Markaðsvirði Eimskips hefur hækkað um 53 milljarða króna á einu ári

Þrátt fyrir að Eimskip hafi gert upp risa­vaxna sekt vegna sam­keppn­is­brots á öðrum árs­fjórð­ungi þá vænk­að­ist hagur félags­ins veru­lega. Tekjur hækk­uðu mikið og fjár­magns­kostn­aður dróst saman. Hluta­bréf í félag­inu hafa marg­fald­ast í verði á einu ári.

Virði hluta­bréfa í Eimskip hafa hækkað um rúm­lega 220 pró­sent á einu ári. Þann 20. ágúst í fyrra var mark­aðsvirði Eimskips um 24 millj­arðar króna. Við lok við­skipta í gær var það komið upp í um 77 millj­arða króna. Það hefur því hækkað um 53 millj­arða króna á einu ári.

Bréf félags­ins hækk­uðu umtals­vert í gær, um tíma yfir tíu pró­sent, eftir að félagið birti hálfs­árs­upp­gjör sitt á fimmtu­dag sem þótti jákvætt. Tekjur félags­ins á fyrri hluta árs­ins 2021 voru 21,4 pró­sent meiri en þær voru á sama tíma­bili í fyrra og fjár­magns­kostn­aður Eimskips hefur lækkað um 35,4 pró­sent milli ára, sem má rekja til virkrar skulda­stýr­ingar og hríð­lækk­andi vaxta á lánum vegna ákvarð­ana seðla­banka heims­ins um að örva efna­hags­kerfi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. EBITDA-hagn­aður, hagn­aður fyrir skatta, fjár­magns­kostnað og afskriftir, jókst um heil 81,6 pró­sent milli ára og hagn­aður félags­ins var 16,2 millj­ónir evra, um 2,4 millj­arðar króna á fyrri hluta árs­ins 2021.

Um 43 pró­sent af tekjum Eimskips koma frá Íslandi sem er sama hlut­fall og var á fyrri hluta árs í fyrra.

Sömdu um samkeppnislaga brot og verðið rauk upp

Þann 16. júní síð­ast­lið­inn var greint frá því að Eimskip hefði gert sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um greiðslu 1,5 millj­arða króna stjórn­valds­sektar vegna alvar­legra brota gegn sam­keppn­is­lögum og EES-samn­ingum sem framin voru í sam­ráði við Samskip, aðal­lega á árunum 2008 til 2013.

Sama dag og til­kynnt var um sátt­ina upp­færði Eimskip afkomu­spá sína. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á þeim tíma sagði að sam­kvæmt stjórn­enda­upp­gjöri fyrir apríl og maí, ásamt áætlun fyrir júní, liti út fyrir að „EBITDA af rekstri á öðrum árs­fjórð­ungi 2021 verði umtals­vert betri en afkoma sama árs­fjórð­ungs síð­asta árs og jafn­framt betri en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Hins vegar hefur nýgerð sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sem til­kynnt var um fyrr í dag nei­kvæð áhrif á afkom­una.“

[adspot]Það reynd­ist rétt þrátt fyrir að sektin sé gjald­færð á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins.

Í sátt­inni við Sam­keppn­is­eft­ir­litið gekkst Eimskip við því að hafa líka við­haft ólög­mætt sam­ráð við Samskip áður en stór­tækara sam­ráð á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja hófst sum­arið 2008.

Að auki við­ur­kenndi Eimskip að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum með því að hafa ekki veitt nauð­syn­legar eða réttar upp­lýs­ingar eða afhent gögn í þágu rann­sóknar máls­ins, en félagið hefur á fyrri stigum rann­sóknar máls­ins neitað því að hafa gerst brot­legt við lög.

Frá því að til­kynnt var um sátt­ar­gerð­ina fyrir rétt um tveimur mán­uðum síðan hafa hluta­bréf í Eimskip hækkað um næstum 55 pró­sent, eða 27,4 millj­arða króna.

Samherji Holding langstærsti eigandinn

Langstærsti ein­staki eig­andi Eimskips er Samherji Holding ehf., sem heldur á 34,22 pró­sent eign­ar­hlut. Sá hlutur er nú met­inn á 26,6 millj­arða króna. Félagið keypti upp­haf­lega 25,3 pró­sent hlut í Eimskip á ell­efu millj­arða króna fyrir tæpum þremur árum síðan. Aðrir stórir eig­endur eru aðal­lega íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Baldvin Þor­steins­son, sem stýrir erlendri starf­semi Samherja, er stjórn­ar­for­maður Eimskips. Vilhelm Már Þor­steins­son, frændi stjórn­ar­for­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Samherja Holding, er for­stjóri félags­ins.

Samherji Holding er sá hluti sam­stæðu Samherja sem heldur utan um erlendan hluta hennar. Félagið er á meðal þeirra sem eru til rann­sóknar hjá emb­ættum hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra um þessar mundir vegna gruns um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Þær rann­sóknir hófust í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða var opin­berað í nóv­em­ber 2019.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, Helga S. Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, og Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri Samherja, eru að uppi­stöðu stærstu eig­endur Samherja Holding.

Félagið hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árin 2019 né 2020. Það skil­aði síð­ast árs­reikn­ingi fyrir árið 2018 í lok ágúst­mán­aðar 2019 og því hefur Samherji Holding ekki skilað inn árs­reikn­ingi líkt og lög gera ráð fyrir síðan að Sam­herj­a­málið kom upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár