Útflutningstekjur jukust um 2,6 prósent af VLF vegna verðhækkana

Verð­hækk­anir á áli og öðrum málmum leiddu til mik­illar aukn­ingar í útflutn­ings­verð­mætum á síð­ustu mán­uðum. Alls námu þær 2,6 pró­sentum af lands­fram­leiðslu árs­ins 2020.

Mikið af verðmætasköpuninni sem átti sér stað í fyrra var vegna verðhækkunar á málmum.
Mikið af verð­mæta­sköp­un­inni sem átti sér stað í fyrra var vegna verð­hækk­unar á málmum. Mynd: Af vef Landsvirkjunar

Útflutn­ings­verð­mæti málma, að járni und­an­skildu, juk­ust um rúma 76 millj­arða króna í fyrra vegna verð­hækk­unar á alþjóða­mörk­uðum. Þessar verð­hækk­anir skil­uðu því tekjum sem nema tæpum þremur pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu um vöru­við­skipti á milli landa.

Kjarninn hefur áður fjallað um verð­hækk­anir á áli, en þær hafa verið gjöf­ular fyrir stór­iðj­una hér­lendis á síð­ustu mán­uðum. Í des­em­ber í fyrra nam útflutn­ings­verð­mæti málms­ins alls tæpum 34 millj­örðum króna og var það nýtt met. Ef litið er til síð­asta árs í heild sinni var verð­mæti álút­flutn­ings 37 pró­sentum hærra en það var árið 2020. [adspot]

Svipaðar tölur má sjá þegar útflutn­ingur á málmum, að járni und­an­skildu, eru skoð­aðar fyrir síð­asta ár. Samkvæmt þeim nam heild­ar­verð­mæti útflutn­ings­ins alls 295 millj­örðum króna í fyrra, sem er tæp­lega 78 millj­örðum króna meiri útflutn­ingur en á árinu 2020. Það jafn­gildir 36 pró­senta aukn­ingu.

Nær öll aukn­ingin er vegna hrá­vöru­verðs­hækk­ana á heims­vísu, en magn útflutn­ings­ins breytt­ist lítið sem ekk­ert. Ef með­al­verð á málmum hefði verið jafn­hátt og það var árið 2020 hefði verð­mæti útflutn­ings­ins í fyrra verið 76 millj­örðum króna minna. Áhrif verð­hækk­ana eftir mán­uðum sést á mynd hér að ofan, en sam­kvæmt henni mun­aði mestu um hækk­an­irnar í fyrra­haust.

Fjórðungur af vexti VLF

Árið 2020 nam lands­fram­leiðsla Íslands tæpum þrjú þús­und millj­örðum króna, en 76 millj­arðar króna eru 2,6 pró­sent af þeirri upp­hæð. Það er um fjórð­ungur af þeim vexti í lands­fram­leiðslu að nafn­virði sem Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir að hafa orðið hér­lendis í fyrra, en sam­kvæmt nýjasta hefti Pen­inga­mála má búast við að hann hafi numið 4,9 pró­sentum árið 2021 og verð­bólgan verið 4,4 pró­sent á sama tíma.

Samkvæmt Pen­inga­málum, sem komu út fyrr í mán­uð­inum, hafa skamm­tíma­horfur í álút­flutn­ingi hins vegar versnað á síð­ustu vikum, þar sem talið er að skerð­ing á orku­sölu til álvera muni hafa nei­kvæð áhrif. Þó segir bank­inn að lang­tíma­horf­urnar í geir­anum séu óbreyttar.

Aths: 19. mars: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var talað um fram­lag álverðs­ins til hag­vaxtar, en rétt­ara væri að tala um fram­lag þess til aukn­ingar í lands­fram­leiðslu. Frétt­inni hefur verið breytt í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár