Síðasti dagur Heimavalla í Kauphöllinni verður 11. september

Rúmum tveimur árum eftir að Heima­vellir voru skráðir í íslensku Kaup­höll­ina er félagið á leið út úr henni. Þegar næstu viku lýkur munu Heima­vellir vera í einka­eigu og skráðum félögum á Íslandi fækka um eitt.

Á meðal þeirra eigna sem Heimavellir eru nýjar íbúðir á Hlíðarendasvæðinu í Reykjavík.
Á meðal þeirra eigna sem Heima­vellir eru nýjar íbúðir á Hlíð­ar­enda­svæð­inu í Reykja­vík. Mynd: Heimavellir

Síðasti dag­ur­inn sem hægt verður að kaupa og selja hluta­bréf í leigu­fé­lag­inu Heima­völlum í Kauphöll Íslands verður næst­kom­andi föstu­dag, 11. sept­em­ber. Félagið var skráð á markað vorið 2018, nánar til­tekið 24. maí það ár, og náði því að vera skráð félag í rúm­lega tvö ár.

Heima­vellir fóru fram á það 25. ágúst síð­ast­lið­inn við Kaup­höll Íslands að skráð hluta­bréf í félag­inu verði tekin úr við­skiptum.

Norska félagið Fredens­borg AS gerði yfir­­­tökutil­­boð í Heima­velli í mars 2020 og þegar því lauk átti félagið 99,45 pró­sent í Heima­völlum þegar búið var að leið­rétta fyrir eigin hlut­u­m.

Verðið var 1,5 krónur á hlut og því hljóð­aði yfir­­­tökutil­­boðið í heild sinni upp á 17 millj­­arða króna. Alls tóku 242 hlut­hafar til­boð­inu. Í kjöl­farið var inn­lausn­ar­rétti beitt þar sem verðið var hið sama og bauðst í yfir­tökutil­boð­inu, eða 1,5 krón­ur.

[adspot]Heima­vellir er stærsta einka­rekna leigu­fé­lag lands­ins með um tvö þús­und íbúðir í rekstri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Akra­nesi, Borg­ar­nesi, Ísa­firði, Akur­eyri, Egils­stöð­um, Reyð­ar­firði, Sel­fossi, í Hvera­gerði, Þor­láks­höfn, Grinda­vík og Reykja­nes­bæ.

Reyndu að afskrá félagið í fyrra

Lyk­il­hlut­hafar Heima­valla reyndu að afskrá félagið í fyrra eftir að illa gekk að fá stóra fag­fjár­­­­­­­­­festa á borð við líf­eyr­is­­­­­sjóði til að fjár­­­­­­­­­festa í því og eftir að félag­inu mistókst að end­­­­­ur­fjár­­­­­­­­­magna sig í takti við fyrri áætl­­­­­­­­­anir sem áttu að losa það undan arð­greiðslu­höml­u­m.

Kaup­höll Íslands hafn­aði þeim til­­­­­raunum og þess í stað fóru helstu hlut­hafar Heima­valla í þá veg­­­­­ferð að selja eignir með það mark­mið að skila arð­inum af þeim til hlut­hafa. Sam­hliða var haldið áfram, með umtals­verðum árangri, að leita að end­­­­ur­fjár­­­­­­­mögnun fyrir lánin sem mein­uðu útgreiðslu á arði.

Marka­virði Heima­valla er í dag er 16,4 millj­­­­­­arðar króna og hækk­aði umtals­vert framan af ári.

Eigið fé félags­­­­­­ins, mun­­­­­­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða rúm­­lega 20 millj­­­­­­arðar króna miðað við síð­­­­­asta birta upp­­­­­­­­­gjör.

Í októ­ber í fyrra hófu Heima­vellir umfangs­­­­mikla áætlun um end­­­­ur­­­­kaup á eigin bréf­­um.

Heima­vellir töp­uðu 476 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Eigið fé félags­ins var 19,5 millj­arðar króna í lok júní­mán­að­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár