20 fjárfestar keyptu rúmlega helminginn af því sem selt var í Íslandsbanka

Búið er að birta lista yfir stærstu eig­endur Íslands­banka. Auk rík­is­ins eiga líf­eyr­is­sjóðir og erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir stærstu eign­ar­hlut­ina. Margir ein­stak­lingar leystu út hagnað af við­skipt­unum í gær.

Viðskipti hófust með bréf Íslandsbanka í gær.
Við­skipti hófust með bréf Íslands­banka í gær. Mynd: Nasdaq Iceland

Í morgun var birtur listi yfir 21 stærstu hlut­hafa Íslands­banka eftir hluta­fjár­út­boð þar sem íslenska ríkið seldi 35 pró­sent eign­ar­hlut í bank­anum fyrir 55,3 millj­arða króna.

Á list­anum kemur fram að þeir 20 fjár­festar sem keyptu mest í útboð­inu eiga sam­tals 18 pró­sent hlut í bank­anum. Það þýðir að hinir þátt­tak­end­urnir í útboð­inu, en þeir alls voru um 24 þús­und tals­ins, keyptu sam­an­lagt 17 pró­sent hlut.

Íslenska ríkið er áfram stærsti eig­andi bank­ans með 65 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Gildi, Capital World Invsestors og RWC Asset Mana­gement höfðu þegar við upp­haf útboðs­ins skuld­bundið sig til að kaupa um það bil tíu pró­sent af öllu útgefnu hlutafé Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans og verða svo­kall­aðir horn­steins­fjár­festar.

Samkvæmt hlut­haf­alist­anum sem birtur var í morgun tók Capital World Investors stærstan hluta af þessum bita, eða 3,8 pró­sent. Íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir tveir eiga svo 2,3 pró­sent hvor og RWC Asset Mana­gement á 1,5 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, á líka sam­an­lagt 1,5 pró­sent hlut í bank­anum. Aðrir sem mynda list­ann yfir 21 stærstu eig­endur bank­ans eru erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Enginn einka­fjár­festir kemst inn á list­ann.

[adspot]Lögð var áhersla á það að dreifa eign­ar­að­ild í því skrefi sem stigið var í söl­unni nú, og til marks um það var hægt að skrá sig fyrir hlut upp á 50 þús­und krónur, sem er lágt í flestum sam­an­burði. Auk þess var gefið út að allir sem skráðu sig fyrir því að kaupa fyrir eina milljón króna eða minna myndu ekki skerð­ast ef eft­ir­spurn yrði umfram fram­boð, að horn­steins­fjár­fest­unum und­an­skildum.

Lágt verð og mikið ávöxtun strax

Níföld eft­ir­spurn var eftir bréfum í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans sem lauk í síð­ustu viku. Allir grein­endur voru sam­mála um að bréfin væru lágt verð­lögð, sér­stak­lega í sam­an­burði við gengi bréfa í Arion banka, hinum kerf­is­lega mik­il­væga bank­anum sem skráður er á markað. Það ýtti undir mikla þátt­töku í útboð­inu.

Þegar bréfin voru tekin til við­skipta í gær hækk­uðu þau strax um 20 pró­sent. Það þýðir að sá sem keypti fyrir eina milljón króna var strax búinn að hagn­ast um 200 þús­und krónur.

Tæplega þrír fjórðu hlutar allra við­skipta sem áttu sér stað í Kaup­höll­inni í gær voru með bréf í Íslands­banka. Heild­ar­virði við­skipt­anna nam 5,4 millj­örðum króna. Stór hluti þeirra sem seldu voru litlir ein­stak­lingar sem höfðu keypt fyrir lágar fjár­hæðir, milljón krónur eða minna. Það þýðir að ansi margir þátt­tak­endur í útboð­inu ákváðu að leysa út ávöxt­un­ina á fyrsta degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár