Isavia veitir ekki upplýsingar um vanskil flugfélaga eða tekjur vegna þeirra

Isavia greinir ekki frá því hvernig tekjur félags­ins skipt­ast eftir við­skipta­vinum né hvort, og þá hversu mikil, van­skil séu til staðar á lend­ing­ar­gjöldum. Upp­bygg­ing Kefla­vík­ur­flug­vallar er unnin út frá ýmsum sviðs­myndum.

Isavia veitir ekki upp­lýs­ingar um það hverjar tekjur félags­ins eru af við­skiptum við ein­stök flug­fé­lög. Það veitir heldur ekki upp­lýs­ingar um hvort ein­hver flug­fé­lög séu í van­skilum með lend­ing­ar­gjöld sín við Isavia en tekur fram að félagið vinni „með við­kom­andi félögum að lausn mála ef upp koma til­vik þar sem van­skil verða á lend­ing­ar­gjöldum með hags­muni Isavia að leið­ar­ljósi.“

Félagið gefur enn fremur ekki upp hversu stór hluti tekna þess er til­komin vegna ein­stakra við­skipta­vina, t.d. Icelandair eða WOW air. Þetta kemur fram í svörum Isavia við fyr­ir­spurn frá Kjarn­anum.

Morg­un­blaðið greindi frá því í morgun að WOW air skuld­aði Isavia um tvo millj­arða króna í lend­ing­ar­gjöld. Þar af er um helm­ingur skuld­ar­innar þegar gjald­fall­inn sam­kvæmt frétt­inni. Í nýbirtum árs­hluta­reikn­ingi Isavia kemur fram að við­skipta­skuldir félags­ins hafi hækkað um rúm­lega 1,2 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, hefur síðan sagt í stöðu­upp­færslu á Facebook að frétt Morg­un­blaðs­ins sé röng. WOW air hafi aldrei skulda Isavia um tvo millj­arða króna.

Isavia er opin­bert hluta­­fé­lag og að öllu leyti í eigu íslenska rík­­is­ins. Félagið ann­­ast rekstur og upp­­­bygg­ingu allra flug­­valla á Íslandi auk þess sem það stýrir flug­um­ferð á íslenska flug­­­stjórn­­­ar­­svæð­inu. Isavia á fjögur dótt­­ur­­fé­lög. Þau eru Frí­höfnin ehf., Tern­Sy­stems ehf., Domavia ehf. og Suluk APS. Sam­­stæðan velti 38 millj­­örðum króna í fyrra og skil­aði tæp­­lega fjög­­urra millj­­arða króna hagn­aði.

Á fyrri hluta árs­ins 2018 voru rekstr­ar­tekjur Isavia um 19 millj­arðar króna sem var um 12 pró­sent meira en á sama tíma­bili í fyrra. Hagnaður af rekstri eftir fyrstu sex mán­uði árs­ins var tæp­lega 1,6 millj­arðar króna.

Íslensku flugfélögin glíma við erfiðleika

Mikið hefur verið fjallað um stöðu íslensku flug­fé­lag­anna, Icelandair og WOW air, und­an­farnar vikur. Þau hafa bæði glímt við erf­ið­leika, þótt þeir séu að sitt­hvorum toga. Icelandair glímir við tap­rekstur, meðal ann­ars vegna slakra ákvarð­ana um breyt­ingar á leiða­kerfi og sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins sem teknar voru í fyrra. Þá hefur olíu­verð hækkað, krónan styrkst og laun hækkað á sama tíma og verð á flug­ferðum hefur ekki þró­ast upp á við með þeim hætti sem búist var við. Icelandair á samt sem áður umtals­vert eigið fé til að takast á við sína stöðu. Það var 57 millj­arðar króna um mitt þetta ár.

WOW air á hins vegar afar lítið eigið fé – eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var komið niður í 4,5 pró­sent í júní – og hefur und­an­farið gert dauða­leit að fjár­festum til að taka þátt í skulda­bréfa­út­boði félags­ins, þar sem stefnt var að ná í að minnsta kosti 50 millj­ónir evra, en allt að 100 millj­ónum evra, eða rúm­lega 13 millj­arða króna. Allar fréttir sem sagðar hafa verið af gangi þess benda til að ferlið hafi verið erf­ið­ara en reiknað var með og að kjörin sem WOW air bjóð­ast væru í öllum sam­an­burði afar há.

Í gær var svo til­kynnt um að WOW air hefði náð að tryggja sér lág­marks­upp­hæð­ina sem það sótt­ist eftir í útboð­inu, 50 millj­ónir dali. Vext­irnir eru níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti. Áður hafði verið greint frá því að þátt­tak­endur myndu einnig fá 20-25 pró­sent afslátt í hluta­fjár­út­boði WOW air í fram­tíð­inni.

Greint verður frá nið­ur­stöðu útboðs­ins og frek­ari upp­lýs­ingum um stöðu WOW air á þriðju­dag. Við­mæl­endur Kjarnans í atvinnu­líf­inu eru þess full­vissir að hlutafé verði einnig aukið þannig að fleiri hlut­hafar komi inn í hlut­hafa­hóp­inn hjá WOW air. Skúli Mogensen er í dag eini eig­andi félags­ins.

Unnið út frá ýmsum sviðsmyndum

Isavia stendur í miklum fjár­fest­ingum á Kefla­vík­ur­flug­velli, sem byggja á áætl­unum um mikla aukn­ingu á komu ferða­manna til lands­ins, og um völl­inn. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Isavia þess efnis hvort gert hafi verið ráð fyrir þeirri sviðs­mynd í áætl­unum að annað eða bæði íslensku flug­fé­lögin, sem bera ábyrgð á að flytja 80-85 pró­sent allra far­þegar til lands­ins sem það heim­sækja, myndu hætta rekstri?

Í svari Isavia segir að upp­haf­leg áætlun, sem var gefin út 2015, hafi gert ráð fyrir tíu milljón far­þegum árið 2030. Miðað við spár verði fari hins vegar um tíu millj­ónir far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl í ár, eða tólf árum á undan áætlun. „Isavia hefur unnið út frá sviðs­myndum þar sem gert er ráð fyrir hæg­ari og hrað­ari fjölgun far­þega en þess má einnig geta að í spám Isavia hefur verið gert ráð fyrir veru­legri minni hlut­falls­legri fjölgun far­þega á kom­andi árum. Raunar er það svo að í lang­tíma­spám er gert ráð fyrir að fjölgun verði í takt við spár frá Alþjóða­ferða­mála­stofn­un­inni (UNWTO) upp á 3,5 pró­sent.

Þá hefur Isavia einnig unnið út frá nei­kvæðum sviðs­myndum sem mið­aðar eru við að ytri aðstæður geta skap­ast sem haft geta nei­kvæð áhrif á rekst­ur­inn. Í sög­unni eru ýmis dæmi um slíkar ytri aðstæður – hvort sem það eru t.d. hryðju­verkin í Banda­ríkj­unum 11. sept­em­ber 2001 eða banka­hrunið 2008.“

Í svar­inu segir enn fremur að þró­un­ar­á­ætlun Kefla­vík­ur­flug­vallar sé áfanga­skipt og því sé hægt að bregð­ast við ef breyt­ingar verða á spám um fjölda far­þega. „Upp­bygg­ing­ar­á­ætlun Kefla­vík­ur­flug­vallar er safn af verk­efnum sem er hvert fyrir sig ákveðið og fjár­magnað sem ein­stakt verk­efni og því auð­velt að hæga á stækk­unar­á­formum ger­ist þess þörf án þess að hafa áhrif á fjár­hags­legar skuld­bind­ingar félags­ins. En það er ljóst miðað við núver­andi stöðu að þá þarf að ráð­ast í fram­kvæmdir á Kefla­vík­ur­flug­velli enda fjölgun far­þega til þessa verið langt umfram spár. Flug­völl­ur­inn er í harðri sam­keppni við aðra velli og þarf því stöðugt að bæta aðstöðu sína og þjón­ustu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár