Rio Tinto sækir um nýtt starfsleyfi fyrir álverið í Straumsvík

Sótt hefur verið um nýtt starfs­leyfi fyrir álverið í Straums­vík, en núver­andi starfs­leyfi þess rennur út 1. nóv­em­ber. Rio Tinto, eig­andi álvers­ins, hefur sagt til skoð­unar að hætta rekstri á Íslandi vegna ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs.

Frá álveri Rio Tinto á Íslandi í Straumsvík.
Frá álveri Rio Tinto á Íslandi í Straums­vík. Mynd: Úr safni.

Rio Tinto á Íslandi hf. hefur sótt um nýtt starfs­leyfi fyrir álverið í Straums­vík, en núver­andi starfs­leyfi þess rennur út 1. nóv­em­ber. Þetta kemur fram á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Þar segir að jafn­framt að heim­ilt sé að fram­lengja gild­is­tíma starfs­leyfis, en þó að hámarki til eins ár, á meðan að ný umsókn um starfs­leyfi er í vinnslu. Núver­andi starfs­leyfi álvers­ins var gefið út í nóv­em­ber árið 2005.[links]

Umhverf­is­stofnun seg­ist vera að vinna úr til­lög­unni og tekur fram að til­laga um starfs­leyfi verði aug­lýst opin­ber­lega þegar hún liggur fyrir og þá gef­ist öllum tæki­færi til að koma með athuga­semdir áður en ákvörðun um útgáfu leyf­is­ins verður tekin.

Rio Tinto hefur sagt til skoð­unar að hætta rekstri álvers­ins á Íslandi vegna ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs sem fyr­ir­tækið fái hjá Lands­virkjun og fyrr á árinu bað stór­fyr­ir­tækið um að við­ræður færu fram um lækkað raf­orku­verð til álvers­ins, en núgild­andi raf­orkussamn­ingur var gerður árið 2010 og síð­ast end­ur­skoð­aður árið 2014.

Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, greindi frá því í lok febr­úar að Lands­virkjun hefði óskað eftir því við Rio Tinto að trún­að­ar­á­kvæðum verði aflétt af raf­magns­samn­ingi fyr­ir­tækj­anna þannig að hægt yrði að ræða opin­ber­lega um meg­in­efni hans. Taldi hann þetta æski­legt, í anda gagn­sæis og einnig mik­il­vægt fyrir sam­fé­lag­ið. Það hefur Rio Tinto þó ekki viljað gera.

[adspot]

Eftir því sem liðið hefur á árið hefur aukin harka færst í mál­flutn­ing fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart Lands­virkjun. Rio Tinto hefur hrein­lega hótað því að loka álver­inu, láti Lands­virkjun ekki af „skað­legri hátt­semi sinni“ og kvartað form­lega til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess að félagið telur Lands­virkjun hafa yfir­burða­stöðu gagn­vart álver­inu.

Eins og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarnans fyrir skemmstu er þetta ekki í fyrsta sinn sem Rio Tinto hótar því að loka því að loka álver­inu í Straums­vík. Í kjara­deilum hafa fyr­ir­huguð verk­föll starfs­manna álvers­ins verið sögð geta valdið því að álverið leggi upp laupana og að auki var fyr­ir­huguð stækkun álvers­ins sem var hafnað í kosn­ingu sögð „for­senda þess að fyr­ir­tækið geti haldið velli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár