Kjarnorkuver gætu orðið „grænar fjárfestingar“

Hvað orka er sann­ar­lega græn hefur verið deilu­mál ólíkra ríkja innan ESB miss­erum saman. Fram­kvæmda­stjórn sam­bands­ins áformar skil­grein­ingar svo flokka megi bæði kjarn­orku- og jarð­gasver sem grænar fjár­fest­ingar.

Hundar viðraðir skammt frá kjarnorkuveri í Belgíu.
Hundar viðraðir skammt frá kjarn­orku­veri í Belgíu. Mynd: EPA

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins vinnur nú að útfærslu á því hvaða verk­efni tengd jarð­gasi og kjarn­orku verði skil­greind sem „grænar fjár­fest­ingar“. Rík­is­stjórnir landa innan sam­bands­ins hafa í mörg ár tek­ist á um hvaða fjár­fest­ingar séu raun­veru­lega umhverf­is­vænar.

Í frétt Reuters um málið segir að fram­kvæmda­stjórnin ætli að leggja fram til­lögur að reglum hvað þetta varðar þegar í þessum mán­uði. Nýjar skil­grein­ingar munu skera úr um hvaða verk­efni tengd gasi og kjarn­orku gætu orðið hluti af „sjálf­bærum fjár­fest­ingum“ innan ESB. Á þann lista kemst aðeins sú starf­semi sem stenst ákveðin fjár­hags­leg og umhverf­is­leg við­mið og er þar með flokkuð sem græn fjár­fest­ing. Grænu fjár­fest­ing­ar­verk­efnin eiga að laða að fjár­magn, bæði opin­bert og úr einka­geir­anum og koma í veg fyrir það sem kallað hefur verið „græn­þvottur“, er fyr­ir­tæki ýkja með ýmsum ráðum raun­veru­legt fram­lag sitt til umhverf­is­ins.

Í frétt Reuters er vitnað til draga að áformunum sem frétta­stofan hefur undir höndum. Samkvæmt þeim gæti kjarn­orku­ver flokk­ast sem græn fjár­fest­ing ef fyr­ir­tækið er með áætl­anir, fjár­magn og stað til að farga með öruggum hætti geisla­virkum úrgangi.

Að sama skapi gæti fjár­fest­ing í gas­iðn­að­inum einnig flokk­ast sem græn ef þau koma í stað­inn fyrir meira meng­andi jarð­efna­elds­neyt­is­ver og ef útblástur þeirra á koltví­sýr­ingi er undir ákveðnum við­mið­un­ar­mörkum, mun þrengri mörkum en þau búa almennt við í dag.

Í yfir­lýs­ingu frá fram­kvæmda­stjórn ESB um málið kemur fram að þegar tekið sé til­lit til fram­fara í vís­indum og tækni sem miða að því að draga úr áhrifum á umhverfið hafi jarð­gas og kjarn­orka hlut­verki að gegna á meðan breyt­ingar í átt að mun meiri nýt­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa eru að eiga sér stað. Aðild­ar­ríki ESB eru mis­jafn­lega í sveit sett hvað varðar tæki­færi til orku­öfl­unar. Á meðan jarð­gas er enn und­ir­staða í orku­fram­leiðslu sumra eru önnur á góðri leið að því marki að styðj­ast fyrst og fremst við end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár