Hagnaður VÍS verður um hálfum milljarði króna meiri en áður var gert ráð fyrir

Hluta­bréf í VÍS hækk­uðu skarpt í fyrstu við­skiptum í morgun í kjöl­far til­kynn­ingar um allt að 22 pró­sent meiri hagnað á síð­asta ári en áður var búist við.

VÍS sendi í gær­kvöldi frá sér jákvæða afkomu­spá vegna árs­ins 2019. Fyrri spá hafði gert ráð fyrir að hagn­aður trygg­inga­fé­lags­ins yrði 2.508 millj­ónir króna en nýja spáin áætlar að hann verði 2.950 til 3.050 millj­ónir króna. Því mun hagn­aður VÍS, gangi afkomu­spáin eftir, verða 442 til 542 millj­ónum króna meiri en reiknað hafði verið með. Það þýðir að hagn­aður VÍS gæti orðið allt að 22 pró­sent meiri en upp­haf­lega afkomu­spáin sagði til um.

Greint er frá þessu í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands. Þar segir að helsta ástæðan fyrir betri afkomu sé hærri ávöxtun fjár­eigna á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs.

Afkomu­spá VÍS fyrir ári 2020 verður birt þann 31. jan­úar og upp­gjör árs­ins 2019 verður birt þann 27. febr­úar næst­kom­andi.

[adspot]Hluta­bréf í VÍS tóku kipp í fyrstu við­skiptum í morgun eftir að greint hafði verið frá þessu og höfðu hækkað um 2,91 pró­sent fyrir klukkan 10.

Í til­kynn­ingu sem VÍS sendi til Kaup­hallar skömmu fyrir jól í fyrra kom fram að ávöxtun fjár­fest­inga­eigna trygg­inga­fé­lags­ins hefði verið 9,2 pró­sent frá ára­mótum og til 20. des­em­ber 2019. Þa sagði einnig að sam­setta hlut­fallið í rekstr­inum, sem er tjóna­kostn­aður, end­ur­trygg­inga­kostn­aður og rekstr­ar­kostn­aður af vátrygg­inga­hluta sem hlut­fall af iðgjöldum, hefði verið 99,2 pró­sent það sem af er ári. Á þeim tíma sem til­kynn­ingin var send út hafði VÍS greitt við­skipta­vinum rúm­lega 15,5 millj­arða króna í tjóna­bætur á árinu 2019.

Virði hluta­bréfa í VÍS hækk­aði um sjö pró­sent á síð­asta ári. Mark­aðsvirði félags­ins var tæp­lega 21 millj­arður króna við upp­haf við­skipta í morgun. Stærstu eig­endur VÍS eru Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins A- og B-deild (sam­tals 9,59 pró­sent) Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (8,13 pró­sent), breski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn LF Miton UK Multi Cap Income [7,23 pró­sent), og fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Lansdowne ICAV Lansdowne Euro (7,25 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár