Icelandair hefur tapað 6,4 milljörðum í ár

Tap flug­fé­lags­ins er þrefalt hærra en það var á fyrri árs­helm­ingi í fyrra.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.
Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair. Mynd: Kjarninn.

Tap Icelandair á öðrum árs­fjórð­ungi nam 2,7 millj­örðum íslenskra króna, en það sem af er ári hefur flug­fé­lagið alls tapað 6,4 millj­örðum. Ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra hefur tap félags­ins rúm­lega þre­fald­ast milli ára. Þetta kemur fram í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri félags­ins.

Samkvæmt upp­gjör­inu juk­ust heild­ar­tekjur um 9% milli ára og náðu 399 millj­ónum Banda­ríkja­dala sam­an­borið við 367,3 millj­ónir dala árið áður. Aftur á móti jókst kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins enn meira, eða um 18%, úr 326,7 millj­ónum dala í fyrra upp í 384,213 millj­ónir dala í ár. Þar vó hæst almennur flug­kostn­aður, en launa­kostn­aður félags­ins jókst einnig nokkuð.

[links]Á öðrum árs­fjórð­ungi nam tap félags­ins 25,7 millj­ónum dala, í sam­an­burði við 9,9 milljón dala hagnað á sama tíma­bili í fyrra. Ef litið er á fyrri árs­helm­ing­inn 2018 er tap flug­fé­lags­ins 60,3 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sem jafn­gildir 6,4 millj­örðum íslenskra króna. Til sam­an­burðar var tap Icelandair á fyrri árs­helm­ingi 2017 ein­ungis 20 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 2,1 millj­arðar íslenskra króna.

Hærra skuldahlutfall

Samhliða auknum halla félags­ins hefur efna­hags­reikn­ing­ur­inn einnig stækkað nokkuð það sem af er ári, með meiri eignum og skuldum en undir lok síð­ast­lið­ins des­em­ber­mán­aðar. Skulda­hlut­fall þeirra hefur einnig hækkað nokkuð milli árs­helm­inga, en nú nema skuldir félags­ins um 68% af eignum, í sam­an­borið við 58% undir lok árs 2017.

Í til­kynn­ingu sem fylgdi birt­ingu upp­gjörs­ins í Kaup­höll­inni sagði Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair, sam­keppn­ina á mörk­uðum sjaldan hafa verið meiri. Einnig sagði hann félagið hafa unnið að viða­miklum breyt­ingum á félag­inu á tíma­bil­inu, meðal ann­ars sölu á hót­el­rekstur félags­ins og kaup á nýjum Boeing MAX flug­vélum. Björgólfur telur félagið í góðri stöðu til að takast á við áskor­anir og nýta tæki­færi sem upp kunna að koma við slíkar aðstæður.

Kjarninn fjall­aði um erf­ið­leika Icelandair á hluta­bréfa­mark­aði fyrr í dag, en verð­miði félags­ins er kom­inn langt undir eigið fé. Hann nemur nú um 40 millj­örðum króna, en fór hæst í 180 millj­arða króna fyrir skömmu síðan. Félagið er að stærstum hluta í almenn­ings­eigu í gegnum eign­ar­hlut­deild líf­eyr­is­sjóð­anna.

Í fyrra­málið fer svo fram kynn­ing­ar­fundur kl. 08:30 á Icelandair Hotel Reykja­vík Natura. Þar munu Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála, kynna afkom­una og svara spurn­ingum ásamt öðrum stjórn­endum félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár