Ál hefur ekki verið dýrara í áratug

Álverð hefur hækkað um 75 pró­sent á alþjóð­legum mörk­uð­um­frá því í apríl í fyrra. Verð­hækk­un­ina má að hluta til skýra vegna fram­leiðslu­hökts í Kína, en aukin eft­ir­spurn eftir bjór og raf­bílum hafa líka haft áhrif.

Þessa dag­ana nemur heims­mark­aðs­verð á áli tæpum 2.600 Band­ríkja­dölum á hvert tonn eftir að hafa hækkað nær stans­laust síð­asta eina og hálfa árið. Leita þarf aftur til árs­ins 2011 til að finna álíka hátt álverð.

Álrisarnir græða

Samhliða hækk­un­inni hafa rekstr­ar­horfur ýmissa álf­ram­leið­enda vænkast, auk þess sem hluta­bréfa­verð þeirra hefur hækkað tölu­vert á síð­ustu mán­uðum. Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um skil­uðu álrisarnir Alcoa og Rio Tinto met­hagn­aði í síð­ustu árs­fjórð­ungs­upp­gjör­unum sínum. Hluta­bréfa­verð Alcoa hefur líka næstum því þre­fald­ast á síð­asta ári í kaup­höll­inni í New York.

Meiri eftirspurn og minna framboð

Samkvæmt umfjöllun Financial Times um málið kemur verð­hækk­unin til vegna auk­innar eft­ir­spurnar á heims­vísu, sam­hliða því að erf­ið­leikar hafi komið upp í álf­ram­leiðslu í Kína. Þar sem ál er notað í ýmsum neyslu­vörum, líkt og bjór­dósum og raf­bílum, fylgir heims­mark­aðs­verð þess gjarnan hag­sveiflum.

Á sama tíma hafa miklir þurrkar sem geisað hafa um Yunnan-hérað í Kína haft áhrif á fram­boðið á málm­inum á heims­vísu þar sem álverin hafa þurft að draga úr fram­leiðslu sinni til að ganga ekki á orku­birgð­irnar. Samkvæmt Financial Times var búist við því að helm­ing­ur­inn af öllum vexti í álf­ram­leiðslu þetta árið kæmi frá hér­að­inu.

Þrátt fyrir þessa miklu verð­hækkun hefur útflutn­ingur á áli frá Íslandi ekki auk­ist, en hann nam tæpum 395 þús­und tonnum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni. Þetta er minnsti útflutn­ingur áls í árs­helm­ingum talið í átta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár