Síldarvinnslan stefnir á skráningu í Kauphöll Íslands

Síld­ar­vinnslan ætlar að verða annað útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem skráð verður í Kauphöll Íslands. Samherji á tæp­lega helm­ing­inn í Síld­ar­vinnsl­unni.

Gunnþór Ingvarsson er forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingv­ars­son er for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Síldarvinnslan

Stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar hefur ákveðið að hefja und­ir­bún­ing á skrán­ingu hluta­bréfa félags­ins á aðal­markað Nasdaq Iceland og hefur ráðið Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Lands­bank­ans til að hafa umsjón með verk­efn­inu.

Frá þessu er greint á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar segir enn fremur að LEX lög­manns­stofa og end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið EY muni sjá um gerð áreið­an­leikakann­ana.

Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar hf segir að farið sé í þessa veg­ferð með það í huga að efla félagið og opna Síld­ar­vinnsl­una fyrir fjár­festum. „Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er und­ir­stöðu­at­vinnu­grein þjóð­ar­innar og er Síld­ar­vinnslan meðal stærstu og öfl­ug­ustu sjáv­ar­út­vegs­fé­laga lands­ins. Með skrán­ingu félags­ins á markað fjölgar tæki­færum fjár­festa til að koma að sjáv­ar­út­vegi. Íslenskur sjáv­ar­út­vegur er fram­sækin atvinnu­grein þar sem stöðugt er unnið að auk­inni verð­mæta­sköpun auð­lind­ar­innar sam­hliða áskor­unum í að draga úr kolefn­is­spori og umhverf­is­á­hrifum grein­ar­innar.“

Eigið fé upp á 47 milljarða króna

Síld­ar­vinnslan ehf. átti eigið fé upp á 360,5 millj­ónir dala í lok árs 2019. Á með­al­gengi þess árs gerir það 44 millj­arða króna en á gengi dags­ins í dag er eigið fé um 47 millj­arðar króna.

Veiði­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar voru bók­færðar á 228,3 millj­ónir dala í lok árs 2019. Á gengi dags­ins í dag gera það um 30 millj­arðar króna. Félagið hefur á und­an­förnum árum keypt mikið magn af kvóta á mark­aði og sam­stæðan hefur einnig fjár­fest mik­ið, meðal ann­ars í nýjum skip­um.

Síld­ar­vinnslan heldur beint á 5,2 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla. Auk þess heldur Berg­ur-Hug­inn, sem er að öllu leyti í hennar eigu, nú á á um 2,7 pró­sent alls kvóta. Auk þess á Síld­­­ar­vinnslan 75,20 pró­­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta.

[adspot]Stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji hf. með 44,6 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess á Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni. Sam­herji á því, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóri Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 0,92 pró­sent í sjálfri sér, sem þýðir að sam­an­lagður eig­in­hlutur hennar og eign­ar­hluti stærsta eig­and­ans fer nálægt 51 pró­senti.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­­sent. ­Út­­­­­­­gerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­­sent hans.

Sam­an­lagt er þessi blokk Sam­herja og Síld­ar­vinnsl­unnar með að minnsta kosti 17,5 pró­­­­sent afla­hlut­­­­deild.

Ekki tengdir aðilar sam­kvæmt lögum

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er félagið Kjálka­nes ehf. Á meðal helstu hlut­hafa þess er Björgólfur Jóhanns­son, hinn for­stjóri Sam­herja, og fjöl­skylda hans. Sami hópur á einnig útgerð­ar­fé­lagið Gjög­ur, sem heldur á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um. Ef sá kvóti er talin með ofan­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sitja í for­stjóra­stólum Sam­herja.

Gild­andi lög skil­­­greina aðila í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegi þó ekki tengda nema einn eigi meiri­hluta í öðr­­­um. Því eru Sam­herji og Síld­­­ar­vinnslan ekki skil­­­greind sem tengdir aðil­ar og Gjögur og Síld­ar­vinnslan ekki held­ur, enda undir 50 pró­sent mörk­unum líkt lög heim­ila. Í til­felli Sam­herja er hann eins lítið undir þeim og mögu­legt er, eða 0,01 pró­sent. Það að skil­greina aðila tengda út frá meiri­hluta­eign eru mjög há mörk í sam­an­­burði við það sem tíðkast ann­ars staðar hér­­­lend­­is.

[adspot]Í lögum um skrán­ingu raun­veru­­­legra eig­enda og í frum­varpi til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna skatt­lagn­ingar tekna erlendra lög­­­að­ila í lág­skatta­­­ríkj­um, sam­skött­unar félaga, tak­­­mörk­unar á frá­­­drætti vaxta­gjalda og skatt­lagn­ingar útsendra starfs­­­manna er til dæmis miðað við 25 pró­­­sent beinan eða óbeinan eign­­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­­legur eig­and­i.

Rann­sókn hætt vegna anna

Fiski­stofa réðst í frum­kvæð­is­rann­sókn á árunum 2009 og 2010 á því hvort að telja ætti Sam­herja, Gjögur (hlutur Gjög­urs í Síld­ar­vinnsl­unni var færð yfir í Kjálka­nes árið 2015) og Síld­ar­vinnsl­una sem tengda aðila. Nið­ur­staðan var sú að engin rök væru fyrir því að Sam­herji og Gjögur færu með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvað í kjöl­farið að kanna hvort að Sam­herji, Gjögur og Síld­ar­vinnslan væru ótengd líkt og þau hefðu haldið fram. Rann­sókn máls­ins leiddi í ljós umtals­verða sam­vinnu milli þess­ara fyr­ir­tækja í útgerð, fisk­vinnslu og sölu afurða auk þess sem við blasti að Sam­herji og Gjögur áttu full­trúa í stjórn Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Í ljósi þessa var það nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að óhjá­kvæmi­legt væri að hefja nýtt stjórn­sýslu­mál til að rann­saka tengslin frek­ar.

Nærri fimm árum síðar spurð­ist blaða­maður Frétta­blaðs­ins fyrir um gang rann­sókn­ar­inn­ar. Svörin sem hann fékk voru þau að rann­sókn­inni hefði verið hætt. Ekki vegna þess að til­efnið skorti, heldur vegna þess að málið hafði dagað uppi hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna seina­gangs og því þótti ekki for­svar­an­legt annað en að ljúka því án nið­ur­stöðu. Það hefði ein­fald­lega verið of mikið að gera hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber 2019 að þegar Sam­herji kynnti sam­­­stæðu sína erlend­is, tveimur árum eftir að þessi nið­ur­staða Fiski­stofu lá fyr­ir, hafi Síld­­­ar­vinnslan verið kynnt sem upp­­­­­sjá­v­­­­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wiki­leaks birti vegna Sam­herj­­­a­­­máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár