Lífeyrissjóðirnir of stórir eigendur á hlutabréfamarkaði

For­stjóri Kaup­hallar Íslands vill að skatta­legir hvatar verði inn­leiddir til að auka áhuga almenn­ings á því að fjár­festa í hluta­bréfum. Eig­enda­hópur skráðra fyr­ir­tækja sé of eins­leitur eins og er.

Auðvitað er býsna mikið af fjár­magn­inu að fara í gegnum nokkra stóra líf­eyr­is­sjóði. Að mínu viti er það eig­in­lega orðið of mikið sem stýrt er af til þess að gera fáum aðilum.“

Þetta segir Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut.

Stiklu úr þætt­inum er hægt að sjá hér að neðan.

Páll seg­ist vilja taka það fram að hann sé þeirrar skoð­unar að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi að mörgu leyti staðið sig vel sem eig­endur að skráðum fyr­ir­tækjum á und­an­förnum árum. Það væri þó æski­legra að almenn­ingur hafi meira um það að segja beint hvert fjár­magnið úr þeim fer.

„Við í Kaup­höll­inni höfum því talað fyrir því að hluti við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar, ráð­stöfun hans í fjár­fest­ingar væri ákveðin af líf­eyr­is­þeg­anum sjálfum. Við sjáum enga hættu í því. Þegar þú ert í þeirri stöðu að fjórir líf­eyr­is­sjóðir eru kannski með þriðj­ung af mark­aðsvirð­inu í kaup­höll­inni þá held ég að menn sjái það að það gengur ekki upp til lengdar.“

[adspot]Að sögn Páls er ýmis­legt sem hefur orsakað það að ein­stak­lingar fjár­festa síður í hluta­bréfum. Þar skiptir meðal ann­ars máli að traust almenn­ings á mark­aðnum hrundi með hrun­inu. „Svo hefur hús­næð­is­mark­að­ur­inn verið eins og hann hefur verið, mikið fjár­magn farið þangað. Auðvitað hafa heim­ilin verið að byggja upp sína eign­ar­stöðu núna síð­ustu ár. Þannig að þetta mun breyt­ast líka.“

[links]Páll vill að það verði skoðað að end­ur­vekja skatta­lega hvata til að auka áhuga fólks á því að geyma sparn­að­inn sinn í hluta­bréfum. „Ég held að það væri athug­andi mjög að búa til svona hvata. Þá á ég fyrst og fremst við skatta­lega hvata, eins og voru hér á tíunda ára­tug síð­ust aldar. Og gerðu alveg gríð­ar­lega mikið. Hér er ég bara að tala um hóf­legar fjár­hæðir. Kannski 250 þús­und krónur á ein­stak­ling eða 500 þús­und á fjöl­skyldu sem hægt væri að fjár­festa og þá mögu­lega draga frá skatt­skyldum tekjum. Gegn því að við­kom­andi héldi fjár­magn­inu í skráðum hluta­bréfum í ákveð­inn tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár