Icelandair ber sjálft ábyrgð á að veita nægjanlegar upplýsingar

Páll Harð­ar­son segir að það hafi ekki komið til greina að stöðva við­skipti með bréf í Icelandair lengur en gert var. Það sé staðlað verk­lag að fara yfir öll við­skipti sem eigi sér stað í aðdrag­anda mik­illa tíð­inda.

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, segir að það sé á ábyrgð Icelandair að veita nægj­an­lega góðar upp­lýs­ingar um kaup félags­ins á WOW air. Sé inn­herj­a­upp­lýs­ingum haldið eftir, líkt og heim­ild er til við ákveðnar kring­um­stæður, þá verði að tryggja að trún­aðar sé gætt og koma í veg fyrir að þær ber­ist annað.

Þetta er á meðal þess sem hann segir í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut. Stiklu úr þætt­inum er hægt að sjá hér að neð­an.

Tilkynnt var um kaup Icelandair á WOW air í byrjun nóv­em­ber. Við það hækk­aði hluta­bréfa­verð í Icelandair um tugi pró­senta á nokkrum klukku­tímum. Miklar vanga­veltur hafa verið um það á mark­aði hvort að inn­herj­a­upp­lýs­ingar um að kaupin væru fyr­ir­huguð hefðu lekið út áður en að til­kynnt var um þau auk þess sem upp­lýs­ingar sem veittar voru í til­kynn­ingu til Kaup­hallar voru að mörgu leyti tak­mark­aðar og erfitt að átta sig til að mynda á þeim fyr­ir­vörum sem settir voru fyrir kaup­unum.

[adspot]Páll segir að það sé staðlað verk­lag að fara yfir alla upp­lýs­inga­gjöf og öll við­skipti í aðdrag­anda mik­illa tíð­inda á mark­aði, eins og vænt yfir­taka Icelandair á WOW air var sann­ar­lega. Það sé hins vegar fyrst og fremst Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ð kanna hvort að ein­hverjar inn­herj­a­upp­lýs­ingar hafi lekið út. Það vakti athygli að eft­ir­litið sendi út dreifi­bréf til ráðu­neyta og til­tek­inna stofn­ana þar sem athygli er vakin á gild­andi lögum og reglum sem gilda um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga hjá stjórn­völdum nokkrum dögum eftir að yfir­takan á WOW air var til­kynnt. Til­gangur dreifi­bréfs­ins var að ítreka „mik­il­vægi þess að stjórn­völd séu með­vituð um skyldur sínar sam­kvæmt lögum og reglum, komi til þess að þau með­höndli inn­herj­a­upp­lýs­ingar.“

[links]Páll sagði að það væri full ástæða til að skerpa á þessum atriðum og að mik­il­vægt væri að menn fari vel með þessar upp­lýs­ingar. Hins vegar verði að horfa á að það hafi verið margt í gangi hjá Icelandair í aðdrag­anda til­kynn­ing­ar­innar sem snerti ekki WOW air. „Það er upp­gjör, það er til­kynn­ing um sölu­ferli hót­el­anna svo koma flutn­ings­tölur og fleira. Við auð­vitað beinum því til félags­ins sjálfs að veita allar þær upp­lýs­ingar sem það getur veitt.“

Páll segir að það hafi aldrei komið til greina að stöðva við­skiptin með bréf í lengri tíma en gert var þann dag sem til­kynnt var um vænta yfir­töku. „Það er algjört prinsipp hjá okkur að stöðva við­skipti í eins stuttan tíma og hægt er. Það er ein­fald­lega svo mikil vernd í því fyrir þá sem eiga hluta­bréf í skráðum félögum að vita af því að þeir geti ávallt selt sinn hlut. Þetta er svo mik­il­vægur hluti af rétt­indum hlut­hafa. Að okkar mati var engin for­senda fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár