Uppgefnar eignir Íslendinga dragast saman

Bein fjár­muna­eign inn­lendra aðila erlendis dróst saman í fyrra um rúm­lega 100 millj­arða króna. Tölur Seðla­banka Íslands segja að Íslend­ingar eigi ein­ungis 20 millj­ónir króna á Tortóla.

Bein fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis dróst saman milli áranna 2016 og 2017. Hún var 570,6 millj­arðar króna í lok síð­asta árs en 683,5 millj­arðar króna árið áður. Þetta kemur fram í nýlegum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands. Umtals­verð styrk­ing krón­unnar gagn­vart helstu gjald­miðlum í fyrra skiptir þar mestu.

[links]Mestar eru upp­gefnar fjár­muna­eignir Íslend­inga í Hollandi, en þar eiga inn­lendir aðilar alls 320 millj­arða króna. Upp­gefnar eignir lands­manna á þekktum aflandseyjum hafa dreg­ist mikið saman á und­an­förnum árum. Þannig er fjár­muna­eign inn­lendra aðila á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, sem inni­heldur með ann­ars Tortóla, sögð vera 20 millj­ónir króna í tölum Seðla­banka Íslands. Í árs­lok 2015 voru 32 millj­arðar króna í eigu Íslend­inga sagðir vera vistaðir í eyja­kla­s­anum.

Sá hluti fjár­muna Íslend­inga erlendis sem eru óflokk­aðir helm­ing­ast milli ára. Rúmlega 75 millj­arðar króna féllu í þann flokk árið 2016 en ein­ungis 35 millj­arðar króna í lok árs í fyrra.

[adspot]Íslend­ingar hafa ekki átt jafn lítið af fjár­muna­eign­um, í krónum talið, í útlöndum frá árinu 2004. Fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis hefur raunar verið að drag­ast saman á und­an­förnum árum í krónum talið. Þar hefur áhrif að fallandi gengi krónu eftir banka­hrunið 2008 hafði mikið áhrif á eign­ina til hækk­un­ar. Mestar voru þær tæp­lega 1.600 millj­arðar króna í lok árs 2012 þegar krónan var enn afar veik. Umfang beinnar fjár­muna­eignar Íslend­inga erlendis hafði þá 6,5 fald­ast í krónum talið frá árinu 2004, þegar þjóðin átti um 246 millj­arða króna af beinum eignum í öðrum lönd­um.

Skrán­ingu á erlendri fjár­­muna­­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­­­an. Nú eru gefnar upp­­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­­muna­­eign Íslend­inga er á Cayman-eyjum, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­­tí­us. Það er ekki hægt leng­­ur. Sá hluti fjár­muna Íslend­inga erlendis sem falla í flokk­inn „óflokkað“ helm­ing­ast milli ára. Rúmlega 75 millj­arðar króna féllu í þann flokk árið 2016 en ein­ungis 35 millj­arðar króna í lok árs í fyrra.

Íslend­ingar eiga mikið af földum eignum

Erlend fjár­muna­eign Íslend­inga var mjög í kast­ljósi heims­ins vorið 2016 í kjöl­far frétta úr gagna­leka frá panömsku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca sem gerður var opin­ber í apríl 2016. Í þeim kom fram að um 600 Íslend­ingar teng­ist um 800 aflands­fé­lögum sem koma fram í skjöl­un­um. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­skipta­vini Lands­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­göngu­liði Kaup­þing og Glitnir not­uðu, en sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarn­ans sem þekktu vel til í starf­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins.

[adspot]Líklegt verður að telj­ast, að hluti þeirra eigna sem íslenskir rík­is­borg­arar hafa komið fyrir í þekktum skatta­skjólum, séu ekki inni í þeim tölum yfir erlendar fjár­muna­eignir inn­lendra aðila sem Seðla­bank­inn birtir. Til­gangur þess að stofna félag í skatta­skjóli er enda fyrst og síð­ast tal­inn annar af tveimur: að kom­ast undan skatt­greiðslum eða til að leyna til­vist eignar frá ein­hverjum.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur þegar lokið rann­sókn í að minnsta kosti 89 málum sem tengd­ust Panama­skjöl­unum. Um miðjan júlí síð­ast­lið­inn voru enn 14 mál í rann­sókn. Alls voru vantaldir und­an­­dregn­ir skatt­­stofn­ar taldir nema um 15 millj­­örðum króna.

Í 18 málum hefur skatt­rann­sókn­ar­stjóri farið fram með sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd og einu máli hefur verið lokið með sekt­ar­gerð. Í níu málum hefur ákvörðun verið tekin um að fella niður refsi­með­ferð. Til við­bótar lá fyrir ákvörðun í júlí um að vísa einu máli til hér­aðs­sak­sókn­ara og þremur til yfir­skatta­nefndar til sekt­ar­með­ferð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár