Hlutafé WOW aukið um 51 prósent

Hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air var aukið um rúman helm­ing á síð­asta árs­fjórð­ungi, með fram­lögum frá eig­anda og for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Skúla Mogensen.

Höfuðstöðvar WOW air í Borgartúni
Höf­uð­stöðvar WOW air í Borg­ar­túni Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hlutafé í Wow air var aukið um rúman helm­ing á öðrum árs­fjórð­ungi. Upp­lýs­ingar um hluta­fjár­aukn­ing­una komu fram hjá fyr­ir­tækja­skrá síð­ast­lið­inn föstu­dag, en Túristi.is greindi fyrst frá henni.

Í frétt Túrista kemur fram að Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW air, hafi lagt eign­ar­hlut sinn í Cargo Express ehf. inn í WOW air á öðrum árs­fjórð­ungi. Auk þess hefði hann breytt kröfum sínum á hendur félags­ins í eigið fé, en verð­mæti þess­ara breyt­inga muni nema yfir tveimur millj­örðum króna.

Kjarninn hefur áður fjallað um rekstur WOW air, en flug­fé­lagið tap­aði yfir 2,3 millj­örðum íslenskra króna á síð­asta ári. Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var 10,9 pró­sent í árs­byrjun, sem er nokkru lægra en 42 pró­sent eig­in­fjár­hlut­fall Icelandair á sama tíma.

Á síð­ustu tveimur árs­fjórð­ungum hefur þó rekstur Icelandair þyngst tölu­vert, en Kjarninn greindi frá 6,4 millj­arða króna tapi flug­fé­lags­ins á fyrri árs­helm­ingi í ár. Samhliða því hefur eig­in­fjár­hlut­fallið lækkað um tíu pró­sentu­stig niður í 32 pró­sent á sama tíma.

[links]Vanga­veltur hafa verið uppi um rekstur WOW air á sama tíma, en flug­fé­lagið varði sig ekki gegn olíu­verð­hækk­unum sem áttu sér stað á þessu ári líkt og Icelandair. Því gæti WOW air hafa fundið meira fyrir ytri mark­aðs­að­stæðum en Icelandair, en rekstr­ar­nið­ur­staða fyrr­nefnda félags­ins frá fyrri árs­helm­ingi hefur ekki enn verið birt. Hluta­fjár­aukn­ing WOW væri þó, að öllu óbreyttu, til þess að hækka eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár