Samfylkingin ekki mælst stærri frá árinu 2014

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki mælst með minna fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Stjórn­ar­and­staðan er með mun meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir. Og miðju­flokk­arnir halda áfram að taka til sín það fylgi sem er á hreyf­ingu.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­fylk­ingin mælist með 19,3 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu könnun Gallup, sem gert er grein fyrir á vef RÚV í dag. Það er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með frá því í des­em­ber 2014, þegar fylgi flokks­ins mæld­ist 20,3 pró­sent.

[links]Í nýj­ustu könn­un­inni munar ein­ungis 3,4 pró­sentu­stigum á Sam­fylk­ingu og Sjálf­stæð­is­flokki, sem mælist sem fyrr stærsti flokkur lands­ins. Fylgi hans mælist nú 22,7 pró­sent og hefur ekki mælst lægra á kjör­tíma­bil­inu í könn­unum.

Þeir fimm flokkar sem mynda stjórn­ar­and­stöð­una mæl­ast nú með sam­tals 56,3 pró­senta fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir með 42,6 pró­sent. Það er mik­ill við­snún­ingur frá því sem var í síð­ustu kosn­ing­um, þegar stjórn­ar­flokk­arnir fengu 52,9 pró­sent fylgi og 35 þing­menn en stjórn­ar­and­staðan 28. Ef kosið yrði í dag myndi stjórn­ar­and­staðan lík­ast til fá 35-36 þing­menn en stjórn­ar­flokk­arnir þrír 27-28 , sem myndi ekki duga til að mynda meiri­hluta­stjórn. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina fór í fyrsta sinn undir 50 pró­sent í könnun Gallup sem birt var í lok júlí og helst þar í nýj­ustu könn­un­inni. Skömmu eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við mæld­ist stuðn­ingur við hana 74,1 pró­sent.

Þrír flokkar taka fylgið til sín

Skipta má stjórn­ar­and­stöð­unni í tvennt. Annars vegar eru Sam­fylk­ingin, Viðreisn og Píratar sem skil­greina sig sem frjáls­lynda miðju­flokka, þótt áherslu­munur sé á ýmsum málum þeirra á milli. Þessi stjórn­ar­and­stöðu­blokk hefur verið að styrkj­ast mikið sam­kvæmt könn­unum og mælist nú með sam­an­lagt 41,9 pró­sent fylgi. Þar er Sam­fylk­ingin stærst með 19,3 pró­sent og bætir við sig 2,6 pró­sentu­stigum milli kann­ana, Píratar mæl­ast með 12,5 pró­sent en tapa 1,4 pró­sentu­stigi og Viðreisn myndi fá 10,1 pró­sent atkvæða ef kosið væri í dag, sem er 1,4 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn mæld­ist með fyrir mán­uði síðan. Þessir þrír flokkar hafa bætt við sig 13,9 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum sem fóru fram í októ­ber 2017 og eru einu flokk­arnir sem eiga sæti á Alþingi sem mæl­ast með meira fylgi í dag en þeir fengu þá.

[adspot]Hins vegar eru Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, sem þykja eiga meira skap saman en ofan­greindir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar. Mið­flokk­ur­inn mælist nú með 8,7 pró­sent fylgi en Flokkur fólks­ins með 5,7 pró­sent.

Báðir flokk­arnir unnu mik­inn kosn­inga­sigur í fyrra­haust og fengu þá sam­tals 17,8 pró­sent fylgi. Ef kosið yrði í dag myndu þeir hins vegar fá 14,4 pró­sent.

Vinstri græn rétta aðeins úr kútnum

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa allir tapað fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Vinstri græn rétta hins vegar aðeins úr kútnum í nýj­ustu könnun Gallup og mæl­ast nú með 11,7 pró­sent fylgi. Í könn­un­inni sem birt var í lok júlí mæld­ist fylgið ein­ungis 10,7 pró­sent sem var það minnsta sem Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans, hafði mælst með frá því í árs­lok 2015. Flokk­ur­inn er þó enn langt frá kjör­fylgi sínu, sem var 16,9 pró­sent og gerði hann að næst stærsta flokki lands­ins á þeim tíma.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sá flokkur sem tapar mestu milli kann­ana, eða 1,9 pró­sentu­stigi. Það er einnig umtals­vert lægra en þau 25,3 pró­sent sem hann fékk í kosn­ing­unum fyrir um tíu mán­uðum síðan. Ef fylgið sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með í dag yrði nið­ur­staða kosn­inga þá væri það versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tekur líka dýfa úr 9,2 pró­sentum í 8,2 pró­sent milli kann­ana. Flokk­ur­inn fékk 10,7 pró­sent í kosn­ing­unum í októ­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár