Ákvörðun um rekstrarleyfi fyrir Arnarlax og Arctic Sea Farm felld úr gildi

Úrskurð­ar­nefnd auð­linda- og umhverf­is­mál úrskurð­aði í máli er varðar fisk­eldi í dag.

Úrskurð­ar­nefnd auð­linda- og umhverf­is­mál hefur fellt er úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­unar frá 22. des­em­ber 2017 um að veita Fjarð­ar­lax ehf. rekstr­ar­leyfi fyrir 10.700 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í opnum sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði.

Þetta kemur fram í vef nefnd­ar­innar í dag, en úrskurð­ur­inn hefur verið birtur.

Þá hefur einnig verið felld úr úr gildi ákvörðun Mat­væla­stofn­unar frá 22. des­em­ber 2017 um að veita Arctic Sea Farm rekstr­ar­leyfi fyrir 6.800 tonna árs­fram­leiðslu á laxi í opnum sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði.

Málin sem komu inn á borð nefnd­ar­innar byggja á kæru sem saman stóðu að Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Laxinn lifi, Akurholt ehf. og Geiteyri ehf., eig­endur Haf­fjarð­arár í Hnappa­dal, Ari P. Wendel, eig­andi Kirkju­bóls í Arn­ar­firði og veiði­rétt­ar­hafi í Fífu­staða­dal, Víðir Hólm Guð­bjarts­son, eig­andi Grænu­hlíðar í Arn­ar­firði og veiði­rétt­ar­hafi í Bakkadal, Fluga og net ehf., rekstr­ar­fé­lag Vatns­dalsár á Barða­strönd, Atli Árdal Ólafsson, eig­andi hluta veiði­réttar í Hvanna­dalsá, Langa­dalsá og Þverá í inn­an­verðu Ísa­fjarð­ar­djúpi og Varpland ehf., eig­andi hluta veiði­réttar í Langa­dalsá og Hvanna­dalsá, og veiði­fé­lag Laxár á Ásum.

Í úrskurð­ar­orð­unum segir meðal ann­ars, að mat á umhverf­is­á­hrifum í tengslum við fisk­eldið í opnum sjó­kvíum hafi ekki verið fram­kvæmt nægi­lega nákvæm­lega.

„Það er ekki loku fyrir það skotið að ein­hverjir þeirra val­kosta sem kærendur hafa nefnt komi ekki til greina í skiln­ingi 8. og 9. gr. laga nr. 106/2000. Með hlið­sjón af þeim laga- og reglu­gerð­ar­á­kvæðum sem áður hafa verið rakin geta mis­mun­andi val­kostir t.d. falist í mis­mun­andi stað­setn­ingu, umfangi, til­högun, tækni­legri útfærslu o.s.frv. er afar ólík­legt að ekki finn­ist a.m.k. einn annar val­kostur sem hægt er að leggja fram til mats svo fram­ar­lega sem fram­kvæmd­ar­að­ili sinnir þeirri skyldu sinni að gera víð­tæka könnun á þeim kostum sem til greina geta komið. Verður ekki við það unað í mati á umhverf­is­á­hrifum að ein­ungis séu metin umhverf­is­á­hrif eins val­kosts. Fer enda þá ekki fram sá nauð­syn­legi sam­an­burður umhverf­is­á­hrifa fleiri kosta sem lög­bundin krafa er gerð um, allt í þeim til­gangi að leyf­is­veit­andi geti tekið upp­lýsta afstöðu að fullrann­sök­uðu máli til þess að meta hvort eða með hvaða hætti hægt sé að leyfa fram­kvæmd þannig að skil­yrði laga séu upp­fyllt. Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á í mati á umhverf­is­á­hrifum að eng­inn annar mögu­legur fram­kvæmd­ar­kostur hafi getað komið til greina í skiln­ingi 2. málsl. 1. mgr. 8. gr. og 4. málsl. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 106/2000 verður að telja það veru­legan ágalla á mat­inu að engum öðrum kosti var lýst að öðru leyti en vísað væri til þess að núll­kostur hefði engin áhrif í för með sér.

Að teknu til­liti til nefnds ágalla og mark­miða þeirra sem að er stefnt með mati á umhverf­is­á­hrifum gat mats­skýrsla fram­kvæmd­ar­að­ila og álit Skipu­lags­stofn­unar á henni ekki verið lög­mætur grund­völlur fyrir ákvörðun um veit­ingu leyfa til fram­kvæmda, s.s. þess rekstr­ar­leyfis sem hér er deilt um. Bar Mat­væla­stofnun, sem því stjórn­valdi sem hið kærða leyfi veitti, skylda til að tryggja að málið væri nægi­lega upp­lýst, sbr. 10. gr. stjórn­sýslu­laga, en í því felst að gæta að því að lög­bundið álit Skipu­lags­stofn­unar sé nægi­lega traustur grund­völlur leyf­is­veit­ingar. Hvílir og sú skylda á Mat­væla­stofnun skv. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 71/2008 að gæta þess við útgáfu rekstr­ar­leyfis að full­nægt sé m.a. ákvæðum laga um mat á umhverf­is­á­hrifum, eins og áður hefur komið fram.

Með hlið­sjón af fram­an­greindu verður að telja hina kærðu leyf­is­veit­ingu slíkum ann­mörkum háða að varði ógild­ingu rekstr­ar­leyf­is­ins.“

Í nefnd­inni sem úrskurðar eiga sæti Nanna Magna­dóttir for­stöðu­maður, Ómar Stef­áns­son vara­for­maður, Aðal­heiður Jóhanns­dóttir pró­fessor, Ásgeir Magn­ús­son dóm­stjóri og Geir Oddsson umhverfis- og auð­linda­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár