Hvað er átt við þegar menn tala um ofurhagnað? spyr fjármálaráðherra

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði fjár­mála­ráð­herra á þingi í morgun hvernig honum hugn­að­ist hug­myndir félaga síns í rík­is­stjórn, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, um að almenn­ingur fengi stærri hlut af ofur­hagn­aði ein­stakra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja.

Bjarni Benediktsson og Logi Einarsson
Bjarni Bene­dikts­son og Logi Ein­ars­son Mynd: Samsett mynd

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Logi Ein­ars­son, ræddu sjáv­ar­út­vegs­mál í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun.

Logi spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvort hann væri sam­mála for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins varð­andi það að almenn­ingur fengi stærri arð af sjáv­ar­auð­lind­inni og hvort þetta mál hefði verið rætt í rík­is­stjórn­inni.

Bjarni sagði að ef hækka ætti veiði­gjaldið fyrir stórar útgerðir þá myndi það ganga þvert yfir alla útgerð­ar­flokka. Þá myndu minni aðil­arnir þurfa að svitna. „Þeir munu líða fyrir það að njóta ekki hag­kvæmni stærð­ar­innar.“

Hefur þetta verið rætt innan ríkisstjórnarflokkanna?

Logi vís­aði við upp­haf fyr­ir­spurnar sinnar í orð Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, sem hann lét falla á flokks­þingi flokks­ins um síð­ast­liðna helgi.

Kjarninn fjall­aði um ræðu Sigurðar Inga um liðna helgi en á flokks­þing­inu sagð­ist hann leggja mikla áherslu á að ná sátt um þau gjöld sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn greið­ir. Ná sátt um að stærri hluti af ofur­hagn­aði ein­stakra fyr­ir­tækja, sam­hliða veru­lega auk­inni arð­semi grein­ar­innar næstu 10 ár, rynni til þjóð­ar­innar, eig­anda auð­lind­ar­inn­ar.

Benti Logi á að þetta væri vissu­lega nokkuð nýr tónn hjá einum af odd­vitum rík­is­stjórn­ar­innar en að Sam­fylk­ingin fagn­aði þess­ari stefnu­breyt­ingu.

[links]„Slíkt mál er ekki að finna í nýupp­færðri þing­mála­skrá en ég er viss um að það megi bæta úr því enda mik­ill meiri­hluti fyrir því sam­kvæmt mæl­ingu að þjóðin fái sann­gjarnan arð af sjáv­ar­auð­lind­inni,“ sagði hann og spurði Bjarna hvort aukin skatt­lagn­ing á ofur­hagnað í sjáv­ar­út­vegi hefði verið rædd form­lega við rík­is­stjórn­ar­borðið.

„Hvernig hugn­ast ráð­herra yfir höfuð þessar hug­myndir félaga síns í rík­is­stjórn? Og getum við átt von á því að rík­is­stjórnin leggi til ann­að­hvort slíka skatt­lagn­ingu ofur­hagn­aðar eða jafn­vel hækkun á álögum í formi veiði­gjalda?“ spurði hann.

Ríkið ekki með neina sérstaka skattlagningu á ofurhagnað

Bjarni svar­aði og sagði að spurt væri um stórt mál sem varð­aði í raun og veru fisk­veiði­stjórn­ar­kerfið og gjald­töku vegna aðgangs að tak­mark­aðri auð­lind.

„Við erum að fara þá leið í dag að vera með eitt gjald, reyndar breyti­legt eftir því hvort við erum að tala um upp­sjáv­ar­veiðar eða bol­fisk­veiðar, óháð stærð útgerðar. Og hérna kemur vanda­málið: Ef við viljum hækka veiði­gjaldið fyrir það að vera með stóra útgerð og það gengur þvert yfir alla útgerð­ar­flokka þá munu minni aðil­arnir þurfa að svitna. Þeir munu líða fyrir það að njóta ekki hag­kvæmni stærð­ar­innar.

Þetta sáum við mjög vel á sínum tíma þegar að fjár­fest­ing stöðv­að­ist í útgerð á Íslandi í tíð Jóhönnu-stjórn­ar­innar. Það var farið mjög bratt í hækk­anir á veiði­gjöldum og það stöðv­að­ist öll fjár­fest­ing í grein­inni. Í dag höfum við reglu sem tekur um það bil þriðj­ung­inn af veiði­ferð­inni eða afkomu hverrar veiði­ferðar og skilar því í veiði­gjald til rík­is­ins. En við erum ekki með neina sér­staka skatt­lagn­ingu á ofur­hagnað eins og hérna er komið inn á,“ sagði hann.

Þá sagð­ist hann þurfa betri upp­lýs­ingar um það hvað átt væri við þegar menn væru að tala um ofur­hagnað og að skatt­leggja hann sér­stak­lega.

„Er það þegar afkoman er orðin eitt­hvert hlut­fall af veltu? Ég átta mig ekki alveg á hvað er verið að tala um hérna. Ég held hins vegar að eftir því sem við viljum gera meiri kröfu um að fá hærri hlut­deild, sem sagt auð­lind­ar­innar, til rík­is­ins, þá muni krafan verða sú að útgerðin geti stækkað meira og notið meiri hag­kvæmni stærð­ar­innar, sem mun síðan birt­ast okkur stjórn­mála­mönn­unum sem kvótaflótti hér og hvar og færri og færri smáir og milli­stórir aðilar geta lifað af við þær aðstæður vegna þess að við höfum sett eitt í for­gang, sem er hámörkun hagn­aðar í grein­inni,“ sagði hann í lok svars­ins.

„Þá er það skýrt“ – Bjarni ekki sammála Sigurði Inga

Logi sagði í fram­hald­inu að hægt væri að útfæra þetta með ýmsum hætti, eftir ólíkri stærð útgerða.

„En þetta voru tvær mín­útur til að svara: Nei, hann er ekki sam­mála for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þá er það skýrt,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Þá vildi Logi benda á að Brim hefði hagn­ast um 11,3 millj­arða á síð­asta ári og borgað 900 millj­ónir í veiði­gjöld. Brim hefði enn­fremur borgað sér 4 millj­arða í arð. Hann vildi nefna þetta vegna þess að ráð­herr­ann virt­ist „vera í ein­hverjum vafa um“ hvað ofur­hagn­aður væri. Ráð­herr­ann væri „vænt­an­lega að búa til ein­hverja skil­grein­ingu“ um að það væri teygj­an­legt hug­tak.

„Að sama skapi er Síld­ar­vinnslan með 11 millj­arða hagnað, borgar 531 milljón í veiði­gjöldum en ætlar að borga 3,4 millj­arða í arð. Við vitum að veiði­gjöld standa ekki einu sinni undir eft­ir­liti og utan­um­haldi um auð­lind­ina. Vísandi í þessar tölur, finnst hæst­virtum fjár­mála­ráð­herra að þessi tvö fyr­ir­tæki séu aflögu­fær?“ spurði hann.

Ættu öll fyrirtæki að borga skatta eftir stærð?

Bjarni svar­aði í annað sinn og spurði af hverju Logi legði ekki til að fyr­ir­tækin almennt í land­inu borg­uðu skatta eftir stærð.

„Eða er það bara í útgerð­inni sem menn eiga að borga skatta eftir stærð? Ég átta mig ekki alveg á hug­mynda­fræð­inni sem er hérna að baki. Tel ég að hægt sé að breyta veiði­gjalda­kerf­inu? Já, ég tal­aði til dæmis um það fyrir kosn­ingar hvort við ættum ekki að velta því fyrir okkur að skoða, frekar en að fara dýpra inn í veiði­gjalda­töku af útgerð­ar­að­ilum á Íslandi, að nota sér­stakan tekju­skatt sem væru þá skila­boð til útgerð­ar­að­ila á Íslandi að þeir ættu að reyna að gera sem best, við myndum taka okkar skerf af hagn­að­inum,“ sagði hann.

Varðandi þær tölur sem Logi nefndi þá sagði Bjarni að Logi vildi endi­lega setja þær í umræð­una „alger­lega án til­lits“ til fjár­bind­ingar og veltu.

„Hvernig væri að tala ein­hvern tím­ann um hagnað sem hlut­fall af veltu? Hvernig væri að við­ur­kenna það að þegar menn greiða sér arð koma 22 pró­sent í skatt til rík­is­ins? Hvernig væri að minn­ast á það að 20 pró­sent af hagn­að­inum koma til rík­is­ins? Það er ekki bara veiði­gjaldið sem skilar sér til rík­is­ins heldur líka skattur af launum, það skilar sér trygg­inga­gjald og skattsporið er ekki, eins og hátt­virtur þing­maður virð­ist halda, 900 millj­ónir þegar menn skila 11 millj­arða hagn­aði,“ sagði hann að lokum.

Logi kall­aði fram í í lok ræðu ráð­herr­ans að hann ætti að halda hana fyrir for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurð Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár