Nasdaq Iceland hf., sem rekur íslensku kauphöllina, hefur ákveðið að breyta sveifluvörðum (e. Dynamic Volatility Guards) fyrir öll hlutabréf, kauphallarsjóð og skuldabréf sem skráð eru á Aðalmarkað og First North 12. mars 2020 vegna óvenjulegra aðstæðna á markaði.
Í tilkynningu vegna þessa segir að viðmið fyrir sveifluverði verði tvöfölduð og viðmið fyrir niðurfellingu viðskipta verði í samræmi við gildandi sveifluverði fyrir hvert verðbréf.
[adspot]Kauphöllin mun endurmeta stöðuna innan dagsins og gæti ákveðið að taka aftur upp fyrri viðmið í samfelldum viðskiptum þann 12. mars og mun þá senda út tilkynningu þess efnis. „Ef annað hefur ekki verið tilkynnt munu viðmið fyrir sveifluverði aftur fara í fyrra horf frá og með föstudeginum 13. mars.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir