„Mikilvægt að ná samstöðu um réttlátari skiptingu á hagnaði af sjávarauðlindinni“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur áhyggjur af ofur­hagn­aði ein­stakra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og sífellt auknum ítökum þeirra í öðrum greinum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra seg­ist leggja mikla áherslu á að ná sátt um þau gjöld sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn greiðir. Ná sátt um að stærri hluti af ofur­hagn­aði ein­stakra fyr­ir­tækja, sam­hliða veru­lega auk­inni arð­semi grein­ar­innar næstu 10 ár, renni til þjóð­ar­innar – eig­anda auð­lind­ar­innar.

Þetta var meðal þess sem kom fram í yfir­lits­ræðu for­manns­ins á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem haldið er á á Grand hótel í Reykja­vík í dag.

Hann sagði að íslenskur sjáv­ar­út­vegur væri í fremstu röð í heim­inum og að Ísland væri eitt af fáum löndum sem ekki styddi við grein­ina með rík­is­styrkjum.

„Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa líka náð undra­verðum árangri í því að draga úr kolefn­islosun í grein­inni að ekki sé minnst á þann mikla metnað og árangur sem hefur náðst í nýt­ingu sjáv­ar­fangs. Þar er sam­spil þess­arar hefð­bundnu greinar við nýsköpun eft­ir­tekt­ar­vert. Íslenskur sjáv­ar­út­vegur er hátækni­grein þar sem nýjasta tækni, oft fundin upp innan íslenskra fyr­ir­tækja, er nýtt til að auka verð­mæti sjáv­ar­afla. Sú hugsun er gríð­ar­lega mik­il­væg þegar um er að ræða auð­lind þjóð­ar­innar,“ sagði hann.

Þjóðareign auðlinda verði skýrð í stjórnarskrá Íslands

Benti Sigurður Ingi á að ljóst væri að full­kom­inn friður hefði ekki ríkt um grein­ina á Íslandi.

„Það er sjálf­stætt vanda­mál. Ofur­hagn­aður ein­stakra fyr­ir­tækja og sífellt aukin ítök sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í öðrum greinum er eitt­hvað sem við í Framsókn höfum haft áhyggjur af. Við höfum lagt mikla áherslu á að þjóð­ar­eign auð­linda verði skýrð í stjórn­ar­skrá Íslands. Því miður hefur stjórn­mála­flokk­unum ekki auðn­ast að ná sam­hljómi um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar en við munum leggja okkar af mörkum til að stað­festa það í stjórn­ar­skrá að fisk­ur­inn í sjónum, eins og aðrar auð­lindir lands­ins, séu í eign þjóð­ar­innar.

Við munum líka leggja mikla áherslu á að ná sátt um þau gjöld sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn greiðir, ná sátt um að stærri hluti af ofur­hagn­aði ein­stakra fyr­ir­tækja, sam­hliða veru­lega auk­inni arð­semi grein­ar­innar næstu 10 ár, renni til þjóð­ar­innar, eig­anda auð­lind­ar­innar. Við erum til í sam­talið um hvernig þessi sátt, sem er nauð­syn­leg, ekki síst fyrir grein­ina sjálfa – náist,“ sagði hann og bætti því við að mik­il­vægt væri að ná sam­stöðu um rétt­lát­ari skipt­ingu á hagn­aði af sjáv­ar­auð­lind­inni.

Áhyggjur af því hvað eignarhald í fiskeldi sé á fárra höndum

Sigurður Ingi nefndi aðra atvinnu­grein í ræðu sinni sem hann sagði að byggst hefði hratt upp og nýtt auð­lindir lands­ins: Fisk­eldið.

„Það hefur verið ævin­týri lík­ast að sjá öfl­uga starf­semi byggj­ast upp í fjörðum austan lands og á Vest­fjörðum, að ekki sé talað um metn­að­ar­fullt land­eldi víða um land. Um allan heim hefur fisk­eldi vaxið – enda hag­kvæm­asta prótein upp­sprettan og sú sem veldur minnsta kolefn­is­fótspori.

Hins vegar höfum við í Framsókn orðað áhyggjur okkar af því hvað eign­ar­hald í fisk­eldi er á fárra höndum. Það getur ekki gengið til lengdar að stór hluti fisk­eldis við Íslands strendur sé í eigu fárra erlendra aðila. Við þurfum að stíga örugg skref í átt til þess að tryggja dreift íslenskt eign­ar­hald í þess­ari ört vax­andi grein,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár