Vill ríkisbankana og Landsvirkjun á hlutabréfamarkað

For­stjóri Kaup­hall­ar­innar kallar eftir því að Lands­bank­inn og Íslands­banki verði skráðir á markað. Við það muni hluta­bréfa­mark­aður ná þeirri stærð sem hann þarf. Hann vill líka að ríkið íhugi leiðir til að skrá Lands­virkjun.

„Nú svo geri ég mér vonir um, og held að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt, að bank­arnir, sem eru í eigu rík­is­ins, komi inn á mark­að­inn. Og ég held að þetta geti hrein­lega ráðið úrslitum um það að ná þessu mark­miði okkar að koma íslenska mark­að­inum okkar upp í flokk á meðal þess­ara bestu mark­aða í heimi[...]Því í raun og veru það sem fyrst og fremst stendur okkur fyrir þrifum til þess að kom­ast þangað er stærð mark­að­ar­ins.“

Þetta segir Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Páll seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að ef mark­aðsvirði félag­anna sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað yrði tvö­faldað, þannig að það kæmu um þús­und millj­arðar í við­bót af mark­aðsvirði inn á hann, þá væri íslenski mark­að­ur­inn kom­inn nán­ast alla leið í átt að ofan­greindu mark­miði. „Ef við lítum á mark­aðsvirði bank­anna þá gæti skrán­ing þeirra komið okkur vel áleiðis. Svo má nátt­úru­lega reikna með vexti þeirra fyr­ir­tækja sem þar fyrir eru. Þannig að við lítum mikið til skrán­ingu Íslands­banka og Lands­bank­ans. Og teljum að það væri ein­fald­lega gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir þróun þess­ara inn­viða,hluta­bréfa­mark­aðar, á næstu árum.“

[adspot]Hann seg­ist vilja að Kauphöll Íslands end­ur­spegli betur íslenskt efna­hags­líf.„Að stórum hluta vantar sjáv­ar­út­veg­inn þarna inn ennþá. Það vantar orku­fyr­ir­tækin. Og af þó nokkrum hluta ferða­þjón­ust­una líka.“

Þó seg­ist Páll skilja áhyggjur almenn­ings af því að með skrán­ingu orku­fyr­ir­tækja séu undir auð­lindir þjóðar, og því vilji margir fara var­lega. „Við höfum hins vegar bent á það að það eru fleiri en ein leið inn á markað.

[links]Ein leið sem hefur verið lítið rædd er að ríkið ein­fald­lega seldi B-hluta­bréf í t.d. Lands­virkjun sem bæru engan atkvæð­is­rétt.

Ríkið yrði að nokkru leyti leyst út úr sinni fjár­hags­legu áhættu en væru samt sem áður með tögl og haldir í fyr­ir­tæk­inu og réðu því alfarið. Ég held að þessi leið væri verð athug­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár