Hóta lokun álversins „láti Landsvirkjun ekki af skaðlegri háttsemi sinni“

Rio Tinto lagði í dag fram form­lega kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess sem félagið telur mis­notkun Lands­virkj­unar „á yfir­burða­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart ISAL“.

Rio Tinto rekur álverið í Straumsvík.
Rio Tinto rekur álverið í Straums­vík. Mynd: Úr safni.

Rio Tinto, sem rekur álverið í Straums­vík, hefur farið fram á það að Sam­keppn­is­eft­ir­litið taki „á sam­keppn­is­hamlandi hátt­semi Lands­virkj­unar með mis­mun­andi verð­lagn­ingu og lang­tíma­orku­samn­ingum, svo að álver ISAL og önnur íslensk fram­leiðsla og fyr­ir­tæki geti keppt á alþjóða­vett­vangi“. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér í dag.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Alf Barrios, for­stjóra Rio Tinto Alu­minium, að ef ekki verði tekið á „mis­notkun Lands­virkj­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu sinni“ á íslenskum orku­mark­aði eigi Ísland á hættu að „glata stórum útflutn­ings­fyr­ir­tækjum á borð við ISAL í Straums­vík“.

Barrios segir að ISAL greiði „umtals­vert meira fyrir orku sína en aðrir álf­ram­leið­endur á Íslandi“ sem grafi undan sam­keppn­is­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. „Við getum ekki haldið áfram að fram­leiða ál á Íslandi sé verð­lagn­ing orkunnar ekki gagnsæ, sann­gjörn og alþjóð­lega sam­keppn­is­hæf. Í milli­tíð­inni munu teymi okkar hjá ISAL halda áfram að ein­beita sér að því að draga úr kostn­aði á öruggan hátt, bæta fram­leiðni og standa við skuld­bind­ingar okkar gagn­vart við­skipta­vinum.“

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, greindi frá því í lok febr­úar að Lands­virkjun hefði óskað form­lega eftir því við Rio Tinto að trún­að­ar­á­kvæðum verði aflétt af raf­magns­samn­ingi fyr­ir­tækj­anna þannig að hægt yrði að ræða opin­ber­lega um meg­in­efni hans. Taldi hann þetta æski­legt, í anda gagn­sæis og einnig mik­il­vægt fyrir sam­fé­lagið.

Í til­kynn­ingu Rio Tinto sem send var í dag kemur fram að félagið hafi að und­an­förnu átt í við­ræðum við Lands­virkjun til að „tryggja sjálf­bæra fram­tíð álvers­ins“ og þeirra 500 starfa sem þar séu í húfi. „Þrátt fyrir ítrek­aða við­leitni af hálfu Rio Tinto til að koma á upp­byggi­legu sam­tali hefur fyr­ir­tækið nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Lands­virkjun sé ekki til­búin til að bæta núver­andi raf­orku­samn­ing ISAL sem gerir fyr­ir­tækið sjálf­bært og sam­keppn­is­hæft og taka á skað­legri hegðun og mis­munun Lands­virkj­unar gagn­vart ISAL.“

Þann 12. febr­úar til­kynnti Rio Tinto um sér­staka end­ur­skoðun á starf­semi álvers ISAL í Straums­vík. Rio Tinto hefur lokið fyrsta áfanga stefnu­mót­andi end­ur­skoð­unar með kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Láti Lands­virkjun ekki af skað­legri hátt­semi sinni, hefur ISAL ekki annan kost en að íhuga að segja upp orku­samn­ingi sínum við Lands­virkjun og virkja áætlun um lokun álvers­ins.“

Núgild­andi raf­orku­samn­ingur milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto hefur verið í gildi frá árinu 2010 og var end­ur­skoð­aður árið 2014. Starfs­leyfi Rio Tinto á Íslandi hf. var gefið út af Umhverf­is­stofnun 7. nóv­em­ber 2005 og gildir það til 1. nóv­em­ber í ár.

Rio Tinto á Íslandi hf. er að fullu í eigu Rio Tinto sem er alþjóð­legt náma­fé­lag með höf­uð­stöðvar í London. Félagið var stofnað árið 1873 utan um kop­ar­vinnslu á Spáni. Álsvið félags­ins, Rio Tinto Alu­minium (RTA), er einn stærsti álf­ram­leið­andi heims og hefur höf­uð­stöðvar í Montreal í Kanada.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár