Framleiðslugreinar ná sér aftur á strik

Minni fram­leiðslu­tak­mark­anir og meiri einka­neysla í Kína virð­ist hafa leitt til þess að fram­leiðslu­fyr­ir­tæki í Evrópu eru á svip­uðu róli og í fyrra. Einnig má sjá við­spyrnu á Íslandi, ef horft er á vöru­út­flutn­ing iðn­að­ar­vara.

Daimler, framleiðandi Mercedes Benz-bílanna, hefur fundið fyrir mikilli eftirspurnaraukningu frá Kína
Daimler, fram­leið­andi Mercedes Benz-bíl­anna, hefur fundið fyrir mik­illi eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu frá Kína Mynd: EPA

Virkni fram­leiðslu­fyr­ir­tækja á Íslandi og ann­ars staðar í Evrópu hefur auk­ist tölu­vert á und­an­förnum mán­uðum og er hún nú nálægt því sem hún var áður en efna­hag­skrísan vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar dundi yfir. Evr­ópskir fram­leið­endur benda á að fyr­ir­tækin hagn­ist á auk­inni einka­neyslu í Kína.

Útflutningskippur og hærra álverð

Samkvæmt nýlegum tölum Hagstofu um vöru­út­flutn­ing í sept­em­ber hefur virði útflutn­ings á iðn­að­ar­vörum minnkað lít­il­lega síð­ustu mán­uð­ina, miðað við árið á undan. Í síð­asta mán­uði jókst útflutn­ing­ur­inn um rúman fimmt­ung milli mán­aða og nam tæpum 26 millj­örðum króna, sem er meira en með­al­tal síð­ustu tveggja ára.

Aukinn útflutn­ingur á iðn­að­ar­vörum er í sam­ræmi við þróun heims­mark­aðs­verðs á áli, en líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur álverð náð fyrri hæðum á síð­ustu mán­uðum eftir að hafa tekið skarpa dýfu við byrjun efna­hag­skrís­unnar í vor.

Öfugt við þróun í þjónustu

Breska blaðið Financial Times greindi frá batn­andi árferði fram­leiðslu­fyr­ir­tækja í Evrópu fyrr í dag, en sam­kvæmt henni hefur iðn­að­ar­fram­leiðsla auk­ist tölu­vert í álf­unni á síð­ustu mán­uðum eftir mik­inn sam­drátt í vor. Þessi þróun er öfug þeirri í þjón­ustu­geir­anum, en virkni hans heldur áfram að minnka í Evrópu í síð­asta mán­uði.

End­ur­reisn iðn­að­ar­fyr­ir­tækja hefur verið sér­stak­lega mikil á Ítalíu, þar sem fram­leiðsla í geir­anum hefur náð sama stigi og hún var á áður en núver­andi kreppa skall á. Í Þýska­landi hefur iðn­að­ar­fram­leiðsla einnig auk­ist, þótt enn vanti tíu pró­sent upp á að hún nái fyrri styrk.

[adspot]

Meiri neysla í Kína kemur til bjargar

Stór hluti iðn­að­ar­fram­leiðslu Evr­ópu­þjóða er í bíla­iðn­að­inum. Á meðan eft­ir­spurn eftir bílum mælist enn lítil jókst hún milli mán­aða í sept­em­ber, auk þess sem hún hefur auk­ist utan Evrópu.

[links]Í við­tali við Financial Times sagði Stefan Klebert, fram­kvæmda­stjóri þýska fram­leið­and­ans Gea Group, sem fram­leiðir meðal ann­ars meira en helm­ing­inn af bjór­brugg­vélum heims­ins, að við­spyrnan í Kína leiði áfram eft­ir­spurn eftir vörum félags­ins.

Blaðið tók einnig við­tal við Ola Kal­lenius, sem er fram­kvæmda­stjóri bíla­fram­leið­and­ans Daimler, sem fram­leiðir meðal ann­ars Mercedes Benz-bíla. Kal­lenius sagði aukn­ing­una í sölu bíla í Kína hafa verið „stór­kost­lega“. „Þetta er nán­ast of gott til að vera satt,“ bætti hann við. „Kín­verjar hafa náð V-laga við­spyrnu í efna­hagi sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár