Ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi slapp undan þvingunum – Ísland sagt hafa beitt sér

Einn rík­asti maður Hvíta-Rúss­lands, og náinn banda­maður for­seta lands­ins, er líka kjör­ræð­is­maður Íslands þar í landi og á í miklum við­skiptum við íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Hann hefur átt að lenda á þving­un­ar­listum ESB en alltaf sloppið.

Aleksander Moshensky, kjörræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi.
Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi. Mynd: bsu.by

Íslensk stjórn­völd eru sögð hafa beitt sér gegn því að Evr­ópu­sam­bandið (ESB) beitti Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands í Hvíta-Rúss­landi, við­skipta­þving­unum. Þetta kemur fram í ítar­legri úttekt á mál­inu í Stund­inni í dag.

Mos­hen­sky þessi er einn umsvifa­mesti við­skipta­jöfur Hvíta- Rúss­lands og hefur auk þess verið kjör­ræð­is­maður Íslands þar í landi frá árinu 2007. Hann er tal­inn mjög hand­gengur Aleksander Lukashenko, for­seta lands­ins, og hefur hagn­ast gríð­ar­lega í einu mið­stýrð­asta efna­hags­kerfi Evrópu, sem byggir mjög á nánu sam­bandi við ráða­menn. Veldi hans veltir um 220 millj­örðum króna á ári. Fyrir vikið er Mos­hen­sky oft kall­aður„veski Lukashen­kos“.

Á meðal þeirra sem Mos­hen­sky stundar við­skipti við eru íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Hann kaupir mikið magn sjáv­ar­af­urða héðan, sér­stak­lega loðnu, síld og mak­ríl, og hags­munir íslenskra útgerða í við­skiptum við hann hlaupa á millj­örðum króna. Þau við­skipti eru meðal ann­ars við Vinnslu­stöð­ina í Vest­manna­eyjum en í Stund­inni segir að náin vin­átta hafi skap­ast milli Mos­hen­sky og for­stjóra Vinnslu­stöðv­ar­innar, Sig­ur­geirs Brynjars Krist­geirs­sonar.

Ítrekað sloppið

Í umfjöll­unar Stund­ar­innar kemur fram að nafn Mos­hen­sky hafi ítrekað verið á lista yfir þá sem Evr­ópu­sam­bandið hafi ætlað að setja á lista yfir fólk sem refsi­að­gerðir nái til, en að það hafi ætið verið fjar­lægt skömmu áður en list­arnir voru form­lega sam­þykktir. Það hafi gerst árið 2012, þegar sam­bandið ætl­aði að koma í veg fyrir að auð­menn sem höfðu hagn­ast í skjóli Lukashenko fengu að stunda við­skipti innan þess. Sjö nöfn voru á upp­haf­lega list­anum en tvö sluppu af honum fyrir form­lega sam­þykkt. Annað þeirra er Alex­ander Mos­hen­sky.

[adspot]Eftir for­seta­kosn­ing­arnar í Hvíta-Rúss­landi árið 2020, sem fjöldi þjóða, meðal ann­ars Ísland, neita að við­ur­kenna að hafi verið lög­mætar, var aftur tek­inn saman listi innan Evr­ópu­sam­bands­ins. og aftur var Mos­hen­sky á honum í upp­hafi, en ekki þegar end­an­legur listi var sam­þykktur.

Í maí 2021 kastað­ist enn í kekki í sam­skiptum Lukashenko við umheim­inn þegar far­þega­flug­vél Ryanair var skipað að lenda í land­inu af her­þotum vegna þess að blaða­maður sem hafði gagn­rýnt for­set­ann var um borð. Aftur átti að herða þving­anir gagn­vart ein­stak­lingum sem veittu Lukashenko fjár­hags­legan styrk, aftur átti Mos­hen­sky að vera á honum en aftur slapp hann við það á end­anum.

Í Stund­inni er haft eftir heim­ild­ar­mönnum að þar hafi hags­muna­gæsla íslenskra stjórn­valda fyrir hönd Mos­hen­sky „vegið þungt“. Þar er meðal ann­ars vitnað í umfjöllun dag­blaðs­ins Nas­havina sem vís­aði í óstað­festar heim­ildir „þess efnis að Mos­hen­sky hefði ræst út og notið aðstoðar íslenskra stjórn­valda til þess að koma sér undan því að lenda í hörðum refsi­að­gerðum ESB“.

Íslensk stjórnvöld sögð hafa beitt sér

Í Stund­inni er vitnað í sam­töl við ein­stak­linga innan íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unnar sem lýstu því „hvernig íslenska sendi­ráðið í Brussel hefði fylgst náið með allri umræðu um mögu­legar við­skipta­þving­anir gegn valda­mönnum í Hvíta-Rúss­landi ef vera kynni að Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands og mik­il­vægur við­skipta­vinur íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, ætti á hættu að lenda í sigti ESB. Sendi­ráðið hafi svo einnig haft milli­göngu um að þrýsta á að Mos­hen­sky yrði hlíft“.

Sendi­herra Íslands í Brussel, Kristján Andri Stef­áns­son, neit­aði að svara fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um með hvaða hætti hann eða aðrir emb­ætt­is­menn hefðu beitt sér fyrir hönd Mos­hen­sky og vís­aði á utan­rík­is­ráðu­neytið.

Í skrif­legu svari frá ráðu­neyt­inu til Stund­ar­innar sagði að í lok árs 2020 hefði verið brugð­ist við orðrómi um að Mos­hen­sky kynni að verða á þving­un­ar­lista Evr­ópu­sam­bands­ins. „Íslensk stjórn­völd leit­uðu eftir frek­ari upp­lýs­ingum meðal sam­starfs­ríkja innan ESB og mið­aði eft­ir­grennslan stjórn­valda að því að upp­lýsa hvort að til stæði að setja ræð­is­mann­inn á lista, og ef svo væri, á hvaða for­sendum. Þá var leit­ast við að skilja hvaða áhrif það mundi hafa á útflutn­ing íslenskra fyr­ir­tækja til Belarús ef þving­un­ar­að­gerðir beindust að honum eða fyr­ir­tækjum hans. Var þetta gert í því skyni að hafa svig­rúm til að bregð­ast við ef svo væri enda hefði vera hans á slíkum lista haft afleið­ingar fyrir þjón­ustu hans í þágu íslenskra hags­muna.“

Ráðu­neytið svar­aði því ekki hvort sam­töl íslenskra stjórn­valda við Evr­ópu­sam­bandið hefðu skilað því að Mos­hen­sky komst hjá því að lenda á end­an­legum þving­un­ar­lista Evr­ópu­sam­bands­ins.

Þórdís Kolbrún sökuð um hræsni

Í for­seta­kosn­ing­unum 2020 ákvað Svetlana Tsik­hanovskaya að bjóða sig fram til for­seta gegn Lukashenko í mót­mæla­skyni við hand­töku eig­in­manns síns, sem hafði áður verið for­seta­fram­bjóð­andi. Hún flúði síðar land og hefur farið um heim­inn til að afla stuðn­ings við bar­áttu sína fyrir frjáls­ara og lýð­ræð­is­legra Hvíta-Rúss­landi, meðal ann­ars á Íslandi. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birti til að mynda mynd af sér og Tsik­hanovskayu, á Twitter í síð­asta mán­uði þar sem stóð: „Átti frá­bæran fund með vin­konu minni Tsik­hanovskayu á föstu­dags­kvöldið í München. Við stöndum með lýð­ræði og mann­rétt­indum til handa íbúum Hvíta-Rúss­lands.“

Í Stund­inni er haft eftir Serge Kharytonau, sér­fræð­ingi hjá iSans og fyrr­ver­andi blaða­manni í Hvíta-Rúss­landi, að almennt þyki afstaða utan­rík­is­ráð­herr­ans bera vott hræsni í ljósi þess að einn helsti stuðn­ings­maður Lukashen­kos sé kjör­ræð­is­maður Íslands í land­inu og standi í miklum við­skiptum við íslensk fyr­ir­tæki. Þórdís sagði í skrif­legu svari til Stund­ar­innar að í sam­tölum sínum við Tik­hanovskayu hafi hún upp­lýst um að Íslandi sé ekki kunn­ugt um mann­rétt­inda­brot eða skoð­ana­kúgun innan fyr­ir­tækja Mos­hen­sky. „Þá er rétt að taka fram að það hefur verið mat ráðu­neyt­is­ins að það sé orðum aukið að kjör­ræð­is­maður Íslands sé mjög náinn banda­maður Lúk­asjenkós og því hefur ekki þótt vera til­efni til þess að end­ur­skoða stöðu hans hvað sem síðar kann að verða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár