Landsvirkjun hnýtir í heimildarmenn Morgunblaðsins

Lands­virkjun hefur sent út yfir­lýs­ingu vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins í dag, en í frétt­inni var meðal ann­ars haft eftir heim­ildum innan úr Rio Tinto að þar væri í athugun að höfða mál gegn Lands­virkjun vegna vöru­svika tengdum sölu upp­runa­vott­orða.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna for­síðu­fréttar Morg­un­blaðs­ins í dag, en þar hafði blaðið meðal ann­ars eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­mönnum sínum að Rio Tinto íhugi að leggja niður starf­semi sína í Straums­vík í tvö ár og að fyr­ir­tækið sé einnig að und­ir­búa mögu­leg mála­ferli gegn Lands­virkjun, sem ætluð væru til þess að losa fyr­ir­tækið undan raf­orku­samn­ingnum við fyr­ir­tækið.

Í yfir­lýs­ingu Lands­virkj­unar, sem und­ir­rituð er af Herði Arn­ar­syni for­stjóra, segir að þarna fari heim­ild­ar­menn blaðs­ins með „full­yrð­ingar sem aldrei hafa komið fram í við­ræðum fyr­ir­tækj­anna“ og það geti full­trúar Rio Tinto í þeim við­ræðum stað­fest. Sem kunn­ugt er ræða Land­virkjun og Rio Tinto nú um kröfu álf­ram­leið­and­ans um lækkað raf­orku­verð til verk­smiðj­unnar í Straums­vík.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins kom einnig fram og haft eftir heim­ildum innan úr Rio Tinto, að fram­leng­ing kjara­samn­ings starfs­manna álvers­ins hafi verið bundin því skil­yrði að nýr raf­orku­samn­ingur á milli Rio Tinto og Lands­virkj­unar yrði end­ur­skoð­aður.

„Það sætir auð­vitað furðu, ef rétt er, að alþjóð­lega risa­fyr­ir­tækið Rio Tinto hafi skil­yrt kjara­samn­inga við starfs­menn sína á Íslandi aðgerðum fyr­ir­tækis í eigu íslensku þjóð­ar­innar, sem hefur ekk­ert með þá kjara­samn­inga að gera,“ segir í yfir­lýs­ingu Lands­virkj­unar um það efni.

Morg­un­blaðið fjall­aði um rekstr­ar­nið­ur­stöðu álvers­ins í Straums­vík í frétt sinni, en sam­kvæmt árs­reikn­ingi sem birtur var í lok mars­mán­aðar nam tap fyr­ir­tæk­is­ins af rekstri síð­asta árs um 13 millj­örðum króna.

Lands­virkjun segir í yfir­lýs­ingu sinni að í fréttum af erf­ið­leikum Rio Tinto og tap­rekstr­inum í Straums­vík und­an­farin ár sé því hins vegar „sjaldan haldið á lofti að álverið hér greiddi móð­ur­fé­lagi sínu 130 millj­ónir doll­ara í arð árið 2017“ og bætir við að sú arð­greiðsla hafi á þeim tíma verið „hærri en sam­an­lagðar skatt­greiðslur og allur arður Lands­virkj­unar frá upp­hafi til eig­anda síns, íslensku þjóð­ar­innar.“

Málaferli sögð möguleg vegna kórónuveiru og upprunavottorða

Í frétt Morg­un­blaðs­ins sagði að mála­ferli gegn Lands­virkjun væru inni í mynd­inni af hálfu Rio Tinto. Meðal ann­ars væri til skoð­unar hvort áhrif kór­ónu­veirunnar á stöðu álmark­aða væri slík að það gæti talist „force majeur“ og Rio Tinto gæti þannig hrein­lega lokað álver­inu í Straums­vík án þess að greiða upp raf­orku­samn­ing­inn. 

Einnig nefndu heim­ild­ar­menn Morg­un­blaðs­ins að mögu­lega gæti farið svo að Rio Tinto myndi bera fyrir sig vöru­svikum vegna sölu Lands­virkj­unar á upp­runa­vott­orðum. Lands­virkjun segir að þarna beri frum­legir heim­ild­ar­menn blaðs­ins fyrir sig „ómerki­legu bragði“.

„Frum­leg­asta full­yrð­ing heim­ild­ar­manna Morg­un­blaðs­ins er sú, að álverið í Straums­vík ætli í mál þar sem orkan til álvers­ins sé ekki frá vatns­afls­virkj­unum, eins og um hafi verið samið. Samkvæmt raf­orku­reikn­ingum sé orkan í raun frá kola- og kjarn­orku­verum og því um vöru­svik að ræða gagn­vart Rio Tinto. Þarna beita heim­ild­ar­menn­irnir því ómerki­lega bragði að ýta undir algengan mis­skiln­ing um eðli svo­kall­aðra upp­runa­vott­orða, sem Lands­virkjun selur og skapa fyr­ir­tæk­inu og þar með íslensku þjóð­inni auknar tekjur af auð­lind sinni,“ segir í yfir­lýs­ingu Lands­virkj­unar.

Þar er einnig minnt á að Lands­virkjun fór um miðjan febr­úar fram á að trún­aði yrði aflétt af samn­ingnum við Rio Tinto, svo hægt væri að tryggja gagn­sæi í umræðum um hann. „Rio Tinto hefur ekki enn orðið við því,“ segir í yfir­lýs­ingu Lands­virkj­unar.

Bjarni Már Gylfason upp­lýs­inga­full­trúi Rio Tinto á Íslandi segir við Kjarnann að hann geti ekk­ert tjáð sig um það sem fram kemur í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár