Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnti frumvarp um bráðabirgðaleyfi fyrir fiskeldi

Mikil ólga hefur verið í kringum málið síðan starfs- og rekstra­leyfi Fjarð­ar­lax og Arnarlax fyrir fisk­eldi í Pat­reks­firði og Tálkna­firði var ógilt.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi í hádeg­inu frum­varp breyt­ingar á lögum um rekstr­ar­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eldi.

[links]Þetta frum­varp er lagt fram eftir að Úrskurð­ar­nefnd auð­linda- og umhverf­is­mál felldi úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­unar frá 22. des­em­ber síð­ast­liðnum um að veita Fjarð­ar­lax ehf. rekstr­ar­leyfi fyrir 10.700 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í opnum sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði.

For­svars­menn Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarðar fund­uðu með for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­ana síð­ast­lið­inn laug­ar­dag og gerðu þeim grein fyrir alvar­leika máls­ins. Sveit­ar­fé­lögin tvö eru með tæp­lega 1300 íbúa og talið er að um 165 íbúar vinni fyrir fyr­ir­tækin á svæð­inu beint auk fjölda verk­taka og þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem tengj­ast fisk­eldi. Talið er að ef ekki er brugð­ist við strax við að leysa úr þessum vanda þá er ljóst að þetta mun hafa afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir sam­fé­lagið í heild sinn­i.

Um helg­ina lýstu ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar áhyggjum af úrskurði nefnd­ar­innar. „Við upp­lýstum þau um að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og umhverf­is­ráð­herra hafa verið með til skoð­unar hvaða leiðir eru færar til þess að gæta með­al­hófs í þessu máli og öðrum, þannig að fyr­ir­tæki geti almennt fengið sann­gjarnan frest til að bæta úr þeim ann­mörkum sem koma fram í kæru­ferli og fag­lega sé staðið að öllum mál­um. Það er von mín að far­sæl lausn finn­ist á þessu máli sem allra fyrst.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri Grænna, meðal ann­ars á Face­book-síðu sinni í gær.

Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins greindi meðal ann­ars frá því á laug­ar­dag að óvissan sem skap­að­ist á Vest­fjörðum í kjöl­far úrskurð­ar­ins væri með öllu óvið­un­andi. „Hér verður að bregð­ast hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagn­vart stjórn­völd­um,“ sagði hann og að tryggja yrði að sann­gjarnar reglur giltu um rétt til að bæta úr ágöllum í leyf­is­um­sókn­ar­ferli, ef slíku væri til að dreifa, í þessu máli og til fram­búð­ar.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins kall­aði eftir lausnum og rifj­aði upp á Face­book-síðu sinni í gær hvernig við­var­andi fólks­fækkun á sunn­an­verðum Vest­fjörðum til árs­ins 2012 hefði snú­ist við vegna upp­bygg­ingar fisk­eld­is. Sömu­leiðis hefði íbúa­þróun snú­ist við á norð­an­verðum Vest­fjörðum í fyrra vegna fisk­eld­is. Hann sagði að yfir 300 störf tengd­ust fisk­eld­inu fyrir vest­an. Auk þess störf­uðu tugir í Ölf­usi/Þor­láks­höfn. Þá hefði fisk­eldi haft jákvæð áhrif á byggða­þróun á sunn­an­verðum Aust­fjörð­um.

„Mik­il­vægi fisk­eldis í upp­bygg­ingu byggð­anna fyrir vestan og austan er stað­reynd og ætti ekki að vera ágrein­ings­mál. Það má því vera öllum ljóst að finna þarf skyn­sam­legar lausnir á núver­andi stöð­u,“ skrif­aði Sig­urður Ingi.

Nátt­úr­vernd­ar­sam­tök og veiði­rétt­ar­hafar hafa hins vegar varað við því að hróflað yrði við nið­ur­stöðum úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, segir í frétt RÚV í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár