Ekki verið að taka fram fyrir hendurnar á Úrskurðarnefndinni

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra telur að með frum­varpi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sé ekki verið að taka fram fyrir hend­urnar á Úrskurð­ar­nefnd umhverfi- og auð­linda­mála heldur sé verið að búa til rými til að vinna úr þeim ann­mörkum sem hún benti á.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra telur að úrskurðir Úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála séu mik­il­vægir því þeir dragi fram nauð­syn þess að skoða fleiri en einn kost líkt og lögin um mat á umhverf­is­á­hrifum kveða á um. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í gær­kvöldi.

[links]Hann telur aftur á móti að ekki sé verið að taka fram fyrir hend­urnar á nefnd­inni með frum­varpi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en sam­kvæmt því mun verða mögu­legt að veita rekstr­ar­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i. Einungis sé verið að búa til rými til að vinna úr þeim ann­mörkum sem nefndin benti á en ekki fella úrskurð­ina úr gildi.

Frum­varpið var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær en í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að því sé ætlað að lag­færa ­með almennum hætti ann­marka á lögum um fisk­eldi til fram­tíð­ar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lögum sé eina úrræði Mat­væla­stofn­unar, í þeim til­vikum sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi, að stöðva starf­semi henn­ar.

Úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála felldi úr gildi rekstr­ar­leyfi og starfs­leyfi Fjarð­ar­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­ar­á­hrifa. Sam­tals voru leyfin upp á um 17.500 tonn en sveit­ar­fé­lögin á starfs­svæði fyr­ir­tækj­anna hafa mót­mælt stöð­unni sem komin er upp og kraf­ist aðgerða.

Drög að frum­varp­inu voru sem sagt sam­þykkt á auka­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í hádeg­inu í gær og kynnt hinum stjórn­mála­flokk­unum síð­degis í gær. Fyr­ir­tækj­unum Arctic Fis­h og Fjarða­laxi er því gef­inn frestur til að fara yfir umhverf­is­mat fyr­ir­tækj­anna til að tryggja að umsókn þeirra um aukið lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum verði sam­kvæmt lögum og regl­um. Aðspurður segir Krist­ján Þór frum­varpið ekki fara á svig við úrskurð nefnd­ar­innar um að fella starfs­leyfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna tveggja úr gildi. Hann segir þá ákvörðun vera sjálf­stæða og frum­varpið ekki snerta hennar úrskurð. Frum­varpið flýti ein­fald­lega fyrir ferli máls­ins en bið eftir úrskurði dóm­stóla væri bæði kostn­að­ar­söm og tíma­frek.

Verðum að vera meðvituð um áhættuna

Guð­mundur Ingi segir jafn­framt á Facebook-síðu sinni að sjó­kvía­eldi sé umdeilt vegna umhverf­is­á­hrifa, ekki síst vegna hætt­unnar á slysa­slepp­ingum og erfða­blöndun við nátt­úru­lega laxa­stofna. Fréttir hafi borist hér á landi af eld­is­laxi sem veiðst hefur langt frá sjó­kvía­eldi og stað­fest sé að erfða­blöndun við villtan lax hafi þegar orðið á Vest­fjörðum.

Hann greinir frá því að lang­tíma­verk­efnið sé skýrt. „Að sjá til þess að íslenskt fisk­eldi þró­ist í átt að því örugg­asta sem hægt er út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum, hvort sem varðar laxa­lús, erfða­blöndun, úrgang frá eldi eða annað. Að mínu mati þarf að styðja betur við þróun fleiri aðferða í fisk­eldi en ekki ein­ungis að vera með sjó­kvía­eldi í opnum kvíum. Það er ekki bara mik­il­vægt fyrir nátt­úr­una heldur einnig byggðir lands­ins. Við verðum að vera með­vituð um áhætt­una sem við tökum gagn­vart nátt­úru lands­ins og draga úr umhverf­is­á­hrifum lax­eldis með öllum til­tækum leiðum.

En framundan er líka skamm­tíma­verk­efni sem til­komið er vegna nýlegra úrskurða frá úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála. Það snýst um að vinna úr þeim ann­mörkum á umhverf­is­mati sem bent var á í úrskurð­unum og snéri að því að ekki voru bornir saman val­kostir um hvaða aðferðir eða umfang væri í fisk­eld­inu. Mik­il­vægt er að bæta úr þeim ann­mörkum. Hluti umræð­unnar um þessa úrskurði snýr að sann­girnis- og með­al­hófs­sjón­ar­miðum, þ.e.a.s. að fyr­ir­tæki geti fengið hæfi­legt rými og sann­gjarnan frest til að bæta úr ann­mörkum á leyfum eða umhverf­is­mati sem að baki leyf­unum liggja án þess að það koll­varpi starf­semi þeirra,“ segir hann í stöðu­upp­færslu sinni.

Lögin um fiskeldi heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Guð­mundur Ingi segir lögin um fisk­eldi heyra undir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Samkvæmt þeim sé Mat­væla­stofnun gert skylt að stöðva starf­semi fisk­eldis ef rekstr­ar­leyfi fellur úr gildi. Í lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir sem meðal ann­ars kveða á um útgáfu starfs­leyfa fyrir fisk­eldi og heyra undir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sé á hinn bóg­inn ekki skylt að stöðva starf­sem­ina. „Þau til­vik geta komið upp að rekstr­ar­leyfi í fisk­eldi séu ógilt vegna ann­marka t.d. á umhverf­is­mati og hefur verið bent á að þá séu engin úrræði til að gæta með­al­hófs á meðan unnið er úr slíkum ann­mörkum. Það er þetta sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur verið með til skoð­unar,“ segir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Hann ítrekar að lokum að til fram­tíðar litið verði Íslend­ingar að ná breið­ari sátt um lax­eldi, bæði út frá umhverfis- og byggða­sjón­ar­miðum. „Þar tel ég skipta miklu máli að þróa betur aðferðir sem draga úr eða tryggja að ekki verði erfða­blöndun við villta laxa­stofna á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár