Landsvirkjun stórgræðir á álverðstengingu

Arð­greiðslur Lands­virkj­unar til rík­is­sjóðs nemur 15 millj­örðum króna í ár, sem er helm­ingi meira en í fyrra. For­stjóri félags­ins segir bættan rekstur vera vegna alþjóð­legra verð­hækk­ana á áli og orku­samn­inga sem taka mið af því.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun skil­aði 19,3 millj­arða króna hagn­aði í fyrra og hyggst greiða út 15 millj­arða króna til rík­is­sjóðs í arð. Samkvæmt Herði Arn­ar­syni, for­stjóra félags­ins, má rekja bætta afkomu þess til mik­ils bata í rekstr­ar­um­hverfi stórnot­enda á orku hér­lendis, meðal ann­ars vegna verð­hækk­ana á áli og orku á alþjóða­vísu. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar.

Hækkun álverðs meginástæða rekstrarbata

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um má rekja stóran hluta af hag­vexti síð­asta árs til verð­hækk­unar á áli og öðrum málum, en hún leiddi til tekju­aukn­ingar sem nemur 2,6 pró­sentum af lands­fram­leiðslu í fyrra.

Álverin eru á meðal stærstu við­skipta­vina Lands­virkj­unar, en orku­samn­ingar þeirra taka mið af heims­mark­aðs­verði á áli. Vegna þess hækk­aði með­al­verðið á orku til stórnot­enda Lands­virkj­unar um 55 pró­sent í fyrra, á meðan með­al­verðið til heim­ila og smærri fyr­ir­tækja hélst óbreytt frá fyrra ári.

Rio Tinto, sem er eig­andi álvers­ins í Straums­vík, barð­ist fyrir því fyrir tveimur árum síðan að raf­orku­samn­ingar við Lands­virkjun skyldu vera tengdir við heims­mark­aðs­verð á áli.

Rio Tinto vildi tengingu við álverð

Í febr­úar 2020 sendi Rio Tinto frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem sagt var frá því að fyr­ir­tækið leit­aði allra leiða til að gera álverið arð­bært og sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mörk­uðum, meðal ann­ars við stjórn­völd og Lands­virkjun. Þá væri gert ráð fyrir því að rekstur álvers­ins yrði áfram óarð­bær til skemmri og með­la­langs tíma, sökum ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs og lágs verðs á áli í sögu­legu sam­hengi.

Í júlí 2020 sendi Rio Tinto for­m­­lega kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess að fyr­ir­tækið taldi Lands­­virkjun hafa yfir­­­burða­­stöðu gagn­vart álver­inu. Þar kom fram að ef Lands­­virkjun myndi ekki láta af „skað­­legri hátt­­semi sinn­i“ myndi Rio Tinto segja upp orku­­samn­ingi sínum við Lands­­virkjun og loka álver­inu.

Rio Tinto hætti hins vegar við þau áform í fyrra, þegar fyr­ir­tækið náði saman við Lands­virkjun um að tengja orku­verð við heims­mark­aðs­verð á áli. Samhliða und­ir­ritun samn­ings­ins dró álfyr­ir­tækið kvörtun sína til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár