Gjöfult ár fyrir fisk og ál

Árið hefur verið gjöf­ult fyrir bæði sjáv­ar­út­veg­inn og áliðn­að­inn hér á landi, en sam­an­lagður útflutn­ingur þess­ara greina það sem af er ári hefur ekki verið meiri í ára­tug. Samkvæmt Seðla­bank­anum er búist við enn meiri vexti á næsta ári.

Útflutn­ings­verð­mæti sjávar- og álaf­urða á fyrstu níu mán­uðum árs­ins jókst um 17 pró­sent miðað við sama tíma­bil í fyrra og hefur ekki verið jafn­hátt á síð­ustu tíu árum. Seðla­bank­inn býst við áfram­hald­andi vexti, í ljósi mik­illa afla­heim­ilda á loðnu og hás álverðs.

Samkvæmt tölum Hagstofu nam útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða frá jan­úar og út sept­em­ber alls 213 millj­örðum króna, en það var átta pró­sentum meira verð­mæti heldur en á sama tíma í fyrra. Útflutn­ings­verð­mæti álaf­urða nam aftur á móti 195 millj­örðum króna á tíma­bil­inu, sem er um 30 pró­sentum meira en útflutn­ings­verð­mæti þeirra á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs. [adspot]

Útflutn­ingur beggja vöru­flokka hefur ekki verið jafn verð­mætur í að minnsta kosti tíu ár, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Loðnan og hagstætt álverð

Samkvæmt nýjasta hefti Pen­inga­mála Seðla­bank­ans má rekja auk­inn útflutn­ing sjáv­ar­af­urða til verð­mætrar loðnu­ver­tíðar í vor. Eftir það hafi útflutn­ing­ur­inn þó aðeins dreg­ist saman.

Álút­flutn­ingur hafi hins vegar tekið við sér á síð­asta árs­fjórð­ungi eftir því sem heims­mark­aðs­verð þess stórjókst.

Bankinn verð­hækk­un­ina á áli skýr­ast einkum af minni álf­ram­leiðslu í Kína vegna rbeyttrar stefnu þar­lendra stjórn­valda í umhverf­is­málum sem hefur leitt til sam­dráttar í fram­boði orku til stór­iðju­fram­leiðslu. Einnig hafi fram­leiðsla á áli dreg­ist saman á Indlandi sakir skorts á kolum og í Brasilíu vegna minni afkasta vatns­afls­virkj­ana. Þar að auki hafi fram­boðs­hnökrar leitt til þess að súrál, sem er notað í álf­ram­leiðslu, hafi hækkað tölu­vert í verði.

Búist er við að útflutn­ings­verð áls frá Íslandi verði 43 pró­sentum hærra í ár en það var í fyrra. Þá er einnig búist við nærri 16 pró­senta verð­hækkun á næsta ári.

Bjartari horfur

Seðla­bank­inn segir að horfur um vöru­út­flutn­ing á þessu og næsta ári hafa batnað frá síð­ustu spá þess í ágúst, en nú sé gert ráð fyrir 7,6 pró­senta vexti á milli ára. Aukn­ingin er bæði vegna bjart­ari horfa í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða í ljósi auk­inna afla­heim­ilda á loðnu og vænt­ingar um meiri útflutn­ing álaf­urða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár