Vill auka tolla á kínverskar vörur en aflétta banni á rússneskt fyrirtæki

Banda­ríkja­stjórn viðr­aði í gær hugs­an­leg áform um að leggja tolla á allan kvín­verskan inn­flutn­ing ann­ars vegar og aflétta við­skipta­banni við rúss­neskt álfyr­ir­tæki hins vegar.

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

Forseti Banda­ríkj­anna sagð­ist í gær vera til­bú­inn til að leggja toll á allar kín­verskar vörur sem fluttar væru inn til Banda­ríkj­anna. Seinna sama dag sagði fjár­mála­ráð­herra lands­ins banda­rísku rík­is­stjórn­ina íhuga að aflétta við­skipta­bann á rúss­neska álfyr­ir­tækið Rusal.

„Kína hefur okrað á okkur í langan tíma“

Í við­tali við CNBC í gær gaf Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna til kynna að hann væri til­bú­inn að auka toll­skyldan inn­flutn­ing frá Kína upp úr and­virði 34 millj­arða Banda­ríkja­dala upp í 500 millj­arða, en sú upp­hæð jafn­gildir virði heild­ar­inn­flutn­ings Banda­ríkj­anna frá land­inu. „Ég er ekki að gera þetta vegna stjórn­mál­anna, ég er að gera þetta til þess að breyta rétt fyrir landið okkar,“ sagði Trump. „Kína hefur okrað á okkur í langan tíma.“

Í við­tal­inu ítrek­aði Trump að honum fannst illa hafa verið farið með Banda­ríkin í mörgum mál­efnum, þar á meðal í alþjóða­við­skiptum og pen­inga­mála stefnu. Hins vegar sagði hann að álagn­ingar toll­anna á kín­verskar vörur hafi ekki verið settar á með illum hug. Hann sagð­ist einnig líka mjög vel við Xi Jinping, for­seta Kína, en vill þó meina að við­skipta­kjörin milli land­anna hafi verið ósann­gjörn.

Hugsa um að aflétta banni

Seinna sama dag til­kynnti frétta­stofa Reuters að Steven Mnuchin, fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hafi viðrað mögu­leik­ann á því að fjar­lægja við­skipta­banni Banda­ríkj­anna á rúss­neska álfyr­ir­tækið Rusal. Samkvæmt Mnuchin hafi áætl­unin aldrei verið að „setja Rusal á haus­inn.“

Þetta sagði Mnuchin í við­tali við frétta­stof­una í Argent­ínu, rétt fyrir leið­toga­fund fjár­mála­ráð­herra G20 ríkj­anna. Samkvæmt frétt­inni gefa ummælin til kynna að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hafi í huga að hjálpa álfyr­ir­tæk­inu, sem reynt hefur að kom­ast til móts við stjórn­ina eftir að fjár­mála­ráðu­neytið setti á við­skipta­bann á það vegna eins eig­anda þess, Oleg Der­ipaska.

[links]Við­skipta­bannið á að hafa skapað ringul­reið á álmark­aðnum á heims­vísu, en nokkur lönd og fyr­ir­tæki hafa síðan þá reynt að hnika til ákvörðun fjár­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna til að draga úr áhrifum á mark­aðnum.

Banda­ríkin hafa nú þegar lagt 10% toll á inn­flutn­ing áls frá Kanada, Evr­ópu­sam­band­inu og Mexíkó, en Kjarninn greindi nýlega frá lækk­andi afkomu Alcoa vegna þessa. Óttast er að frek­ari tolla­lagn­ing muni eiga sér stað á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár