Notuðu olíu þegar hún var ódýrari árið 2016

Árið 2016 not­uðu flestar loðnu­bræðslur hér­lendis olíu í stað raf­magns, þar sem hún var ódýr­ari á þeim tíma. Fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar segir að bræðslur fyr­ir­tæk­is­ins myndu hins vegar ekki taka slíka ákvörðun núna.

Fiskimjölsverksmiðja SVN í Neskaupstað, eins og flestar aðrar fiskimjölsverksmiðjur landsins, keyrðu á olíu í upphafi árs 2016, þar sem það var hagkvæmara. Forstjóri SVN segir að það yrði ekki gert aftur.
Fiski­mjöls­verk­smiðja SVN í Nes­kaup­stað, eins og flestar aðrar fiski­mjöls­verk­smiðjur lands­ins, keyrðu á olíu í upp­hafi árs 2016, þar sem það var hag­kvæmara. For­stjóri SVN segir að það yrði ekki gert aftur. Mynd: Síldarvinnslan

Flestar fiski­mjöls­verk­smiðjur hér á landi not­uðu olíu í stað raf­magns til bræðslu á fyrstu mán­uðum árs­ins 2016 til að draga úr kostn­aði, þrátt fyrir að staðið hafði til boða að nota raf­magn. Samkvæmt Gunnþóri Ingva­syni, fram­kvæmda­stjóra Síld­ar­vinnsl­unnar, hafa verk­smiðjur í þeirra eigu ekki notað olíu síðan þá, þrátt fyrir að hún sé á köflum ódýr­ari en raf­orka.

Myndi ekki skipta í olíu aftur

Í sam­tali við Kjarnann segir Gunnþór verk­smiðjur fyr­ir­tæk­is­ins hafa notað olíu árið 2016, þar sem samn­ingar við Lands­virkjun voru í upp­námi og verið var að hækka taxt­ann á raf­magni, á sama tíma og olíu­verð voru lág.

„Menn fóru yfir í olíu að hluta en síðan var gert sam­komu­lag við Lands­virkjun og síðan hefur verið keyrt á raf­orku þegar hún hefur verið í boði. Þrátt fyrir að á köflum hafi olía verið hag­stæð­ari út frá fjár­hags­legum sjón­ar­miðum hefur ekki verið skipt yfir olíu, enda er raf­orkan endu­nýj­an­leg inn­lend orka,“ bætti hann við

Aðspurður hvort Síld­ar­vinnslan myndi aftur skipta yfir í olíu vegna fjár­hags­sjón­ar­miða þegar raf­magn er í boði svarar hann því neit­andi og segir fleiri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki í dag kjósa að sleppa olíu þegar mögu­legt er.

Notað sem rök gegn styrkingu kerfisins

Fram kemur í umsögn Orku nátt­úr­unnar (ON) um kerf­is­á­ætlun Lands­nets frá árinu 2017 að fiski­mjöls­verk­smiðjur hafi frekar kosið olíu heldur en raf­magn sem orku­gjafa til að bræða loðnu frá jan­úar til apríl árinu fyrr til að draga úr kostn­aði.

Ákvörðun verk­smiðj­anna um að nota olíu frekar en raf­magn þegar fyrri orku­kost­ur­inn var ódýr­ari var nefnd sem ein af ástæð­unum fyrir því að fjár­fest­ingar til að auka flutn­ings­getu til þeirra yrði ef til vill ekki arð­bær í umsögn ON. Hinar ástæð­urnar voru þær að orku­magnið sem þær not­uðu væri sveiflu­kennt og að tím­inn sem þær full­nýttu eigið afl væri stuttur.

Myndu væntanlega borga meira fyrir raforkuna

Samkvæmt ON er olía stað­göngu­vara raf­orku fyrir þessa not­endur og talin hag­stæð­ari kost­ur­inn ef verð hennar fer undir 80 Banda­ríkja­dali á hverja tunnu. „Kæmi slíkt til­felli upp mætti segja að styrk­ing kerfis hefði haft þær afleið­ingar að það stæði ónotað vegna mik­ils kostn­aðar,“ segir í umsögn­inni.

[adspot]

Olíuverð hefur verið undir 80 Banda­ríkja­dölum á síð­ustu sjö árum, ef frá eru taldir nokkrir dagar í lok októ­ber og byrjun nóv­em­ber í ár. Þessa stund­ina stendur alþjóð­legt verð á olíu í 70 dölum á tunnu, en það mæld­ist í kringum 100 dali á tunnu frá 2011 til 2014.

Þörf Lands­nets á að bjóða skerð­an­legan flutn­ing myndi hverfa ef raf­orku­flutn­ings­kerfið yrði styrkt til muna, sam­kvæmt umsögn ON. Hins vegar bætir stofn­unin við að fiski­mjöls­verk­smiðjur og aðrir sem hafa keypt skerð­an­legan flutn­ing á lægra verði yrðu þá vænt­an­lega að greiða fullt almennt verð fyrir flutn­ing­inn, sem auki hætt­una á að þær kjósi aftur að kynda ofn­ana sína með olíu í auknum mæli.

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, sagði í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í fyrra­dag að það blasi við að raf­væð­ing fiski­mjöls­verk­smiðj­anna séu ein­hver hag­kvæm­ustu orku­skipti sem mögu­leg eru. „Verk­smiðj­urnar eru að reyna að hætta brennslu tug­millj­óna lítra af olíu á hverri ver­tíð. Vissu­lega er breyti­leg orku­notkun þeirra áskorun, en hana má leysa og okkur ber skylda til þess að taka þátt í þeim orku­skiptum,“ bætir hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár