Úrvalsvísitala íslensku Kauphallarinnar, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á markaði sem hafa mestan seljanleika, hefur lækkað um tæpan fimmtung frá 21. febrúar. Þann föstudag var gengi hennar 2.170,5 stig en við lok viðskipta í dag var hún rétt rúmlega 1.763,3 stig. Hún lækkaði um 3,5 prósent í dag eftir að hafa jafnað sig lítillega í lok dags. Þorra hans var lækkunin um og yfir fimm prósent.
Sú þróun er í takti við það sem er að gerast á heimsvísu en viðskipti voru meðal annars stöðvuð tímabundið í kauphöllinni í New York í morgun eftir að S&P vísitalan hafði lækkað um sjö prósent á fyrstu fimm mínútunum eftir opnun markaða. Hlutabréfamarkaðir í Evrópu og Asíu féllu líka skarpt. Ástæður þessa eru fyrst og síðast áframhaldandi efnahagsleg áhrif af útbreiðslu kórónuveirunnar og hratt lækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu. Verðfallið á mörkuðum í Bandaríkjunum var það mesta síðan í ágúst 2011.
Allir lækkuðu á Íslandi
Öll félögin 20 sem skráð eru á aðalmarkað hérlendis féllu í verði í dag. Mest lækkaði Origo, um tæplega sex prósent, og gengi bréfa í félaginu hefur ekki verið lægra frá því í maí í fyrra.
Kvika banki kom þar á eftir, en félagið lækkaði um 5,83 prósent. Um tíma síðdegis höfðu bréf í félaginu lækkað um meira en átta prósent.
Kvika var skráður á aðalmarkað í mars í fyrra. Fyrsti viðskiptadagur þar með bréf í bankanum var 28. mars og í lok hans var virði þeirra 10,1 krónur á hlut. Virði bréfa í Kviku í dag er 7,91 krónur á hlut, eða um 22 prósent lægra virði en var fyrir tæpu ári síðan.

Icelandair hefur fallið allra félaga mest í virði undanfarið. Frá 19. febrúar hefur markaðsvirði fyrirtækisins lækkað um 41 prósent og er nú 27,7 milljarðar króna. Til samanburðar má nefna að virði Icelandair var 191,5 milljarðar króna í apríl 2016 og í millitíðinni er búið að auka hlutafé félagsins. Eigið fé þess var rúmlega 60 milljarðar króna um síðustu áramót og því er markaðsvirðið tæplega helmingur þess.
Verðmætasta félagið á markaði, Marel, fór með himinskautunum í fyrra og virði þess hækkaði um 66 prósent á árinu 2019. Markaðsvirði félagsins í lok árs var 473,4 milljarðar króna. Það hélt áfram að hækka framan af árinu 2020 og virði þess skreið yfir 500 milljarða króna um tíma í janúar. Nú er það um 379,3 milljarðar króna og því hafa um 120 milljarðar króna af markaðsvirði Marel horfið á tæpum tveimur mánuðum.
[adspot]Næst stærsta félagið á markaði er Arion banki. Hann var skráður á markað í júní 2018 og í lok fyrsta viðskiptadags var gengi hlutabréfa hans 88,8 krónur á hlut. Það er nú 72,5 krónur á hlut eða fimmtungi lægra. Markaðsvirði bankans er nú 131,5 milljarðar króna, eða umtalsvert lægra en eigið fé bankans sem var 190 milljarðar króna um síðustu áramót.
Gengi íslensku krónunnar hefur líka veikst hratt, eða um rúmlega sex prósent gagnvart evru á þessu ári.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir