og vinnslu­stöð í Hval­firði. Afurð­irnar eru seldar að uppi­stöðu til Japan. Í lok sept­em­ber 2021 átti félagið birgðir af frystum hvala­af­urðum sem metnar voru á 338 millj­ónir króna. Auk þess átti félagið birgðir af lýsi og mjöli sem voru ekki metnar til verðs í reikn­ingnum.

Hval­veiði­kvót­inn í ár er 190 lang­reyðar. Kristján Loftsson sagði við RÚV í byrjun viku að Hvalur hf. muni ekki veiða svo mikið á yfir­stand­andi ver­tíð og kvót­inn verður þar af leið­andi ekki full­nýttur. Hann sagði enn fremur að ver­tíðin ætti að skila um 3,5 millj­örðum króna í tekjur og að áfram sem áður yrði mest selt út til Japan.

And­stæð­ingar hval­veiða hafa látið vel í sér heyra vegna þess að veið­arnar hafa verið hafnar að nýju og sömu sögu er að segja af for­víg­is­mönnum í ferða­þjón­ustu, sem telja hval­veið­arnar hafa nei­kvæð áhrif á ímynd Íslands.

Kristján gaf lítið fyrir þetta í áður­nefndu við­tali. ​​„Þetta er bara biss­nes maður. Þeir eru auð­vitað á móti. Þetta er anti-everyt­hing lið, þeir eru á móti öllu. Það er ekk­ert skrítið að þeir séu á móti hval­veiðum. Þeir eru á móti virkj­unum og just name it, eins og sagt er. Þetta er eig­in­lega dauð umræða í dag.“

Tveir af hverjum þremur landsmönnum telja veiðarnar skapa orðspor

Sama dag sagði Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra ferða­mála, að hún sæi ekki að hval­veiðar valdi því að færri ferða­menn sæki hingað en ella. Hún væri hlynnt hval­veiðum eins og staðan væri nú.

For­svars­menn ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja hafa sagt að engin gögn styðji þessi ummæli ráð­herr­ans. Rannveig Grét­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Eldingar, sagði við RÚV að það væru von­brigði að Lilja stæði ekki með ferða­þjón­ust­unni í þessu máli. „„Mig grunar að með þessu og öðru að Lilja hafi fengið ráðu­neyti sem hún hefur hvorki vit né áhuga á, mér finnst leið­in­legt að segja það, og leið­in­legt að hún skuli ekki standa með okkur.“

Í sama streng tók Bjarn­heiður Halls­dóttir, for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, í sam­tali við Túrista. Afstaða ráð­herr­ans væri ill­skilj­an­leg þar sem ára­löng reynsla hefði sýnt að hval­veiðar skaði utan­rík­is­stefnu og utan­rík­is­við­skipti Íslands. Miklum hags­munum væri því stefnt í hættu vegna veiða, sem hafi sára­lítið, ef eitt­hvert vægi, í þjóð­ar­bú­skapnum.

Maskína gerði nýverið könnun fyrir Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands þar sem afstaða lands­manna gagn­vart hval­veiðum var mæld. Nið­ur­staða þeirrar könn­unar var sú að 64,3 pró­sent aðspurðra töldu að hval­veiðar sköð­uðu orð­spor ÍSlands, 26,9 pró­sent töldu þær ekki hafa nein áhrif og 6,1 pró­sent töldu að veið­arnar hefðu góð áhrif á orð­spor Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalveiði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár