Þrír miðjuflokkar hafa tekið til sín alla fylgisaukninguna frá kosningum

Píratar, Sam­fylk­ingin og Viðreisn hafa sam­an­lagt bætt við sig miklu fylgi frá því að kosið var síð­ast á Íslandi. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar tapa fylgi og stjórn­ar­flokk­arnir gætu ekki myndað rík­is­stjórn ef kosið yrði í dag.

Nú stytt­ist í að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur leggi fram sitt fyrsta alvöru fjár­laga­frum­varp sem er að fullu mótað af áherslum hennar. Í fyrra var það lagt 14. sept­em­ber og þáver­andi rík­is­stjórn náði að sitja í rétt rúman sól­ar­hring eftir þann gjörn­ing þar til að hún sprakk vegna upp­reist æru-máls­ins og boðað var til kosn­inga. Þær fóru fram 28. októ­ber 2017.

Miklar svipt­ingar hafa orðið á fylgi stjórn­mála­flokka sem sæti eiga á Alþingi frá því að þær fóru fram. Nú mæl­ast stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, sam­kvæmt nýj­ustu könnun Gallup, með mun meira fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir og frjáls­lyndir miðju­flokkar bæta mestu fylgi við sig. Þrír slíkir hafa aukið fylgi sitt 11,9 pró­sentu­stig á tæpum tíu mán­uðum, eða um 40 pró­sent.

Á sama tíma hefur fylgi hinna fimm flokk­anna sem sitja á þingi dalað, þó mis­mun­andi mikið. Mesta fylgið hafa Vinstri græn misst, en þriðj­ungur þess hefur horfið frá því í fyrra­haust.

Andstaðan gæti myndað stjórn en ríkisstjórnin ekki

Stjórn­ar­and­staðan mælist nú með 53,9 pró­sent fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir með 44,5 pró­sent. Um 1,6 pró­sent myndu kjósa aðra flokka en þá sem eiga sæti á þingi í dag.

Það er mik­ill við­snún­ingur frá því sem var í síð­ustu kosn­ingum, þegar stjórn­ar­flokk­arnir fengu 52,9 pró­sent fylgi og 35 þing­menn en stjórn­ar­and­staðan 28. Ef kosið yrði í dag myndi stjórn­ar­and­staðan lík­ast til fá 34-35 þing­menn en stjórn­ar­flokk­arnir þrír 28-29, sem myndi ekki duga til að mynda meiri­hluta­stjórn.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur væri því kol­fallin ef kosið yrði í dag. Auk þess nýtur hún nú stuðn­ings undir helm­ings þjóð­ar­innar, en 49,7 pró­sent lands­manna sögð­ust styðja hana í síð­ustu könnun Gallup.

Þrír andstöðuflokkar styrkja sig mikið...

Þeir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem hafa styrkt stöðu sína mest sam­kvæmt mæl­ingum eru Píratar, sem myndu bæta við sig 4,7 pró­sentu­stigum og fá 13,9 pró­sent, og Sam­fylk­ingin, sem myndi bæta við sig 4,6 pró­sentu­stigum og fá 16,7 pró­sent. Píratar myndu fara úr því að vera þriðji minnsti flokk­ur­inn á þingi í að vera þriðji stærsti og Sam­fylk­ingin yrði sá næst stærsti. Hafa verður þó þann fyr­ir­vara að báðir þessir flokkar, og sér­stak­lega Píratar, hafa haft til­hneig­ingu til, í kosn­ingum und­an­far­inna ára, að fá minna upp úr kjör­köss­unum en þeir mæl­ast með í könn­unum. Sam­fylk­ingin fékk til að mynda þremur pró­sentu­stigum minna í kosn­ing­unum í októ­ber 2017 en flokk­ur­inn hafði mælst með í könnun sem var birt dag­inn áður.

Þriðji flokk­ur­inn á þingi sem er með frjáls­lyndar og alþjóð­legar áherslur, Viðreisn, hefur líka bætt við sig og mælist nú með 8,7 pró­sent fylgi. Það er tveimur pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­vor. Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir þrír eru því með 39,3 pró­sent fylgi í dag sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ingum, eða 11,3 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu upp úr kjör­köss­unum í októ­ber 2017.

...En tveir tapa fylgi

Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn, hafa tapað fylgi frá því í kosn­ing­unum. Báðir eru þjóð­ern­is­legir flokkar með óskýra stefnu­skrá sem hverf­ist að miklu leyti um skoð­anir leið­toga þeirra og risa­stór kosn­inga­lof­orð.

Mið­flokk­ur­inn, sem var stofn­aður skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar og náði besta árangri sem nokkur flokkur hefur náð í fyrstu fram­boðstil­raun til Alþingis, myndi fara úr 10,9 pró­sent fylgi í 8,6 pró­sent. Flokkur fólks­ins myndi tapa 0,9 pró­sentu­stigum og fá sex pró­sent ef kosið yrði í dag. Þessir tveir flokkar yrðu minnstir af þeim átta sem eiga sæti á þingi.

Tveir stjórnarflokkar standa næstum í stað...

Þá standa eftir stjórn­ar­flokk­arnir þrír. Hlut­skipti þeirra það sem af er kjör­tíma­bili hefur verið nokkuð ólíkt. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur nán­ast staðið í stað. Hann myndi fá 24,6 pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú í stað þeirra 25,3 pró­senta sem hann fékk fyrir tæpum tíu mán­uðum síðan. Sú breyt­ing er vel innan skekkju­marka og flokk­ur­inn yrði áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins. Núver­andi fylgi myndi þó þýða næst verstu nið­ur­stöðu kosn­inga í sögu flokks­ins.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi tapa 1,5 pró­sentu­stigi af fylgi sínu og fá 9,2 pró­sent. Það yrði lang­versta nið­ur­staða hans nokkru sinni og lág­marks­metið frá því í fyrra því lík­ast til bætt. Þessir tveir flokkar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, hafa þó oftar en ekki náð að fá meira fylgi í kosn­ingum en kann­anir hafa bent til. Þarna er enda um tvo elstu flokka lands­ins að ræða sem hafa oft­ast nær stjórnað land­inu, saman eða í sitt­hvoru lagi. Flokks­menn þeirra kunna því betur en flestir aðrir að ná árangri í kosn­ingum.

...En Vinstri græn tapa þriðjungi fylgis

Vinstri græn eru sá flokkur sem tapað hefur mestu fylgi frá kosn­ingum, en rúm­lega þriðj­ungur þess hefur þurrkast út frá því í októ­ber í fyrra. Flokk­ur­inn fékk 16,9 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum 2017 sem þýddi að hann var næst stærsti flokkur lands­ins og gat farið fram á for­sæt­is­ráðu­neytið í rík­is­stjórn­inni sem á end­anum var mynduð.

Ef kosið yrði í dag myndu Vinstri græn fá 10,7 pró­sent fylgi, sem er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með frá því í árs­lok 2015, og þar af leið­andi fjórði stærsti flokkur lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár