Dómar í markaðsmisnotkunarmálum hafa dregið línu í sandinn

For­stjóri Kaup­hall­ar­innar segir að það sé aldrei hægt að tryggja að ein­hver fari ekki yfir á rauðu ljósi þótt það sé bannað. Fjár­fest­inga­um­hverfið hér sé þó mun trygg­ara og með öðrum hætti en fyrir ára­tug síðan.

For­stjóri Kaup­hall­ar­innar segir að það sé aldrei hægt að tryggja að ein­hver fari ekki yfir á rauðu ljósi þótt það sé bannað. Fjár­fest­inga­um­hverfið hér sé þó mun trygg­ara og með öðrum hætti en fyrir ára­tug síðan. Dómar í stórum efna­hags­brota­málum hafi haft gríð­ar­legt gildi við að draga línu í sand­inn.

„Það hafa verið gerðar marg­vís­legar úrbætur. Auðvitað hefur fjár­mála­eft­ir­lit verið stór­eflt á þessum tíma og breyt­ingar gerðar á lagaum­hverf­inu sem ég held að séu mik­il­vægar. Svo hafa auð­vitað fallið dómar í mark­aðs­mis­notk­un­ar­málum sem ég held að hafi hafi haft gríð­ar­legt gildi. Þessir dómar hafa sagt okkur með óyggj­andi hætti hvað má og hvað má ekki og hverjar afleið­ing­arnar eru af því að fara út fyrir þá línu.“

Þetta segir Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Í þætt­inum ræðir Páll meðal ann­ars um hvernig hefur tek­ist til að end­ur­reisa íslenskan hluta­bréfa­markað síð­ast­lið­inn ára­tug, um dóma í mark­aðs­mis­notk­un­ar­málum, þar sem stjórn­endur og starfs­menn þriggja stærstu bank­anna hafa verið fundnir sekir um slíkt athæfi, og hvort við getum með vissu full­yrt að slík hegðun eigi sér ekki stað í dag.

Páll skrif­aði grein sem birt­ist á Kjarn­anum í apríl 2016 þar sem hann sagði m.a.: „ „Alvar­­leg lög­­brot voru fram­in. Afleitir við­­skipta­hættir kostuð­u gríð­­ar­­lega fjár­­muni og mikla þján­ingu. Stór­­kost­­leg mark­aðs­mis­­­notkun átti sér­ ­stað. Trú á mark­aðs­hag­­kerfið og hið frjálsa fram­­tak hefur beðið hnekki.“

[adspot]Aðspurður hvort traust Íslend­inga á mark­aðs­hag­kerfið og hið frjálsa fram­tak hafi verið end­ur­reist eftir hrunið, þar sem stór hluti mark­að­ar­ins þurrk­að­ist út, segir Páll að við séum á veg komin að því mark­miði. „En auð­vitað tekur þetta allt tíma. Þetta er þol­in­mæð­is­vinna að byggja upp traust. Ég á von á því að þetta taki ein­hver ár í við­bót. Það er eðli­legt og heil­brigð af mínu viti. En ég held að þessi upp­bygg­ing og þetta starf sem hefur verið unnið síð­ustu árin séu til þess fallin að byggja traust. Ég finn að fyr­ir­tæki á mark­aði, þau sem komið hafa inn og þau sem fyrir voru, taka hlut­verk sitt mjög alvar­lega og eru mjög áfram um að sinna skyldum sínum vel. En auð­vitað tekur þetta tíma. Það tekur ein­fald­lega tíma að byggja upp traust.“

Páll segir að umgjörðin utan um verð­bréfa­við­skipti hér­lendis sé orðin eins trygg og ann­ars staðar. „Auðvitað er það þannig að þú getur aldrei tryggt að ein­hver hegði sér rétt og vel. Þú getur ekki tryggt að ein­hver keyri yfir á rauðu ljósi þó það séu boð og bönn við því. En ég held að við höfum bundið mjög vel um hnút­ana og að umhverfið hér sé mun trygg­ara og með allt öðrum hætti en fyrir ára­tug síðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár