Fiskistofa fái heimildir til að beita þá sem trassa skýrsluskil 30.000 króna dagsektum

Hægt verður að beita þá útgerð­ar­að­ila sem ekki skila vigtar- og ráð­stöf­un­ar­skýrslum til Fiski­stofu 30 þús­und króna dag­sektum, sem geta að hámarki orðið 1,5 millj­ónir, sam­kvæmt nýju frum­varpi mat­væla­ráð­herra.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur lagt fram stjórn­ar­frum­varp um breyt­ingar á ýmsum lögum á sviði fisk­veiði­stjórnar, sem hefur það meðal ann­ars að mark­miði að styrkja eft­ir­lit Fiski­stofu.

Í frum­varp­inu, sem dreift var á Alþingi í gær, er kveðið á um að Fiski­stofa fái í ákveðnum til­vikum heim­ild til að setja á dag­sektir á þá sem van­rækja að veita stofn­un­inni upp­lýs­ingar sem við­kom­andi ber að veita. Þessar sektir hljóða upp á 30 þús­und krónur fyrir hvern byrj­aðan dag og geta hæstar orðið 1,5 millj­ónir króna, sem jafn­gildir 50 dag­sekt­ar­dögum.

Samkvæmt frum­varp­inu yrði hægt að leggja þessar sektir á þá sem trassa það að skila Fiski­stofu vigtar- og ráð­stöf­un­ar­skýrslum og sér­stak­lega er hnykkt á því að þessar sektir falli ekki niður þátt fyrir að upp­lýs­ing­unum sé skilað inn um síðir.

Með frum­varp­inu stendur einnig til að auka gagn­sæi í störfum Fiski­stofu, með því að mæla skýrt fyrir um heim­ild Fiski­stofu til að birta opin­ber­lega ákvarð­anir um svipt­ingu veiði­leyfa og aft­ur­köllun vigt­un­ar­leyfa.

[adspot]

„Miðar þetta að því að auka enn frekar gagn­sæi í störfum Fiski­stofu sem og fyr­ir­sjá­an­leika fyrir þá sem starfa í grein­inni og veita bæði þeim og Fiski­stofu til­hlýði­legt aðhald,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Efldar heimildir til rafræns eftirlits

Frum­varpið felur að auki í sér laga­breyt­ingar sem miða að því að styrkja heim­ildir Fiski­stofu til raf­ræns eft­ir­lits. Þannig er lagt til að „eft­ir­lits­mönnum Fiski­stofu verði heim­ill aðgangur að upp­lýs­ingum sem verða til við raf­ræna vöktun á lönd­un­ar­höfnum í þeim til­gangi að hafa eft­ir­lit með löndun afla“ og er þess getið að við eft­ir­litið þurfi að huga að lögum um per­sónu­vernd og gæta þess að eft­ir­lit sé í sam­ræmi við til­gang heim­ild­ar­innar, að teknu til­liti til með­al­hófs.

Einnig eru lagðar til breyt­ingar á lögum um Fiski­stofu, sem miða að því að veita Fiski­stofu heim­ild til raf­ræns eft­ir­lits og heim­ild til vinnslu upp­lýs­inga. Að auki er lagt til að sett verði bráða­birgða­á­kvæði sem myndu „heim­ila Fiski­stofu að fara í sam­starf við útgerð­ar­að­ila um notkun mynda­véla um borð í fiski­skipum í eft­ir­lits­skyni.“

„Rafrænt eft­ir­lit með mynda­vélum um borð í fisk­veiði­skipum til stuðn­ings við hefð­bundið eft­ir­lit með fisk­veiðum er kostn­að­ar­m­inna auk þess sem slík tæki til eft­ir­lits eru lík­leg til að draga úr brott­kasti vegna fæl­ing­ar­máttar slíks eft­ir­lits,“ segir um þetta atriði, í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár